Vísir


Vísir - 06.06.1968, Qupperneq 3

Vísir - 06.06.1968, Qupperneq 3
V ws ' v/ , {," -tmUiW ...................................... ■' u: : ', LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA... Þad sparar ybut t'ima og óþægindi INNHEIMT USKRIFST OFAN Tjarnargötu 10 — 111 hæd -Vonarstrætismegin — S'imi 13175 (3lmur) i VlSIR . Flmmtudagur 6. júní 1968. Reykvíkingar kunna vel að meta nýju laugina að það væri svo vont að fara í Er við gengum á braut, heyrð- unglingar voru í meirihluta og kaf, vegna þess að þá væri svo um við hróp og köll að baki okk- skemmtu sér vel í lauginni glæsi erfitt að anda. ar og fór ekki á milli mála, að legu, sem risin er i Laugardal. ' "’V'" ■ * - - - — "SV/ ■'S'.wx ■■;. ■ ■ * :; ^íMkSk - Stundum getur verið kalt að koma upp úr, en þá er bara aö hlaupa sér til hita eins og þessir hressilegu drengir gera. iiWmm Já, það er gott að skella sér í heita karið og láta hreytuna líða úr sér eftir erfiði dagsins, hugsa þær eflaust þessar hraustu konur, sem höfðu brugðið sér f Laugardalinn. Sæmundur Pálsson, hinn kunni markvörður úr handknatt- leiksliði KR, sést hér vera að sóla sig ásamt syni sínum í grynnri endá laugarinnar. jyjyndsjáin brá sér í gær í nýju sundlaugina í Laugardal, en hún var opnuð s.l. laugardag. Margt var um manninn og virð- ast Reykvíkingar svo sannarlega kunna að meta hina nýju laug. Yfirfullt hefur verið þá daga sem hún hefur verið opin almenn- ingi. Var fjöldinn svo mikill i gær, að hleypa þurfti ofan i hana í hópum með klukkutíma millibili. Einkum er aðsóknin mikii af hálfu barna og unglinga, enda skólum flestum nýlokið. Útlit er því fyrir að nýja laugin ætli að leysa þá gömlu glæsilega af hólmi og er það vel, en marg- ir munu þó sakna gömlu laug- arinnar með nokkrum trega, enda verið viðkomustaður fjöl- margra árrisulla borgarbúa um áraraðir. Nýja laugin er mjög fullkom- ln að öllu leyti enda mjög til hennar vandað. Minnsta dýpi hennar er 85 cm en mesta 1.70 m. Fyrirhugað er, að síðar komi sérstök dýfingarlaug, en slíka laug hefur vantað mjög tilfinn- anlega hér á landi til þessa. Sundir er íþrótt iþróttanna, eins og Gísli Halldórsson, for- seti Í.S.Í., sagði við opnun laug- arinnar. Það hefur verið stund- að um aldaraðir hér á landi og eykst hróður þess eflaust enn, við tilkomu betri lauga sem þess arar. Ekkert er eins heilnæmt og að synda í tæru vatninu og láta síðan geisla sólarinnar þurrka sig. Er við höfðum 1 gær tekið okkur sæti á geislahituðum laug- arbarminum sáum við hve mikla möguleika laugin hefur upp á að bjóða. Sundkappar okkar fá nú tækifæri til að þreyta sund- keppnir við erlendar þjóðir á löglegum 'brautum, unglingar fá 50 m langa braut til að kaffæra hvorn annan og hinir eldri borg- arar fá fimm heit kör til að ræða saman í. Þarna var námskeið í sundi fyrir 6 ára börn og tókst þeim vel að halda sér á floti með aðstoð „kúta“, vatíísgusumar gengu í allar áttir og áhuginn var stórkostlegur. Einn snáðinn sagði okkur að verst við að læra að synda væri það, að maður blotnaði svo mikið. Annar sagði I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.