Vísir - 09.05.1968, Síða 2
2
V1S IR . Fimmtudagur 9. maí 1968.
ÆTLAÐI EKKI AÐ VERA MEÐ -
ENDURHEIMTI ÞÓ ÍSL.TITILINN
0 Þaö verður vart á grönúm séð að Óskar Guð-
mundsson, íslandsmeistarinn í badminton hafi lagt
36 ár að baki sér. Óskar er alltaf jafn snarpur og
fljótur í hreyfingum á vellinum, og í æsispennandi
úrslitum um síðustu helgi vann hann aöalkeppipaut
sinn, Jón Ámason í úrslitum einliðaleiksins og end-
urheimti kórónu íslandsmeistarans af höfði Jóns,
en Jón Ámason vann 1966 og 1967, en þar áður
hafði Óskar unnið einliðaleikinn 5 sirínum.
Öskar Guðmundsson.
MELAVÖLLUR
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í knattspymu:
í kvöld kl. 20 leika
VALUR - VÍKINGUR
Mótanefndin
Saumastúlkur
Vanar saumastúlkur óskast. Tilboð merkt:
„4492“ sendist augld. Vísis fyrir mánudags-
kvöld.
1 „Ég ætlaði eiginlega aidrei að
vera með“, sagöi Óskar f við-
tali við Vísi í gærkvöldi. „Ég
var búinn að vera veikur í 3
vikur og varð að vera f pensilín
„kúr“ og taldi mig ekki í ,formi‘
til að lenda í hörkukeppni. Þetta
gekk þó betur en á horfðist.“
Óskar Guðmundsson er „sann
ur Vesturbæingur“. alinn upp f
KR ef svo má segja, stundaði
skíðaiðkun í fjöldamörg ár meö
KR, — og svo auövitaö knatt-
spyrnu. Fyrir 14 árum, þegar
Óskar fór að flkta við badmln
ton var hér heldur fátt um
félagskap fyrir þá fþrótt, aðeins
TBR starfandi og með því fé-
lagi lék Óskar f fjöldamörg ár,
eða þar til KR stofnaði sína
deild fyrir 4 árum, en þeirri
deild stjómar Óskar af rögg-
semi, og eru um 100 starfandi
innan delldarinnar.
„Mér finnst badminton á upp-
leið“, segir Óskar, „það eru
margir ungir menn að komast
upp á tindinn, þeir byrjuðu korn
ungir ,og það er einmitt það
sem til þarf. Það mætti segja
mér að þeir ættu eftir að ná
mjög langt, jafnvel að komast
sumir hverjir á góöan mæli-
kvaröa miðað við erlenda bad-
mintonmenn. Nú þarf bara að
hlúa betur að ungu mönnunum
þeir eiga ekki að þurfa að kaupa
rándýra tíma, félögin verða
helzt að hlaupa undir bagga. En
þá er það fjárskorturinn sem
allsstaðar kreppir að fþrótta-
hreyfingunni.
Óskar segir þaö skoðun sína
að meira þurfi að gera til aö
glæða skilning manna á bad-
minton og íþróttum almennt,
m.a. f sjónvarpi. Hann kvaðst
undrandi á áhugleysi sjónvarps-
ins á íþróttum, a.m.k. badmin-
ton, þar sem sjónvarpið hefði
t.d. ekki mætt til að sjá úrslit-
in í Islandsmótinu um helgina,
— tveim leikjum var seinkað
vegna þess aö búizt var viö
sjónvarpsmönnum á hverri
stundu, en án árangurs. Þá hef-
ur sjónvarpið daufheyrzt við að
sýna kennslumynd um badmin-
ton með beztu kröftum heims
m.a. Kops, Andresen og Borsch.
„Skemmtilegasta endupninn-
ingin úr badminton finnst mér
vera keppni, sem viö Einar Jóns
son háöum vestur í Stykkis
hólmi fyrir 10 árum gegn þeim
Walbom og Þóri Jónssyni í tvi-
liðaleik. Þetta var æsispennandi
aukaleikur, og framlengt, þá
loks tókst okkur að sigra. Það
voru áhorfendur, sem gerðu
spennuna enn magnaðri. Þeir
voru um allt, uppi í rimlum og
hvar sem þeir gátu hangiö í litla
íþróttasalnum“. Einar Jónsson
tók þátt í íslandsmótinu á dtig-
unum, er ekki alveg af baki
dottinn og var þetta í 20. sinn
sem hann var með f mótinu og
sýnir þetta að badminton er fyr-
ir menn á öllum aldri.
Samskiptin við útlönd eru eitt
af þeim málum, sem hiö nýja
badmintonsamband ætti að láta
til sín taka í framtfðinni var álit
Óskars, en sjálfur er hann í
stjórn sambandsins. Sagði hann
að athuga þyrfti með lands-
keppnir, og eins einstakar heim-
sóknir hingað og aö senda
menn utan til að læra ,en hann
sjálfur, Jón Árnason og Garðar
Alfonsson fóru utan til Dan-
merkur í hitteðfyrra í þessu
skyni og höfðu gott af.
— jbp —
Fram hefur ekki íariS frmn
— ef dæma má eftir leik þeirra við Þrótt i gærkveldi
Ein lélegasta gerðin af íslenzkri
vorknattspyrnu var leikin f gær-
kvöldi á Melavellinum, liðin,
sem léku að þessu sinni, voru
1. deildar Iiðið Fram og 2. deild-
ar liðið Þróttur, og mátti ekki
á milli sjá hvort liðið það væri,
sem Iéki í 2. deild.
