Vísir - 25.06.1968, Side 1
VISIR
58. árg. - Þri8f«3agwr 25. fúnf ,1968. - 137. tbl.
Flugeldarnir gætu sprungið
— á 200. skipa„rakettur" teknar úr umferð
I Skipaskoðun ríkisins hefur
látið afturkaiia á annað hundr-
að flugelda. sem seldir hafa ver-
ið í skip og báta frá því á ára-
mótum . þar sem komið hafa
í ljós nokkur gölluð stykki úr
þessari sendingu frá verksmiðj-
unum.
Sagði Hjálmar Bárðarson, skipa-
skoöunarstjóri, er Vísir spurði hann
eftir þessu í morgun, að þetta
væri gert til öryggis. Aöeins hefðu
fundizt fáein gölluð stykki, en á-
kveðið hefði verið að kalla inn
alla sendinguna og létu verksmiðj-
urnar í té nýja flugelda í staðinn.
Sagði Hjálmar að hætta gæti ver-
ið á að gölluðu flugeldamir virkuöu
ekki heldur spryngju enda þótt
það væri ekki víst yrði að gæta
fyllstu varúðar í þessum efnum.
Búið er að ná um helming þess-
ara flugelda inn en auglýst hefur
verið opinberlega eftir afganginum.
NA TO-löndin munu bjóða Varsjárbania-
laginu skipulagða afvopnun Evrópu
Einnig búizt v/ð harðorðri yfirlýsingu vegna
Berlinarmálsins i sameiginlegri yfirlýsingu,
eftir lok ráðherrafundarins i dag
■ Viðræður utanríkis- um, en ráðherrarnir og
ráðherra Atlantshafs-
bandalagslandanna hóf-
ust um kl. 11 í gær og
stóðu fram undir kl. hálf
átta í gærkvöldi með hlé
aðrir fundarmenn gerðu
hlé á fundinum um há-
degið í gær til að snæða
hádegisverð hjá forseta
íslands, herra Ásgeiri
\
Ásgeirssyni. Viðræðurn-
ar hafa að mestu snúizt
um almenn málefni og
horfur í alþjóðamálum,
en þó hafa tvö mál verið
ofarlega á baugi og gætu
gert fund þennan sögu-
legan.
Búizt er við því, að ráðherr-
arnir samþykki f sameiginlegri
yfirlýsingu í fundarlok í dag, aö
lýsa yfir vilja sínum til að draga
úr vígbúnaði í Evrópu ef sam-
bærilegar aðgerðir kæmu til af
hálfu Varsjárbandalagsins. —
Mörgum ráðherrunum mun finn
ast að sérstakrar stífni hafi gætt
í viöhorfum Sovétstjómarinnar
10. síða.
Upplausn í aðildarlöndunum sízt
hættuminni en utanaðkomandi árás
sagði Emil Jónsson, utanrikisráðherra, um uppbot æskufólks
9 Ég tel ótrúlegt að nokkurt að-
ildarlanda Atlantshafsbandalagsins
muni segja sig úr því eftir 1969,
sagði Emil Jónsson, utanríkisráð-
herra, á lokuðum fundi utanríkis-
ráðherranna i hátiðarsal Háskólans
í gær. — Báðir stjómarflokkarnir
á íslandi hafa lýst sig fyigjandi
áframhaldandi þátttöku í NATO.
Þá hefur form. stærsta stjórnarand
stöðuflokksins (Framsóknarflokks-
ins) iýst sig fylgjandi áframhald-
andi þátttöku.
Það er auðvitaö hlutverk alþing-
ís íslands aö taka ákvörðun um
betta, sagði Emil, en þessir þrír
flokkar hafa 50 af 60 þingmönnum.
Emil ræddi nokkuð um innan-
ríkiserfiðleika sumra aðildarland-
anna t.d. um upplausn og óeirðir,
sem æskufólk hefði staðið mikið
að. Þessi innanaðkomandi upplausn
er sízt hættuminni en utanaðkom-
andi árás sagði hann.
Það er alvarlegt vandamál, hve
mikil lfjöldi ungra manna er á
móti Atlantshafsbandalaginu, sér-
staklega í þróuöum iðnaðarlöndum,
en þetta mun vera að miklu leyti
vegna þess að þeir gera sér ekki
grein fyrir mikilvægi og forsendu
bandalagsins, sagði Emil og lagði
til að meira væri gert til að upp-
lýsa almenning um mikilvægi sam-
takanna.
Stewart, utanríkisráðherra Bret-
lands, var á sömu skoðun.
