Vísir - 26.02.1968, Síða 8
8
VISIR . Mánudagur 26. febrúar 1968.
VISIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
RÍtstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sími 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuöi innanlands
1 lausasölu kr. 7.00 eintakiö
Prentsmiöja Vísis — Edda hf.
Ábyrgð arkitekta
]\ylega kvað Hæstiréttur upp dóm, sem mun hafa
veruleg áhrif á byggingamál hér á landi. Dómurinn
fjallaði um skaðabótaskyldu vegna galla, sem komu
fram á nýbyggðri fbúð. Verktakinn og meistarinn
voru dæmdir skaðabótaskyldir, og vakti það enga at-
hygli. Hins vegar vakti mikla athygli, að arkitektar
hússins voru einnig dæmdir skaðabótaskyldir.
í dómnum var sök arkitektanna talin fólgin í því,
að þeir fylgdust ekki með framkvæmd verksins. Það
má því segja, að þeir hafi orðið fórnardýr nýs skiln-
ings á eðli starfa arkitekta hér á landi. Allir vita, að
mjög sjaldgæft er, að arkitektar hafi eftirlit með bygg-
ingu húsa, sem þeir hafa teiknað. Þótt arkitektar eigi
raunar að heita húsameistarar á íslenzku, hafa hvorki
þeir né húsbyggjendur litið á þá sem slíka.
Dómurinn hlýtur að hafa verulegar breytingar í för
með sér, ef litið er á málið sem prófmál. Hann hlýtur
að leiða til þess, að arkitektar gerist raunverulegir
húsameistarar, eins og þeir eru í flestum öðrum iönd-
um. Þeir munu þá ekki lengur geta tekið störf sín eins
léttilega og áður. Er ekki að efa, að það mun hafa
mjög bætandi áhrif á íslenzkan byggingariðnað og
draga úr margvíslegum mistökum í mannvirkjagerð.
Ef litið er til langs tíma, mun dómurinn einnig efla
stétt arkitekta. Þeir verða lykilmenn við byggingu
húsa, en ekki aukaaðilar eins og áður. Verkefni þeirra
munu vaxa og álitið einnig, ef vel tekst til. Ef þeir
standa sig eins vel og menntun þeirra gefur tilefni
til, mun dómurinn smám saman verða til að efla sóma
þeirra.
En dómurinn gefur einnig tilefni til almennra hug-
leiðinga um ábyrgð. Það er því miður allt of algengt
hér á landi, að menn beri ekki næga virðingu fyrir
starfi sínu. Ábyrgðarleysi og trassaskapur koma fram
á fjölmörgum sviðum, hjá forstöðumönnum, sérfræð-
ingum og embættismönnum. Segja má, að þetta hafi
komizt í vana vegna skorts á aðhaldi.
Ef til vill gefur dómurinn mönnum tilefni til að
sætta sig ekki við ábyrgðarskort á ýmsum öðrum
sviðum. Það er ekki vanþörf á, að dómstólarnir fái
til meðferðar fleiri prófmál um ábyrgð í starfi. Það
virðist vera virkasta leiðin til að auka þá ábyrgðar-
tilfinningu og starfsvirðingu, sem nú skortir svo mjög
hér á landi.
Sinnaskipti á þessu sviði eru ekki aðeins mikilvæg
fyrir viðskipti og önnur mannleg samskipti manna,
heldur hafa einnig verulegt þjóðhagslegt gildi. Það
fara ómæld verðmæti forgörðum á hverju ári vegná
núverandi ástands. Á þessu sviði hefur þjóðin allt
aðvinna. i,-
irn íif
Fundur um Pueblo í Panmunjom.
Yiðbúnaði til várnar
hraðað sem mest má
verða í Suður-Kóreu
1 Suður-Kóreu er nú hraðað
sem mest má verða viöbúnaði
til landvarna gegn innrásariil-
raunum frí Norður-Kóreu. Svo
mikils þyklr við þurfa, áð
stjórnin hefur fyrirskipað stofn-
un -þjóðvarnarliðs, án þess að
leita samþykktar þingsins —
sem raunar mun vafalaust fást
— og skírskotað til gamallar
lagaheimildar um ráðstafanir
til verndar öryggi iands og
þjóðar.
í þessari vamaáæt! n er
innifalið, aö stofna varnarsveitir
fyrrverandi hermanna, og einnig
veröur stofnað til leyndarþjón-
ustu sem nær til alls landsins,
til þess að hafa vakandi auga
á hvers konar starfsemi komm-
únista.
