Vísir - 26.02.1968, Síða 16
Mánudagw 26. febrúar 1968.
MIKLAR HAFNARBÆTUR í HÖFN
/ vor mun lokið gerð nýrrar hafnar austur />or og munu 2000
tonna skip geta lagzt að hinum nýja hafnargarði
Guðmundur Karl Pétursson yfirlæknir og Ingibjörg Magn-
úsdóttir forstöðukona afhenda elzta Eyfirðingnum blóm-
vönd á 100 ára afmælinu.
„Táp og fjör og
frískir menn ',
s'óng starfsfólk Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri til heiðurs Guðjóni Jónssyni 100 ára
★ Það var uppi fótur og fit,
þegar tíðindamaður Vísis kom
í Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri á föstudaginn var tll þess
að heilsa upp á og mynda
Guðjón Jónsson frá Finnastöð-
um í Hrafnagilshreppi í Eyja-
firði, sem átti 100 ára afmæli
þann dag.
Þama lá hann á stofu 1 í
handlækningadeild, ásamt nokkr
um öðrum mismunandi gömlum
körlum. En í sjúkrahúsinu hefur
öldungurinn veriö undanfarna
þrjá mánuöi til hressingar.
Skömmu eftir að tíöindamaö-
ur var kominn aö rúmi Guðjóns,
bar að starfsfólk sjúkrahússins
í tugatali, og í broddi fylkingar
voru yfirlæknir og deildarlækn-
ar, framkvæmdastjóri og for-
»-*- 10. síða.
Um þessar mundir er unnið að gerð nýrrar hafnarupp-
fyllingar í Höfn í Hornafirði og ennfremur er verið að dýpka
höfnina. Dýpkunarskipið Hákur, hefur undanfarið unnið að
dýpkun hafnarinnar og mun skipið verða við þá iðju fram
á sumar.
Áætlaö er að hafnargerðin tonna skip að geta lagzt að garð
kosti 12 til 15 milljónir króna, inum. 1 dag er höfnin hins veg-
en að henni lokinni eiga 2000 ar þaö grunn, að við hefur leg-
Myndin er frá Höfn í Hornafirði og sýnir hina nýju uppistöðu og dýpkunarprammann „Hák“.
(Ljósm. H. P.).
Sjálfvirkir bruna-
boðar í M.A.
Kerfið leysir af vókumennina og hefur
þegar gefið góða raun
ið að út- og innflutningur hafi
stöðvazt um höfnina og hefur
það að sjálfsögðu verið baga-
iegt fyrir byggðalögin umhverf
is. Gert er ráð fyrir þvf að hinn
nýi hafnargarður verði tekinn í
notkun í vor, en á uppfyiling-
10. síöa.
Jókull Jakobsson i Iðnó:
Bregður sér í
„fínna hverfí"
— i leikritinu „Sumarið 37", sem
frumsýnt verður á miðvikudag
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýnir á miðvikudaginn nýtt leik-
rit eftir Jökul Jakobsson og er
bað fjórða verk hans, sem sett
er upp í Iðnó. Það ber nafnið
„Sumarið ’37 og er leikurinn lát-
inn gerast í Reykjavík á okkar
ffmum.
Helgi Skúlason er leikstjöri sýn-
ingarinnar og sagði hann á blaða-
mannafundi í Iðnó í gær, að Jökull
slægi í þessu verki sínu á nýja
strengi. Til þessa hefur hann látið
leikrit sín gerast í gamla bænum,
Vesturbænum), og lýst lífi aimúga-
'ólks. („bakhússfólks”), en nú
iregður hann sér austur fyrir Læk,
■ betri hverfi borgarinnar og lýsir
■nnbyrðis átökum í „betri slekt“.
Fjölskyldufaðirinn og aðalper-
sóna leiksins er gróinn útgerðar-
maður og „spekúlant". Hann leik-
ur Þorsteinn Ö. Stephensen.
Tengdadóttur hans leikur Helga
Bachmann, soninn Helgi Skúlason,
tengdasoninn Þorsteinn Gunnars-
10. síða.
íslendingar, þessi mesta bruna-
þjóð heims, liafa lítið gert af því
að koma sér upp eldvarnarkerfum j
í húsum sínum, en þó eru til ein-
staka hús, bar sem komið hefur
verið fyrir siálfvirkum brunaboð-
um.
Sl. sumar var sett upp heilt
brunaboöakerfi í gamla mennta-
skólahúsiö á Akureyri, þar sem
30 manns búa f vist, en um 450
manns dvelja yfir daginn, meðan
á kennslu stendur. Kerfið, sem er
sænskt (L.M. Ericsson), var tengt
um allt hús og brunaboöunum kom
ið fyrir á öllum þeim stöðum, þar
sem nokkur hugsanlegur möguleiki
var fyrir því, að eldur gæti komið
upp, — inni í fatahenqium, hvað þá
annarsstaöar. Ef hiti hefði ein-
hvers staðar fariö upp fyrir ákveð
ið mark, myndi brunaboðinn setja
j hávært bjöllukerfi í gang og gera
þannig vart við hættuna.
Reynsla fékkst á kerfið fyrir
stuttu, en þá ofhitnaði olíuketill í
skólanum, sem hefði jafnvel getað
orsakað íkveikju, ef ekki hefði orð-
ið vart viö það strax. 4 símum
hefur verið komið fyrir í skólan-
um með beinu sambandi við
slökkviliðið og þegar kerfið var
reynt f síðustu viku f samráði viö
slökkviliðið, komu slökkviliðsmenn
á vettvang tveimur og hálfri mín
útu eftir að bjöllurnar fóru í gang.
Áður höfðu verið vökumenn í
skólanum, 'sem vöktu um nætur af
ótta við eldsvoða, en nú hefur kerf
ið leyst þá af og þykir um leið
öruggara.
JÚPITER SELDI
2.8 MILLJÓNIR
— Sjö togarar s söSuferðum
Togararnir hafa gert góðar
sölur í Þýzkalandi aö undan-
förnu. Júniter se'.di i Cuxhaven
á þriðjudaginn fyrir um 2,8
milljónir íslenzkra króna, eöa
225 tonn fvrir 196261 mark.
Hallveig Fróðadóttir seldi einn-
ig í vikunni, 199 tonn fyrir
144.050 mörk í Bremerhaven og
FYRIR
Þorkell Máni seldi í Cuxhaven
á fimmtudag, 189 tonn fyrir
136.772 mörk eða tæpar tvær
milljónir fsl. kr.
Á næstunni selja í Bretlandi
Röðull og Sléttbakur og Sur-
price og Neptúnus í Þýzkalandi.
Afli torgaranna hefur verið
næsta góður að undanfömu, en
þeir hafa haldið sig á heimamið-
um, mest viö suð-vesturströnd-
ina.