Vísir - 26.02.1968, Qupperneq 3
n
r-:- '
| Fyrsti andmælandi, Ármann Snævarr, ræðir um ritgerðina. Fremst situr dr. juris Þóröur Eyjólfsson,
' þá Ólafur Jóhannesson, forseti lagadeildarinnar. Fjarst situr doktorsefnið og fylgist vandlega meö
) athugasemdum andmælandans.
Hinn nýbakaði doktor juris gengur meö andmælendum, forseta
Iagadeildar og forseta íslands úr hátíðasal Háskólans, eftir að
doktorsvömin hafði farið fram. Á eftir kemur fjölskylda Gunnars
Thoroddsens.
/ í S IR . Mánudagur 26. febrúar 1968.
— T Tm þær mundir er ég lauk
^ lagaprófi, en hugði á
framhaldsnám f lögum fékk ég
áhuga á að kynna mér þetta
efni. — Æran og vemd hennar,
málfrelsi og meiðyrði, samband
og samhengi þessara hugtaka
þóttu mér þá þegar meðal at-
hyglisverðustu viðfangsefni lög-
fræðinnar, enda snertir þetta
verkefni bæði einstaklinga og
opinbert líf.
Þannig svaraöi dr. Gunnar
TTioroddsen sendiherra spum-
ingu tíðindamanns VíSis um,
hvers vegna hann hefði ráðizt
f að skrifa rit sitt „Fjölmæli",
sem hann varði til doktorsprófs
við lagadeild Háskóla íslands á
laugardaginn.
Mikill mannfjöldi var við-
staddur doktorvömina, þar á
meðal forseti Islands, herra Ás-
geir Árgeirsson, sem er tengda-
faðir hins nýbakaða doktors.
Aðrir viðstaddir voru forsætis-
ráðherra og aðrir ráðherrar,
sendiherrar erlendra ríkja,
fjöldi embættismanna svo og
aðrir áhugamenn.
Ólafur Jóhannesson, forseti
lagadeildarinnar, stjómaði dokt-
orsvöminni, en andmælendur
vom þeir Ármann Snævarr há-
skólarektor og dr. juris Þóröur
Eyjólfsson, fyrrv. forseti Hæsta-
réttar.
Doktorsefnið gerði í upphafi
grein fyrir riti sínu í stuttu máli.
Hann gerði þá m. a. grein fyrir
orðinu fjölmæli, en ritgerðin ber
það nafn. Fjölmæli er fomt orð
og þýöir aö mæla mjög eða
mikið, þ. e. ærumeiðingar eða
meinyrði eins og það er almennt
kaUaö f dag. Orðið yar notaö
fram á 19. öld og þekktust orð-
in meinyröi og ærumeiðingar
ekki fyrr en þá. Sagði doktors-
Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra óskar hinum nýkjöma doktor til hamingju með doktorsvörnina. Frá vinstri: Vala Thoroddsen, dr.
Gylfi Þ. Gfslason, Ólafur Jóliannesson, forseti íslands herra Ásgeir Ásgeirsson, Ármann Snævarr háskólarektor, Magnús Jónsson og
dr. juris Þóröur Eyjólfsson.
Doktorsefnið flytur lokaorðið. Á fremsta bekk sitja forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, frú Vala Thoroddsen og börn.
FJÖLMENNIVIÐ DOKTORSVÖRN
efnið, að sér fyndist orðið fallegt
þó að innihald fjölmæla sé ekki
ávallt fallegt. Því væri ekki á-
stæða til að leggja það niður.
Andmælendur gerðu ýmsar
athugasemdir við ritgerðina og
lögðu spurningar fyrir doktors-
efnið, en af því spunnust ýmsar
fróðlegar og skemmtilegar um-
ræöur. Luku báðir andmælendur
miklu lofsorði á ritgeröina, scm
þeir sögðu vera samda af vand-
virkni og yfirgripsmikilli kunn-
áttu í viðfangsefninu, og fögn-
uðu þeir því að slíkt rit skuli
nú hafa bætzt við lagabókmennt
ir íslendinga.
Hinum nýbakaða doktor var á-
kaft fagnað með lófataki, þegar
Ólafur Jóhannesson, forseti laga
delldarinnar, lýsti því yfir, að
hann væri réttkjörinn dr. juris
við lagadeild Háskóla íslands
eftir að doktorsvömin haföi far-
ið fram.
Dr. juris Gunnar Thoroddsen
er þriðji maðurinn, sem hefur
lokið doktorsprófi við lagadeild
Háskólans, síðan hann var
stofnaður. Hinir em dr. juris
Björn Þórðarson, sem varöi rit-
gerði sína „Refsivist á íslandi
1761—1925“ árið 1927 og dr.
juris Þórður Eyjólfsson, annar
andmælendanna, sem varði rit-
gerð sína „Um lögveð“ 1934.