Vísir - 26.02.1968, Blaðsíða 10

Vísir - 26.02.1968, Blaðsíða 10
m V1SIR . Mánudagur 26. febrúar 1968. Grlskir hérshöfðingjar sendir i útlegðarvist t frétt frá Aþenu segir, að Andreas Hprchelmann hershöfð- ingi, yfirmaður 20. skriðdrekaher- iylkisins í Norður-Grikklandi er Konstantfn konungur gerði hina misheppnuðu byltingartilraun sína í desember, hafi verið ger útlæg- Vatnsagi —■ !»->• 1. Síðu. og Smáraflöt. Viða lét vatnið sér nægja að slökkva miöstöðvarelda og „skola kjallarana aö innan“, eins og maðurinn komst aö orði, en þó náði vatnið inn £ eina íbúðina og náði að fleyta lausum húsgögnum og lá við að „dívanar o. fl. þess háttar flyti út úr íbúöinni". Margir Keflvíkingar stóðu því i austri og notuðu skjólur, ásamt mótordælum til að bjarga verðmætum frá skemmdum. Áttu því margir ó- næðissama nótt í Keflavík um helg- ina. Blaðið hafði einnig tal af Hjör- leifi Óiafssyni, fulltrúa Vegagerð- arinnar og spurði hann um ástand veganna. Hjörleifur sagði að mikill vatnsagi væri víða á vegum á Snæ- fellsnesi hefði Bláfeldará, í Staðar- sveit, flætt yfir veginn og væri hann nú ófæe sem stæði. Víða stæði vatn á vegum, en heflar reyndu að ræsa það fram og lagfæra „vegina, en þeir væru víða holóttir $á Suð- urlandsundirlendi. Hiörleifur kvað vegina ekki hafa skemmzt, enn sem komið væri, af völdum úrkomunn- ar, en á slíku væri ekki mikil hætta fyrstu vikuna, en hins vegar væri hætt við skemmdum ef þiö- viðriö og úrkoman héldu áfram. Að sjálfsögðu myndaðist aurbleyta og hvörf í vegina, ef svo héldi fram sem horfði, og yrði þá að tak- marka öxulþunga bifreiðanna. — Hjörleifur sagði, að þetta ætti fyrst og fremst við um Mosfells- sveitarveginn, en þar væri gífurleg umferð. Þegar blaðið spuröi Hjörleif um ástand vega úti um landið, sagöi hann að vegurinn um Holtavörðu- heiði hefði verið ruddur fyrir helg ina, en eitthvað hefði rennt i hann síðan og væri tvfsýnt fyrir stórar bifreiðir að fara um hann núna. Hins vegar stæði til aö ryðja hann á morgun og þá yrði að öllum lík- indum fært til Akureyrar, en nokk- uð er síðan Öxnadalsheiöi var rudd. Oddsskarð var rutt í síðustu viku og er nú fært um flesta vegi aust- anlands, þó varla nema fyrir fjór- hjóladrifsbíla sums staðar. Vegur- inn í Axarfirði hefur vérið lokaöur undanfarið, en þó hefur verið fært milli Kópaskers og Raufarhafnar undanfarið og nú stendur til að ryðja veginn milli Þórshafnar og Bakkafjaröar en það er jafnan gert einu sinni í mánuði, vegna að- drátta. TIL LEIGU Til lelgu nálægt miöbænum 1—2 j herbergi með aðgangi að eldhúsi, gegn þvi að gæta ungbams á dag- inn. Reglusemi áskilin. Upplýsingar í sfma 21589 eftir kl. 6. ur tU Gohirae-eyjar, af öryggis- ástæðum. Sagt er, að fknm aðrir háttsettir liösforingjar verði sendir til eyjarinnar til útlegöarvistar. Trygve Brafteli í boði AEþýðuflokks- félags Reykjavíkur Trygve Bratteli, formaður norska Verkamannaflokksins, kemur hing að til lands