Vísir - 26.02.1968, Side 12
72
V í S IR . Mánudagur 26. febrúar 196b
Kvikmyndasaga eftir Jack Pearl
Grenier kveinkaði sér við þessa
augljósu einangrun. Gerði ósjálf-
rátt tilraun til að rjúfa hana. „Und
irforingi", ávarpaði hann Corey,
„þar sem svo vill til, að ég er einn
af þátttakendum í þessum leið-
angri, leyfist mér ef til vill að
spyrja hver sé tilgangurinn með
honum?“
Corey urraði, án þess aö líta til
hans. „Þér verður víst ekki meinað
að spyrja.“
Það varð drykklöng þögn, og
enn gerðist Grenier til að rjúfa
hana. „Ég á við hvað komi til, að
þetta senditæki er svo gífurlega
mikilvægt?" spurði hann.
Og enn varð þögn.
Grenier hnipraði sig saman í
skut gúmbátsins, sem var eins og
lítil, dökk þangbóla á hafinu.
Aldrei hafði honum liðið verr á
aevinni, aldrei orðið að þola slíka
auðmýkingu eða verið eins ein-
mana.
Þeir höfðu fallstrauminn með
sér, og það var brimlaust við sand
inn að kálla. Gúmbáturinn skopp-
aði á öldunum eins og korktappi.
Fyrri báturinn var í þann veginn
RYÐVðftN Á
að lenda. Davis höfuðsmaður og
menn hans stukku fyrir borð og
sjórinn tók þeim í mjaðmir, þegar
þeir ösluöu upp í sandinn meö gúm
bátinn á milli sín. Andartaki síöar
lenti bátur Coreys þar spöikorn
frá, og menn hans fóru í öllu eins
að. Þegar allt var komið í land
heilu og höldnu, báru þeir bát-
ana inn í frumskógarrjóðrið,
hleyptu úr þeim loftinu, skáru
gúmiö í smábúta og földu við trjá
rætumar. Aö því búnu skriðu
landgönguliðarnir hljóðlega inn i
skóginn.
Þegar þeir höfðu skriðið þann-
ig drjúgan spöl, gaf Davis höfuðs-
maður merki um að numið skyldi
staðar.
„Hvemig lízt ykkur á?“ spurði
hann, þegar þeir lágu allir saman
hlið við hlið og störðu inn 1 myrkt
laufþykknið.
Corey varð fyrir svörum. Hann
hvessti augun og starði fram undan
sér. „Ég held að allt sé í lagi“, varð
honum að orði. „Hvað álítur þú?“
Hann beindi spurningu sinni að
George, manninum með radaraug-
un.
Í3FREIÐÍNA
Þér veljið efnin, vönduð vinna.
Gufuþvottur á mótor kostar kr. 250.00
Gufuþvottui, albotnþvottur.undirvagn kr. 600.00
Ryðvört undirvagn og botn. Dinetroi kr. 900.00
Ryðvöm undirvagn og botn, Tectyl kr. 900.00
Ryðvöm undirvagn og botn Encis fluid kr. 600.00
Ryðvöm undirvagn og botn Oiíukvoðun kr. 450.00
Alryðvöm. Tectyl utan og innan kr 3500.00
Ryðvarnarstööin Spitalastig 6
FLJÓT OG GÓÐ ÞJÓNUSTA.
ÓDÝR 0G GÓÐ ÞJÓNUSTA
George svipaðist um. „Ég kem
ekki auga á neitt grunsamlegt",
svaraði hann.
„Gott“, tautaði Davis höfuðsmað-
ur. „Gott svo Iangt, sem það nær.
Nú skríðum við Steve dálitinn spöl
á undan“, mælti hann lágt, „en þið
bíðið með skotbúnar byssumar og
fylgist með okkur“.
Höfuðsmaðurinn og undirforing-
inn skriðu inn í þykkniö. Hinir
héldu kyrru fyrir og miðuðu byss-
um sínum báðum megin við þá.
Loks nam Corey staðar við digran
trjábol, reis á fætur og lét hallast
upp að honum. „Ailt í lagi, enn
sem komið er“, mælti hann lágt.
„Þey-þey“, hvíslaði Davis höfuðs-
maður og hlustaði. Eitthvert það
hljóð hafði náð eyrum hans, sem
ekki samrýmdist sjávargnýnum úti
við sandinn eða þytinum í laufinu.
Corey heyrði það líka. Þeir drógu
báðir upp marghleypurnar og
skriðu skamman spöl í átt á hljóð-
ið. Innan andartaks sáu þeir bjarma
af varðeldi f gegnum laufiö. Þeir
skriðu enn nær eins hijóðlega og
þeim var unnt, unz glufa í lauf-
þykknið varö fyrir þeim og þeir
sáu þrjá japanska hermenn sitja
að snæðingi við eld í dálitlu róðri.
Spölkom frá þeim, gat að líta
riffla þeirra í stæðu.
Corey undirforingi kinkaði kolli
til Davis höfuðsmanns. „Við gæt-
um ef til vill komizt fram hjá þeim,
án þess þeir yrðu nokkurs varir?“
hvíslaði hann spyrjandi.
Höfuðsmaðurinn hleypti brúnum.
