Vísir - 16.04.1968, Side 3
í
fyrsta vetur lyftunnar og fyrsta
Skíðamót íslands í Jflfðarfjalli
eftir að hún var sett upp, segir
Hermann Sigtryggsson íþrótta-
fulltrúi Akureyrarbæjar. „Það
þarf ekki að fjölyrða um nyt-
semi skíðalyftunpar. Hún hefur
dregið miklu fleira fólk upp í
Hlíðarfjall en nokkru sinni hef-
ur tekizt áður. Þannig hefur hún
þegar stóreflt áhuga á skíða-
íþróttinþi og útiveru í Fjallinu,
og meðfram auðvitað bætt hag
Skíðahótelsins. Og á því er auð-
vitað enginn vafi, að lyftan hef-
ur stórlega greitt fyrir allri
framkvæmd Skíðamótsins nú.
Rekstursafkoman er jákvæð,
þrátt fyrir þaö, að þetta er
fyrsta helgin í vetur, sem veður
hefur leyft samfelldan rekstur."
Þetta mót markaði að vissu
leyti tímamót, því að veldi Sigí-
firðinga var að miklu leyti
hnekkt, fsfirðingar og Akureyr-
ingar skutust inn á milli tals-
vert víða og áttu sína íslands-
meistara.
Reynir Brynjólfsson frá Akur-
eyri vann stórsvigið á 1.43.4
mín, en ívar Sigmundsson frá
Akureyri tók silfurverðlaunin á
1.44.6, en Kristinn Benedikts-
frá ísafirði varð aö láta sér
nægja bronsið á 1,45.0. Það ó-
venjulega skeði hér að Sjglfirð-
ingur var ekki framar en í 25.
sæti. í stórsvigi kvenna áttu
Siglfirðingar hins vegar sigur-
vegarann en það var að sjálf-
sögðu Árdís Þórðardóttir, sem
fékk tfmann 1.33.4 en Karólína
Guðmundsdóttir fékk 1.35.4 og
Sigríður Júlfusdóttir frá Siglu-
firði 1.39.2.
f sviginu varð Hafsteinn Sig-
urðsson frá Siglufirði fslands-
meistari á 99.68 sek. samanlagt
en Samúel Gústafsson, ísafirði
annar á 102.46 samanlagt og
Magnús Ingólfsson, Akureyri,
varð þriðji á 104.46. Sigríður
Júlíusdóttir frá Siglufirði varð
sigurvegari f svigi kvenna á
88.90 samanlagt, sigraði þar
stöllu sfna Árdísi Þórðardóttur,
sem varð önnur á 89.08 en
þriðja varð Karólína Guðmunds-
dóttir, Akureyri á 91.58.
í Alpatvíkeppninni varð Haf-
steinn Sigurðsson hlutskarpast-
ur í karlaflokki (stórsvig og.
svig samanlagt) fékk 14.76 stig,
Magnús Ingólfsson, Akureyri
annar, 41.76 stig og ívar Sig-
mundsson, Akureyri þriðji með
54.61 stig. í Alpatvíkeppni
kvenna varð Árdís hlutskörpust
með 1.24 stig en Kárólína Guð-
mundsdóttir varð önnur með
30.80 stig. og Sigríður Júlíus-
dóttif þriðja með 39.16 stig.
Fljótamaðurinn Trausti Sveins
son varð íslandsmeistari í 15
km. göngu á 1.22.52 klst.,
Gunnar Guðmundsson frá
Siglufirðl annar á 1.23.45 og
þriðji Kristján R. Guðmundsson
frá ísafirði, 1.28.39. í 10 km.
göngu Í7 —19 ára sigraði fsfirð-
ingurinn Sigurður Gunnarsson
á 67.08 mín. fslandsmeistari í
30 km. göngu varð einnig
Trausti Sveinsson, Fljótamaður,
á 1.43.34, en Þórhallur Sveins-
son, Siglfirðingur, var annar á
1.47.44 og Gunnar Guðmunds-
son, Siglufirði þriðji á 1.48.41.
Ekki nægði Fljótamönnum
Trausti til að sigra f 4x10 km.
göngunni, þar urðu Akureyring-
Reynir Brynjólfsson, meistari
í stórsvigi.
ar fyrstir á 2:43.35, en Siglfirð-
ingar aðrir á 2.45.28 og Fljóta-
menn þriðju á 2.45.48, en sigur
Akureyringa kom talsvert á ó-
vart.
Steingrímur Garðarsson frá
Siglufirði varð íslandsmeistari í
skíðastökki með 227.6 stig
samanlagt, en Birgir Guðlaugs-
son varð annar og Sigurður
Þorkellsson þriðji, allir Siglfirö-
ingar, en þeir skipuðu 7 fyrstu
sætin í keppninni, Ólafsfiröing-
ar 2 þau síðustu, en aðeins 9
kepptu og virtust heldur ó-
burðugir í þessari fallegu
íþróttagrein ef dæma má eftir
sjónvarpskvikmyndum. Lengsta
stökkið í keppninni átti Birgir
Guðlaugsson 46.5 metra en
lengsta stökk Steingríms var
45 metrar. í norrænni tvíkeppni
(stökki og göngu) varð Birgir
Guðlaúgsson hlutskarpastur
meö 447.8 stig samanlagt.
Loks varö Akureyrarsveitin
hlutskörpust í flokksvigi á
459.92 sek. samanlagt en sveit
ísafjarðar næst á 476.78 saman-
lagt, þá sveit Þingeyinga á
496.55 og sveit Reykvíkinga á
498.15 sek.
........... ................. * ......................................................................
Úr stórsvigskeppninni.
Sigursveitin í 4x10 km boðgöngu, Akureyring arnir Sigurður, Stefán, Halldór og Júlíus.
„Við erum afar ánægð
ir og hamingjusamir. Ég
veit ekki til þess, að
neitt teljandi hafi farið
aflaga. Samvinna farar-
stjóra, keppenda og
starfsmanna hefur verið
snurðulaus með öllu.
Veður og færi í bezta
lagi, mannvirkin stó'r-
kostleg lyftistöng, en
vegurinn upp í Hlíðar-
fjall er að syngja sitt síð-
asta. Það hefur verið
eina vandamálið“, sagði
hinn gamalkunni íþrótta
frömuður Hermann Stef
ánsson, formaður móts-
stjórnar Skíðamóts ís-
lgnds að mótinu loknu,
en það var án efa fjöl-
mennasta og bezt heppn
aða mótið til þessa.
Hin nýja skíðalyfta í Hlíðar-
fjalli olli byltingu í mótshald-
inu. Hún var fullnýtt 5—6
klst. dag hvern, en í gangi nær
allan daginn. Eftir þennan
„EINOKUN AFLÉTT Á
ÍSLANDS
SIGLFIRZKRI
SKÍÐAMÓTI