Leikurinn minnti helzt á lélegan
Ieik í firmakeppni, og átti hann ekk-
ert sameiginlegt með leiknum milli
KR og Vals á mánudag, sem var
góður og lofaði góðu um komandi
knattspyrnuvertíð.
Þessi tvö lið sýndu ekkert seiít~
lofaöi framhaldi á því, vonandi
eiga þau þó eitthvaö betra til i
pokahorninu, og veitti þeim þá
ekki af að hrista það út sem fyrst.
Þeir 22 leikmenn, sem eltu boltann
í gær voru eins og 22 einstakling-
ar sem hver lék fyrir sig, og ekk-
ert kom við, hvort aö einhver ann-
ar væri með þeim f liði, flestar
sendingar voru á milli mótherja, og
örsjaldan gekk boltinn á milli fleiri
en tveggja samherja.
Ekkert markvert gerðist fyrstu 25
mín. leiksins, annað en miðjuþóf óg
langspyrnur, en þá tókst Fram að
skora sitt fyrsta mark, eftir mis-
tök í vörn Þróttar, og æfintýraút-
hlaup markvarðar þeirra.
Ólafur Ólafsson bakvörður Fram
óð upp með boltann og renndi hon
um framhjá tveim varnarleikmönn
um Þróttar, til Guðjóns Sveinsson
ar, sem renndi honum f tómt mark
ið eftir að markvörðurinn hafði
hlaupið á móti ,en of langt. Guð-
jón átti stuttu síðar „gulliö tæki-
færi“ þegar hann fékk boltann
fyrir innan markteig, nokkra senti
metra frá markinu, og með mark-
vörðinn úr leik átti hann ekkert
eftir, nema renna boltanum i n'etið
en fast skot hans var varið á línu.
Þá 'átti Elmar Geirsson skot í
stöng, stuttu sfðar og annað skot
hans í sí0ari hálfleik lenti einn-
ig f stönginni.
Tækifæri Þróttar voru fá í þess
um hálfleik að undanskildu
þrumuskoti Hauks Þorvaldssonar,
sem markvöröur Fram fékk beint
á sig.
Síðari hálfleikur var sízt betri
en sá fyrri, hvað knattspyrnu
snerti en nú bættist harkan í spilið,
og var því ekki að sökum að spyrja
um árangur. Á 15. mfn. átti mark-
vörður Þróttar annað „æfintýraút-
hlaup“ er hann komst alla leið út
fyrir vítateig, þar sem Einar Árna
son var aö gaufa með boltann og
hafði hann ekkert annað að gera
en að skjóta í tómt markið. Þrótt
arar sóttu öllu meira í seinni hluta
hálfleiksins, en sköpuðu sér engin
veruleg tækifæri.
Það voru því ánægðir áhorfendur
sem yfirgáfu Melavöllinn eftir þenn
an leik, óánægðir með leikinn og
knattspyrnuna (þá litlu sem hún
var) en ánægðir með að þess-
um leik var loks lokið.
Framliðið olli miklum vonbrigð-
um í þessum leik, en eftir glæsi-
legt sumar í fyrra, þar sem liðiö lék
til. úrslita í tveimur mótum, bjugg-
u?t menn við að liðinu hefði farið
FRAM, en það hefur-,það ekki gert.
að vísu vantaði nú Helga Númason
í framlínuna, sem var hréint út
sagt léleg, ef undan er skilinn leik
ur Elmars Geirssonar, en það er
Iítil afsökun fyrir lið sem getur
státað af sigurvegurum í flestum
unglingamótum liðinna ára, að
ekki sé hægt að finna mann, sem
fyllt getur stööU hans á vellinum.
Vörnin var betri hluti liðsins, með
Ólaf Ólafsson sem bezta mann, en
hann reynir ætíþ að byggja upp
spil, það sem tengiliðir geta ekki.
Sigurður Friöriksson var og sterk-
ur á miðjunni, og hirti allar háar
sendingar sem komu í átt að marki
Þróttarliðiö var lítið betra nú, en
í leiknum við Val á dögunum. —
Vörnin var betri hluti liðsins með
Jón Björgvinsson ,,æfingarlausan“
að mestu sem bezta mann. Axel og
Haukur léku nú aftur í framlínunni
og eru þeir ætíð hættulegir, sér-
staklega Haukur með sin föstu skot
Markvörðurinn Sigurður Jónsson
var ekki eins góður nú, og í leikn
um við Val, þar sem hann bjargaði
liðinu frá stórtapi, því að bæði
mörkin í þessum leik mega skrif-
ast á hans reikning fyrir ótímabær
úthlaup.
Dómari í leiknum var Valur
Benediktsson og dæmdi lítið, helzt
þá á brot, sem enginn sá, en
sleppti hinum sem allir sáu. klp.
England vann Spán 2:1
— Heimsmeistararnir halda jbv/ áfram i
Evrópubikarkeppni landsliða
Helmsmeistararnir ensku
unnu Spán í gærkvöld. með
2:1 í seinni leik liðanna og
hafa Englendingar því unnið
með samanlagt 3:1 og fara í
undanúrslit Evrópubikar-
keppninnar í knattspyrnu.
Um 120 þúsund áhorfend-
ur höfðu fyllt völlinn í Madr-
id til að sjá þennan mikla
leik, enda búizt við aS Spán-
verjar mundu heldur betur
sýna á sér vígtennurnrr eftir
að hafa tapað „aðeins 0:1 í
Englandi. I hálfleik hafði ekk
ert mark verið skorað, en í
síðari hálfleik skoruðu þeir
Peters og Hunt fyrir Eng-
land en Amancio fyrir Spán.
úwSiUf SfajCcgaaifáWlHffiiiygílMl 3