„Það væri allt of mikil áhætta",
hvíslaði hann. „Það er aldrei að
vita nema þeir finni þefinn af okk-
ur, og geri viðvart í herstöð sinni.
Eða þeir veiti okkur eftirför og
kæmust aftan að okkur, og hvað
þá? Það er vissara að sjá svo um,
að þeir verði hvorki tii frásagnar
né annars".
Corey undirforingi kinkaði kolli
til samþykkis. Hann setti hljóðdeyf
inn á marghleypu sfna og höfuðs-
maðurinn fór eins að.
„Þá það“, sagði höfuðsmaðurinn
og miðaði marghleypunni. Ég tek
þann magra til athugunar, þú þann
feita“.
Skothvellimir heyrðust naumast.
Tveir af japönsku hermönnunum,
annar grannvaxinn, hinn feitlaginn,
hnigu dauðir niður við eldinn, en
sá þriðji starði á þá sem steini lost-
inn. Svo kom hann auga á blóð-
blettina á einkennisbúningi þeirra,
rak upp óp um leið og hann spratt
á fætur og seildist eftir riffli sínum.
Þeir Davis og Corey skutu báðir
samtímis og hann féll dauður niður
hjá félögum sínum.
„Þá er þessu lokið“, mælti höfuös
maðurinn lágt um leið og hann reis
á fætur og ætlaði að ganga að eld-
inum. Corey var lfka lagður af stað,
en það var eins og hann fengi eitt-
hvað hugboð um hættu á næsta
ieiti, og hann nam staðar. Um leið
veitti hann því athygli, að rifflam-
ir í stæðunni við eldinn vom fjórir
en ekki þrfr. Hann rak upp lágt
viðvörunaróp, en það var um sein
an.
Fjórði japanski hermaðurinn
skauzt fram úr skugganum, vinstra
megin við höfuösmanninn, sem
snerist leifturskjótt tíl varnar og ■
miöaði marghleypunni. Hann náði
þó ekki að þrýsta á gikkinn, sá
japanski stökk á hann og rak hníf
í síðu hans. Davis höfuösmaður
stundi, missti marghleypuna úr
hendi sér en greip í öxl árásar-
manninum.
Þegar Corey sá, að hann gat ekki
skotið án þess að eiga á hættu aö
særa höfuðsmanninn, bölvaði hann,
stakk marghleypunni í hylkið,
stökk á þann japanska, skellti hon-
um niður og settist klofvega ofan
á hann, svo dró hann upp marg;
hleypuna og skaut. Hleypti af
hverju skotinu á eftir öðru f höfuð-
ið á japanska hermanninum.
Eldhúsinnrétting fyrir
3—5 manna fjölskyldu,
ásamt:
Stálvaski
Uppþvottavél „Blanchard'
Eldavél „Siemens“
Lofthreinsara „Xpelair"
Verðfrá
kr.68300Q9
ElDHIISBi
LAUOAVIQI 133 slml *1178B
Sendið mér nánari upplýsingar um
hinar hagkvæmu
flLEIGHT“-Innrétilngar. II
Heimlli:
KLIPPIÐ ÚT OG SENDIÐ
T
A
R
Z
A
N
tarzan: raw/u's pevEk-
has bzckew jprrrrr
ty EDGJlR RlCS BURROUOHS
VOO GO, œAR...IF THIS TRiee WILL
HAVE ME, I WOtlLD STAV AND TSACH
TH£M OF THE WORLD BSVOND/J^—rA
~~\l V ^JRl/she WISHES TD STAV,
1 V Bfe 'jf l CHIEF, IF vou wish:
ZANA IS 6UILTY, CMIEF NYALA
SEB HOW HE RUNS TD ESCAPE -
-1 THE TRIBE’S WRATH/,-------rí
HOLP your >
ARROW, TARZAN.'...
HE WILL GBT HlS
JUST REWARP FRCWl
THE JUNGLE ANWALSl
THE SADNESS OF YOUp. >
LEAVINS, TARZAN, IS TCMPERÉP
BV THE JOY OF HER STAVING/
„Zana er sekur, Nyala foringi. Sérðu
hvernig hann forðar sér undan refsingu
þjóðflokksins“.
„Ekki skjóta Tarzan, villidýrin munu
sjfi honum fyrir hæfilegri refsingu“.
„Tarzan, hitinn hefur lækkað“.
„Ágætt, Beth, þá er tími til að Ieggja
af stað“.
„Þú ferð. Ef þeir vilja hafa mig, þá vil
ég vera hér og fræða þá“.
„Hún vill vera hér kyrr, ef þið viljið,
foringi".
„Gleðin yfir að hún ætlar að dvelja hér j
bætir upp hryggðina yfir að þurfa að j
kveðja þig, Tarzan“.
(Uam
Þér getið
sparað
Með því að gera við bílinn sjált
ur. Rúmgóður og bjartur salur.
Verkfæri á staðnum. Aðstaöa til
að þvo, bóna og ryksuga bílinn.
Nýja bílaþjönustan
Hafnarbraut 17 — Kópavogi.
Sími 42530.
Heilsuvernd
Síðasta námskeiö vetrarins í
tauga- og vöðvaslökun og önd-
unaræfingum fyrir konur og
karla hefst miðvikud. 28 febr.
Uppl. i sfma 12240.
Vignir Andrésson.
FráHekju
Frá Jfeklu