á fimmtudaginn í heim sókn til Alþýðuflokksfélags Reykja víkur. Heimsókn hans er í tilefni 30 ára afmælis félagsins, en þaö varð 30 ára nú á laugardaginn. Verður Trygve Bratteli heiðurs- gestur félagsins í afmælishófi þess á föstudaginn. Trygve Bratteli á að baki lang- an feril í stjórnmálalífi Noregs. Hann varö fjármálaráðherra í stjórn Gerhardens, en tók við for- mennsku í Verkamannaflokknum, þegar stjórn Gerhardsens fór frá 1965. Sjónvarp — m->- 9. síðu. get ég ekki talið mér trú um að hún sé sú lekabytta, sem sumir vilja vera láta .... .... Við vitum öll, að ein- angrun landsins er rofin. Hver mundi vilja kalla yfir okkur landfastan hafís til að spyma gegn þessari þróun? Og innan fárra ára er alheimssjónvarp möguleg staðreynd. Hvar stönd- um við þá, ef rétt er sem fram haldið er af sumum að við séum nú þegar hætt komnir? Heim- urinn er að verða ein heild, vís- indin brjóta niður landamærin á sama tíma og skammsýnir I^ólitíkusar reisa múra. Ekki er ég í neinum vafa um að vísindin gangi meö sigur af hólmi í þess- ari viðureign, mér er nær að halda sem betur fer.“ „ Austri“ skrifaði í Þjóöviljann grein, sem ber titilinn „Hernám hugarfarsins". Þar segir m. a.: „Sá bandaríski hrammur, sem lykur um ísland er klæddur í silkihanzka; sumir láta sér vel líka hvaö áferðin er mjúk, og aðrir þykjast ekki einu sinni finna fyrir átakinu. Þaö her- nám, sem er hættulegast og af- drifaríkast er hernám hugar- farsins; hræðist eigi þá sem líkamann deyða, en geta eigi deytt sálina, var einu sinni sagt í hernumdu landi. Fyrir rúmum áratug kallaði Morgunblaðið hernámið illa nauðsyn, sem bæri að aflétta við fyrsta tækifæri; nú er það orðinn sjálfgefinn hluti af framtíðinni. Eitt sinn var sagt að engir umgengjust hernámsliðið nema stjórnmála- menn og skækjur; nú er sjón- varpi dátanna boðið inn á þús- undir Islenzkra heimila, ekki sfzt tfl að gleðja bðmm að sðgn. Fyrlr nokkrum dðgum var þess meira að segja getið í fréttum útvarpsins sem einhvers á- nægjulegs atburðar sem gerzt hefði á dvalarheimili fyrir van- gefin böm að hermenn vendu þangað komur sfnar með sæl- gæti fyrir jólin og hefðu nú síð- ast gefið bömunum sjónvarps- tæki sem hefði harft hin ákjós- anlegustu áhrif þar ekki síður en á Bessastöðum." Þetta em dæmi um, hversu skiptar skoðanir manna em á Keflavíkursjónvarpinu, en skoðanakönnunin sýnir þó betur en blaðagreinar ritstjóra og framámenn, hver vilji fólksins er. Hafnarframkv. — »»-> 16. síðu. unni er gert ráð fyrir að vöru skemmur rísi, svo og aörar byggingar tilheyrandi sjávarút- veginum. Framkvæmdir við hina nýju hafnargerð hófust vor ið 1966 og er gert ráð fyrir að þeim Ijúki eftir fjóra til fimm mánuði. Einhvern næsta dag mun birtast viðtal við sveitar- stjórann f Höfn, hér í blaðinu, en fréttaritari Vísis á staðnum hafði það viðtal og ennfremur birtast myndir með viðtalinu sem fréttaritarinn tók fyrir blað ið. Verkföll — m->-1. siðu. ur