Stjórn Suður-Kóreu hefir ver-
ið sérlega vel á verði vegna áð-
urgreindrar hættu og ekki sízt
eftir að „smyglaö" var inn í
landtö sveit vopnaðra flugu
manná, sem höfðu fengiö það
hlutverk í hendur, að myrða
sjálfan ríkisforsetann. og eft’
að könnunarskipið PUEBLO var
hertekið og flutt til hafnar '
N.Kóreu, jókst enn kvíöi manna
og öryggisleysi, og málin tekin
upp af nýju við Bandaríkia
stjórn, um aukna, nauðsynlega
vemd til þess að verja landið
láta her Suður-Kóreu fá betri
vopn, en mikill hluti hersveita
S.K. hefir gamaldags riffla
Einnir var fariö fram á aukna
flugvélavemd Bandaríkjanna og
látið var í það skína, að S.K.
kynni að neyðast til að kveðja
heim herlið það. sem hún sendi
til Suöur-Vietnam.
Ein af ástæöunum fyrir þvi,
að auknum varnarframkvæmd-
um er hraöað er sú, aö vorið
nálgast, en þá verða hlíðar fjall-
anna um miðbik Kóreuskaga
þaktar lággóðri. sem innrásar-
sveit'. eiga auðvelt með að leyn-
ast í.
Talsmaður S.K.-stjómar til-
greindi allt þetta til sönnunar
á nauðsyn aukinna varna án taf-
ar, og -hefði Chung Hee Park
ríkisfcrseti því undirritað um
þetta tilskipun.
Kim Sung Hee, varaformaður
stefnuskrámefndar stjómar-
flokksins, sagði samtímis, að
kvaðning einnar milljónar
manna f þjóðvarnarherinn, byrj-
aði í næsta mánuði. Og þegar
þessari skipulagningu er lokið
hefir 600.000 manna her Suður-
Kóreu sér til stuðnings þjóö-
varnarher, sem i em tvær og
hálf milljón manna.
Minna má á. sbr. það sem
að ofan segir, aö það var 21.
jan. sem komið var f veg fyrir
banatilræði flugumannasveitar-
innar við forsetann — og
tveimur dögum síðar var könn-
unarskipið Pueblo hertekið.
Leyndarþjónustan suður-
kóreska kveðst hafa vitneskju
um að áformað sé, að norður-
kóreskir flugumenn, þjálfaðir
til hermdarverka, muni á vori
komanda gera margar tilraunir
til á:isa á stofnanir og menn.
Starfsemi þjóðvámarliðsins
verður tvíþætt og aðskilin.' í
fyrsta lagi er um vopnaða
þjóðvarnarliðsmenn, til þess að
berjast gegn innrásarflokkum,
en í hinum arminum verður ó-
vopnað lið, :em fær það hlut-
verk að hafa upp á kommúnist-
um meðal íbúanna.
)U Chian am'r’ssadot Noröur-
Vietnams í Moskvu sagöi í skiln
aðarveiziu, sem honum var hald
in að lokinni Stokkhólmsheim-
sókninni, að hann hefði gert
það sem stjórn hans bauð hon-
um, og kvaðst hann vona, að
heimsóknin yrði tii aukinnar
velvildar og samstarfs Hann
kvaðst hafa lagt fram í Stokk-
hólmi þau fjögur grundvallar-
skilyrði, sem stjórn hans hefði
sett fyrir að hún settist að
samningaborði um frið f Viet-
nam.
.3 Fagerholm, forstjóri finnsku
áfengisverzlunarinnar, dvelst nú
i Las Palmas, og sagði hann. er
honum barst fréttin um, að hann
væri talinn lfklegastur næsti for
sætisráðherra Finnlands, að
hann hefði óskað eftir að taka
ekki oftar að sér embætti for
sætisráöherra Hann kvaö þaö
hafa komið sér algerlega á 6
vart, að talaö væri um sig sem
forsætisráðherraefni. Hann ei
nú á heimleið og vildi ekki ræð:
nálið frekara.
8 Brezka iðnrekendasamband
'ð telur vel horfa um brezkar
útflutning á næstu misserun-
svo vel, að menn eru farnir að
spá hagstæðum greiðslujöfnuð
á næsta fjárhagsári en vitaniegr
er þetta undir vinnufriðni”-
komið
■ Ráðherrafundur OAU (Ein
ingarsamtaka Afríku), haldinn
Addis Abbeba, hefur gert áæt1
. un um að halda áfram harát
unni gegn Rodesíu og Porf-' ■
Látin voru í liós vonbrigði
að einstök lönd stvðia sr5”'
lans Smiths * Rhodesíu — R”’-
ið ræddi m. a. áform stiórns
innar í Rhodesiu aö fá spr
flesta hvíta innfivtiendur f
landsins Lönd. sem skipta 4
fram við Rhodesíu ern Port" -
Cuður-Afríka os Janan
■ Noregur, Danmörk og Sví
þjóð hafa ákveðið þátttökn 1
heimssýningunni i Osaka í J'ap-
an 1670 og hafa hafið undirbún-
ing að þátttökunni.
■mmassajtilt