Hann taldi það mjög eðlilegt að
ungur maður, sem ekki þekkti for
sögu bandalagsins og gerði sér ekki
grein fyrir því upp úr hvaöa jarð-
vegi það væri sprottið, setti sig á
móti því. Annað væri nær því
óeðlilegt. Þetta unga fólk ætti að
muna, sagði Stewart, að NATO
var stofnað til þess að menn hefðu
leyfi til að láta skoðanir sínar í
Ijós og einmitt það gerði því kleift
að vera með mótmælaaðgerðir gegn
því.
Fataðist stjórnin og velti
splunkunýjum bil
Bílvelta varð á Reýkjanes-
brautinni um 300 m sunnan viö
vegatollskýlið kl. 10.20 í gær-
morgun. ökumanninum fatað-
ist stjómin á ökutæki sínu, þeg-
ar hann var á leið ti! Keflavíkur
til starfa sinna. Hafði hann eitt
andartak slakað á árvekninni
við stýrið og ekið utarlega í
hægri kantinum, en þegar hann
áttaði sig á þvi, hve utarlega
hann var kominn, greip hann
fát og hann sveigði bílnum
snöggt til vinstri. Fór þá bíllinn
hvert "fir veginn og út af hon-
um vinstra megin. Þar valt
bíllinn heila veltu og kom niður
aftur á hjólunum. Ökumaðurinn
fékk ekki svo mikið sem elna
skrámu, en bíllinn, sem var að-
eins 3ja vikna gamall, Cortina,
stórskemmdist.
Tveir mótmælamanna leiddir til sakadóms í gær.
30 handteknir utan við Háskólann:
Mótmælendur rufu
■í fyrirheit sfn
ségir lögreglan — Vissum ekki um samninga
lógreglu og forsvarsmanna, segja mótmælendur
Allmiklar mótmælaaögerðir
voru hafðar í frammi framan við
MIKIL SILD A ST0RU SVÆÐI
— segir Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur
— Sjómenn og útgerðarmenn þrátta um
fiskverðið og kjörin
Ennþá er allt í óvissu
um síldveiðamar í sumar.
Sátarnir liggja í höfn og
T'ldarverðið hefur ekki ver
ið ákveðið. Samningaum-
leitanir við sjómenn á síld-
flotanum, sem staðið
hafa undanfarna daga hafa
ekki lr'tt til niðurstöðu og
er helzt deilt um auknar
örorkubætur, sumarfrí og
fatapeninga. — Landssam-
band útgerðarmanha held-
ur fund um málið að Sögu
á morgun.
Þær fréttir berast hins vegar
norðan og austan ú, hafi að síld
sé þar mikil á stóru svæði.
Sagði Hjálmar Vilhjálmsson, þeg-
ar blaöið náði sambandi við hann
í gær að nær samfelld síldarbreiöa
væri á 3600 fermílna svæöi um 700
— 800 mílur norður og austur af
Austfjörðum.
Rússnesk skip hafa fengið góðan
afla litlu noröar og austar. Eitt
norskt skip, sagði Hjálmar að hefði
einnig| verið á þessum slóðum og
fengiö góðan afla í fyrradag, en
fleiri Norðmenn munu nú vera á
leið á þessi miö.
Mikil hreyfing er á síldinni á
þessum slóöum. en Hjálmar taldi
aö ekkert benti til þess að sú
hreyfing væri vestur á bóginn,
heldur virtist síldin vera á hring-
sóli) fram og aftur um svæðiö í
átuleit. Átan sem þarna væri væri
orðin gömul og nýir átustofnar
virtust lítið bæra á sér. Sagði
Hjálmar því að búast mætti við
verulegri hreyfingu á síldinni, þeg-
ar hún færi aö leita eftir nýrri átu.
— Of snemmt er hins vegar að
spá nokkru um göngu síldarinnar
upp að landinu ennþá.
Háskólann í gær, er ráðherra-
fundur Atlanzhafsbandalagsins
var settur þar. Voru um 30
manns handteknir, og fluttir til
fangageymslunnar, og var slepnt
eftir miðnætti s.I. nótt þeim síð-
ustu.
Lögreglunni og mótmælend-
um ber ekki alls kostar saman
um aðdraganda og orsakir ólát-
anna, og ræddi VÍSIR við b. ðs
aðila í morgun, Bjarka Élíasson.
yfirlögregluþjón, og Jón Júlíus-
son leikara, en hann var einn
beirra, sem handteknir voru.
Vísir hafði í morgun samband
við Bjarka Elíassori, yfirlögreglu-
þjón, og sagðist honum svo frá at-
burðinum við Háskólann:
Þeir voru með sín spjöld og
höföu frammi síi. mótmæli á torg-
inu framan við Háskólabíó, er setn
ingarathöfn fundarins hófst. Var
það samkvæmt þeirra eigin ósk og
10. slöa.