meirihl. fékkst fyrir þessari heimild. Atkvæðagreiðslan hef- ur aftur á móti haft þau áhrif að ekki verður tekið á móti loðnu í Vestmannaeyjum, þar til úr rætist. Verzlunarmenn héldu samn- ingafundi með atvinnurekend- um á laugardaginn. Sverrir Her- mannsson, formaður Landssam- bands ísl. verzlunarmanna, sagði I viðtali við Vísi í morg un, að hann vildi engu spá um, hvort verzlunarfélögin boðuðu verkföll. Það færi eftir þróun mála i þessari viku. Sverrir sagði, að það heföi komið í Ijós á fundinum á laugardaginn, að verðtrygging launa væri ekkert bannorð i eyrum atvinnurek- enda og hefði orðiö samkomulag um það meginstéfnuatriði, að laun skyldu vera verðtrvggð að öllu jöfnu, þó að atvinnurekend ur t'Idu það óframkvæmanlegt nú. Samkomulag varð um að skipa undirnefnd til að ræða vísitölumálin og heldur hún sinn fyrsta fund kl. 5 í dag. Hans Sif — »->■ 1- Síðu, um, en aftur á móti höfðu yfir- breiðslur yfir lestir færzt úr stað, svo að einhver sjór hefir komizt í lestirnar. Þegar björgunarmenn komust um borð í skipið torveldaði ísing þeim starfið, og urðu þeir að vinna talsvert við að höggva hana f ourtu. Björgunarmenn voru á tveimur bátum, Glað, 36 tonna bát frá Húsa vík, og Ólafi Bekk, 155 tonna bát frá Ólafsfirði. Séxtán manns sam- tals fóru frá Húsavík, en þeim bættist nokkur liðsauki frá Rauf- arhöfn og Ólafsfirði. Skipið Hans Sif er tæplega tveggja ára gamalt, smíðað £ Hol- Iandi, eitt af 17 skipum hins danska skipafélags. Það mun hafa verið tryggt fyrir 2,7 millj. d. kr., en fyrir áramót munu eigendur skipsins hafa lækkað vátrygginguna um 600 þús. d. kr. Fulltrúi frá hinu danska vátrygg- ingafélagi reyndi að komast út i skipið á laugardag, en það tókst ekki þrátt fyrir að veður væri gott, en til að hægt sé að komast um borð þarf vindátt að vera af suöri eða rétt austan við. Mikið af alls konar tækjum ó- skemmdum er um borö i skipinu, og verða þau að líkindum boðin út seinna í vetur. Sitmarið 37 — 16. síöu. son og dótturina Edda Þórarins- dóttir. — Er það fyrsta meiriháttar hlutverk hennar hjá Leikfélaginu, en hún útskrifaðist úr Leiklistar- skóla L.R. í vor sem leið. — Þor- steinn Gunnarsson lýkur hins vegar prófi frá skólanum í vor og hefur áður farið með stórhlutverk hjá Leikfélaginu. Næsta verkefni Leikfélagsins er Hedda Gabler Ibsens og hafa æf- ingar á því verkefni staðið nokkrar vikur, leikstjóri er Sveinn Einars- son, en titilhlutverkið leikur Helga Bachmann. Með önnur hlutverk fara Jón Sigurbjörnsson, Guð- mundur Pálsson, Guðrún Ás- mundsdóttir, Helgi Skúlason, Áróra Halldórsdóttir og Þóra Borg. Nýlega var svo byrjaö að æfa gamanleikinn „Leynimel 13“ eftir Þrídrang, sem er dulnefni þeirra kunnu leikhúsmanna Indriða Waage, Emils Thoroddsen og Har- alds Á. Sigurðssonar. — Þetta er smellinn „farsi“, sem leikinn var í Fjalakettinum í byrjun stríðsins og fékk þá mjög góðar viðtökur. Leikstjóri verður Bjarni Steingríms- son. . .