Vísir - 14.05.1968, Qupperneq 1
VÍSIR
58. árg. — Þrlðfudagur 14. maí 1968. - 104. tbl.
Ofsögum sagf af
verdgildi ísl.
myntar
— Hér koma menn með fulla
poka af skiptimynt og vilja selja
á yfirverði, sagði Jón Kjartans-
son í „Bækur og Frímerki“ á
Baldursgötu 11, en hann hefur
auglýst í blöðum eftir 10 aura
og 25 aura mynt og vill greiða
5 krðnur fyrir stykkiö.
m->- io. síöu.
Skorað á meim að skila
ólöglegum skotvopnum
Eftir 1. júni verða ólögleg skotvopn leituð
uppi — sérstaklega skammbyssur
■ Hefur einhver skammbyssu
í fórum sínum? Þá er tækifærið
núna til þess að losa sig við
hana, án þess að sæta refsingu
fyrir að hafa haft undir höndum
ólöglegt skotvopn.
NEYZLUVATNIÐ
Dómsmálaráðuneytið hefur sent
frtá sér opinbera tilkynningu, þar
sem segir:
„Með tilvísun til reglugerðar nr.
105 frá 1936, vekur dómsmálaráðu-
neytið athygli á þvi, að engum er
heimilt að eiga eða hafa í vörzlum
sínum skotvopn eða skotfæri án
sérstaks leyfis.
Er hér skorað á alla þá, sem hafa
í fórum sínum skammbyssur, riffla
önnur skotvopn eða skotfæri, og
ekki er leyfi fyrir, að skila þeim
nú þegar til lögreglu. Fram skal
tekið, að í mörgum tilfeilum er
- Ws
lliiil
'itrH'i1? '
yHjgjHHy í" ii'
Þannig er umhorfs við Langanes, en myndina tók fréttaritari Vísis á Akureyri,, Herbert Guðmundsson.
KLÓRBLANDAÐ
• Heilbrigðisnefnd samþykkti
fyrir nokkru tillögu þess efnis,
að tækjum, sem gera kleift að
klórblanda neyzluvatn, verði
komið fyrir við aðalvatnsæðar
borgarinnar. Eins og allir muna
mengaðist neyzluvatn borgar-
búa síðast núna í vetur í flóð-
unum, og þótti þá ekki hæft til
drykkjar, en erlendis er neyzlu-
vatn yfirleitt klórblandað að
staðaldri.
Blaðið hafði samband við borgar-
lækni, Jón Sigurðsson og sagði
hann að ekki yrði um að ræða að
neyzluvatnið yrði klórblandað,
nema þegar um einhvers konar
mengun á vatninu væri að ræða,
eins og t. d. var í flóðunum i
vetur. Eru tækin sem klórblanda
vatnið sjálfvirk og sett við aðal-
æð, en eins og stendur eru aðal-
æðar fleiri en ein, en veröa vænt-
anlega sameinaðar. Hafði blaðið
samband við vatnsveitustjóra,
Þórodd ‘Th. Sigurösson, og sagði
hann að þegar búið væri að sam-
eina aðalæðarnar þá yrðu klórblönd
unartækin fengin. Tækin sjálf eru
ekki mjög mikil í sniöum, en mæl-
ar sem þeim fylgja eru hins vegar
mjög fyrirferðarmiklir. Sagði
vatnsveitustjóri að óvíst væri hve-
nær tækin myndu koma, en það
yrði ef til vill næsta vetur.
hægt að fá leyfi fyrir öðrum skot-
vopnum en skammbyssu.
Ekki verður komið fram refsi-
ábyrgð á hendur þeim, sem sinna
áskorun þessari fyrir 1. júní næst-
komandi.
Að þeim tíma liðnum verður
gerð gangskör að því að leita uppi
slfk vopn, sérstaklega skammhyss-
ur. Verða mál viðkomandi manna
síðan tekin fvrir f sakadómi.“
Bílabraut#/ opnar í Reykjavík
Bílabrautir eru mjög vinsæiar erlendis meðal eldri og yngri, og nú hafa
nokkrir framtakssamir isiendingar komið upp fimm rafmagnsknúnum
bflabrautum, þar sem íslendingar eiga að geta spreytt sig á að stýra
litlum fjarstýrðum bílum. Undanfarnar þrjár vikur hefur verið unnið að
þvi aö koma brautunum fyrir á efri hæð hússins á homi Nóatúns og
Laugavegar, og vcrður liklega opnað um helgina. Framkvæmdastjóri
er Hafsteinn Sveinsson. — Myndin er tekin af bflabrautunum í Nóatúni
í morgun.
Glaður brauzt gegnum ísinn / nótt
— kominn fil Húsavikur með. skemmda skrúfu
*
— Isinn hefur gliðnað en ekki fjarlægzt
■ Húsavíkurbáturinn Glaður, sem var fastur í
ís vestur undan Kinnarfjöllum í gær, er hann hafði
farið út til að reyna að ná netatrossum Húsvíkinga,
brauzt í nótt gegnum ísinn og komst inn á Hús^-
víkurhöfn um 9 leytið í morgun, og hafði skrúfa
skipsins skemmzt eitthvað í ísnum.
Blaðið náði sambandi við
skipstjórann á m.b. Glað, Sigur-
björn Sörensen, og sagði hann
að þeir hefðu verið tvo sólar-
hringa fastir í ísnum, en fengið
mat sendan niður úr flugvél
Tryggva Helgasonar, þar sem
þeir vora aðeins með mat til eins
sóiarhrings. „Veður var mjög
slæmt í gær, en f nótt lægöi og
var eins og ísinn gliðnaði og
losnaði aðeins frá bátnum. Við
lögðum þá af stað mjög hægt
eftir lænum og vorum við 6
klukkutíma að sigla 4 mílna
leið. Við reyndum að fara eins
varlega^ og við gátum', en þó
mun skrúfan eitthvað hafa
skemmzt, og er nú verið að
athuga hana.“
Veður er nú gott á Húsavík,
en hvarvetna á Norðurlandi er
kalt f veðri og snjór yfir öllu.
Mikill snjór er á Austfjörðum
og færð afleit. Hafa borizt ís-
fregnir í morgun frá Norður-
og Austurlandi og virðist ísinn
vfðast hvar hafa gliðnað dálítið
í nótt, en hvergi þó hafa fjar-
lægzt iandið.