Vísir - 22.06.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 22.06.1968, Blaðsíða 1
58. árg. - Laugardagur 22. júní 1968. - 135. tbl. Árangurslausir fundir í sjómannadeilunni Kjaradeila sildarsjómanna og út- vegsmanna hefur nú staðið í fjóra daga, og lítið borið til tíðinda. Sáttafundir hafa verið haldnir all- oft án verulegs árangurs, en þess er að vænta, að skriður kæmist á málið, ef síldin léti á sér kræla, svo að um munaði. Fundirnir eru haldnir í Alþingishúsinu, og sýna myndir þær, er hér birtast þá, sem standa í eldlínunni fyrir hönd sjómanna annars vegar og útvegs- manna hins vegar. Síðasti fundur- inn var í gær og höfst. klukkan fimm síðdegis, og var hann ár- angurslaus, samkvæmt upplýsing- um Jóns Sigurðssonar, formanns Sjómannasambandsins. Næsti fund- ur hefur verið boöaður á mánu- daginn. REYKJA VIK verðtir vettvangur alþjóða- stjórnmálanna 400 útlendingar koma til NATO-fundarins um helgina ■ Nú um helgina munu um 400 erlendir menn koma til Reykjavíkur vegna vorfundar utanrikisráðherra aðildar- landa Atlantshafsbandalagsins, en hann hefst hér á mánu- dagsmorgun. Reykjavík, okkar rólega borg, mun á einu vet- fangi breytast í þýðingarmikla stjórnmálamiðstöð, þar sem rætt verður opinberlega sem í hljóði um margt það, sem hæst ber f stjórnmálunum á Vesturlöndum í dag. Tólf af fimmtán utanríkisráðherrum aðildarlanda Atlantshafsbandalagsins1^ munu hittast á árlegum vorfundum sínum, en auk þess munu mæta til fundarins fulltrúar þeirra þriggja utanríkisráðherra, sem ekki geta komið, þ.e. Debré frá Frakklandi (kosningar yfirvofandi), ráðherrann frá Luxembourg (þjóðhátíð) og ráð- herrann frá Ítalíu (stjórnarkreppa). að betri árangur náist, ef slíkar viðræður eru að einhverju Ieyti samræmdar í stað þess að hver sé að pukra í sínu horni. Það hefur valdið forráðamönn um aðildarlanda Atlantshafs- bandalagsins áhyggjum, hvað Varsjár-bandalagið hefur aukið hermátt sinn að undanförnu. T. d. hefur A-Þýzkaland eitt auk- ið hernaðarútgjöld sín á s.l. ári um rúm 60%. Rússar hafa einn- ig aukið mjög á flota sinn á Miðjarðarhafi eftir ,,Sex daga striðið“ milli Araba og ísraels- manna. Miðjarðarhafið, sem hef- ur verið tiltölulega friðlegt svæði, hefur síðan þá breytzt í eldfima púðurtunnu. Floti Rússa er talinn slaga hátt upp í 6. flota Bandaríkjamanna að því er varö ar herskip og jafnvel taiið senni legt, aö kafbátar þeirra á hafinu séu fleiri. Utanríkisráðherrafundurinn mun gefa ráðherrunum gott tæki færi til þess að ræða ýmis mál „bak við tjöldin" auk þeirra viðræðna, sem munu eiga sér stað á sjálfum fundunum. Mikill viðbúnaður hefur verið gerður til að hýsa allan þennan fjölda manna meðan á fundin- um stendur og munu fundar- menn búa á öllum hótelum borg- arinnar fyrir utan einkaheimili, sendiherrabústaði og heimili ræðismanna. Vegna erfiðleika við að hýsa fundarmenn hafa allir aðilar að fundinum fallizt á, að hafa aðeins % hluta þess mann afla, sem þeir eru vanir að hafa á fundum sem þessum. Úrskurður Kjaradóms: Utanríkisráðherrarnir, sem mæta munu á fundinum, eru: Rusk (USA), Brandt (V-Þýzkal.), Harmel (Belgíu), Stuart (Bretl.), Hartling (Danmörku), Lyng (Noregi), Luns (Hollandi), Pipi- neiis (Grikkl.), Nogueira (Portú- gal), Caglayangel (Tyrklandi), Cadieux, vararáðherra frá Kan- ada. Opinber dagskrá fundarins hef ur ekki verið lögð fram, en eins og á flestum ráðherrafundum er ekki búizt við, að rætt verði um hernaöarmái, nema að mjög tak mörkuðu leyti. Harmel-skýrslan, sem síðasti fundur ráðherranna samþykkti í Bruxelles í- desem- ber s.l., verður sennilega nokk- uð rædd, sérstaklega að því ér varðar framtíðarskipulag Atl- antshafsbandalagsins og hvernig bæta megi sambúð austurs og vesturs. Atlantshafsbandalagið er þess mjög hvetjandi, að viðræður eigi sér staö milli ríkisstjórna i A- Evrópu og V-Evrópu, en telur Lægstlaunuðu rikisstarfs- mennirnir hækka • í gær var tekiö fyrir í Kjara- dómi mál Kjararáðs fyrir hönd starfsmanna ríkisins gegn fjár- málaráðherra f.h. ríkissjóðs. Var fjallað um launakjör opinberra istarfsmanna, og á hvern hátt þau skyldu breytast í samræmi við samning ASÍ og vinnuveitenda frá 18. marz síöast liðnum. í lögum um kjarasamninga opinberra starfs- manna segir svo: „Nú verða almennar og veruleg- ar kaupbreytingar á samnings- tímabili, og má þá krefjast endur- skoðunar kjarasamnings án upp- sagnar hans.“ Kjaradómur telur samningana frá 18. marz gefa m~> 10. síöa. i Ökumenn akr. of HRATT í hægri umferðinni. Árekstrar eru of margir þrátt fyrir allan áróð- urinn og sama spennan er að verða á götunum og fyrir breyt- inguna. — Þessi harði árekstur varö í gærdag á Hringbrautinni — einn af mörgum. — Bíllinn á myndinni skemmdist mikið og lagðist hreinlega niður að aftan. — Nánar um umferðina þriðju viku H-umferðarinnar á bls. 16 í dag. ísland úr NATO? Skoðanak'ónnun Visis á mánudag skýrir frá afst'óðu þjóðarinnar til þessarar spurningar ■ Á mánudaginn hefst ráð- herrafundur NATO í Reykja- vík. Á mánudaginn verða ef til vill einhverjar mótmæla- aðgerðir andstæðinga NATO. Á mánudaginn birtir Vísir niðurstöður úr skoðanakönn- un, um hvort þjóðin sé fylgj- andi því, að Islendingar segi sig úr NATO. ■ Vísir hefur framkvæmt skoðanakönnun, sem að þessu sinni nær til allrar þjóð arinnar. Á mánudag segir frá því, hversu mikill hluti landsmanna er mótfallinn að- ild að Átlantshafsbandalag- inu. ■ Til þessa hefur skoðana- könnun Vísis ekki náð til allrar þjóðarinnar, en nú hef- ur verið kannað álit manna í öllum sýslum landsins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.