ætlað er að frumsýna „Leyni- melinn" með vorinu. Tóp og fjör — 1»—> 16. síðu. stöðukoná, sem afhenti Guöjóni stærðar blómvönd frá starfs- fólkinu. Yfirlæknirinn. Guð- mundur Karl Pétursson, flutti afmælisbarninu skörulega árn- aðarósk við þetta tækifæri. Síðan sungu viðstaddir: „Táp og fjör og frískir menn, finnast hér á lanf’ enn“! Guðjón frá Finnastööum hef- ur óbilað minni, en heyrnin er farin að bila og fyrir þrem ár- um hætti hann geta lesið, vegna sjóndepru. Hann hefur lengst af ævinni verið á Finnastöðum, síðustu áratugina hjá Katli syni sínum. sem þar býr myndarbúi. Þegar athöfninni í Fjórðungs- sjúkrahúsinu lauk. fór gamli maöurinn á stjá, klæddist og bjó sig til bæjarferðar. en eftir há- degi dvaldi hann hjá öðrum syni sínum, Þorvaldi brúarsmið á Akureyri, þar sem margt ætt- in^ia var saman knmið, allt nið- ur í fimmta ætL’:ð Þriðji sonur Guðjóns, Þórir, er Iátinn fyrir nokkrum árum. Konu sína, Andreu Margréti Árnadóttur. missti Guðjón fyrir 40 árum, eftir 35 ára hjúskap BPLLA Vilduð þér gjöra svo vel að rýma til í kringum plötuspilarann yðar, fröken Bella. Tilkynning. Sá sem hefur tekið 9 bandhesp ur og 1 knippi úr syðri forstof- unni á Bergstaðastíg 17, geri svo vel og láti þær aftur á sinn stað Sé hann þurfamaður og geti gefið sig fram vill eigandi bandsins góðfúslega gefa honum helmine þess eða annað í þess stað. Vísir 26. febrúar 1918. fllKYNNíNGAR Kve.ifélag Hallgrímskirkju heldur fvrsta fund sinn í hinu nýja félaesbe'mdi i norður álmu kirkiunnar fimmtudagin'- 29. febrúar k’ 8 30 e.h Ö'rin'? fólki 1 söfn”ðinum sérstaklp'- boðið St.reneiasveit úr T<sr>u<" arskólanum leikur S”av- Takobsdóttir rifhöfnndur f'"‘ frásöpuhátf Báðir sðkrar—e-- arnir flvtia ávarn Ksff! — :ð urn norðurHvr' S(i-— Árshátið Siálfsbiargat i Rewi vík verður i Tiarnarhúð 9 mar n.k SÖ.T’ Asgrimssafn Bergstaðastrn M p- onið sunnuHa"=> nr'ð'uH'' w fimmtiiH"„a frá kl I 30 Listasafn Einars lónssonar e lokað um Oákveðinri ríma Landsh^'mcatn talands Sá*na húslnu við Hverfisi»ötu l.estrarsalm er oninn alla virka daga kl 10- ’? 13- 19 og 20- 7' nema lauaardaea kl 10—1? ■ 13—19 s« l»»r er nnínn alls v»n/ dana kl 13 — 15 % Borgarbökasafr Revkiavíkur Aðalsafn Þin*»holtssrræti ?9A i'mi 12308 Mánud -föstud kl 9—12 og 13 — 22 Laugard kl 9—12 og 13—19 Sunnud kl 1' -19 Jtibúln Hólmgarði 34 og Hots vallacötu 16. Mánud — föstud kl 16—19 Á mánud er útlánadeilri fyrir fullorðna i Hólmgarði 34 opin til kl 21. ------------------- t ------------------------- Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö viö andlát og jaröarför eiginmanns míns, ÞÓRÐAR JÓNSSONAR bifreiðarstjóra. Sérstakar þakkir færi ég Vörubílstjórafélaginu Þrótti og gagnfræðaskólasystkinum hans. Fyrir hönd vandamanna Sigriður Þorvarösdóttir. Steypuhrærivél til sölu Til sölu lítið notuð og vel með farin hálf- tunnu steypuhrærivél. Uppl. í síma 32392.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.