Vísir - 03.07.1968, Qupperneq 5
V1S IR . Miðvikudagur 3. júlí 1968.
1
I
Nú er tími
borðblómanna
„t'yrst blómin á borðið síðan
■*" matinn“, segir gamail
danskur málsháttur. Eins og við
vitum allar hafa Danir haft orð
á sér sem einstakir smekkmenn
um allt er víkur að húsbúnaði,
eru sælkerar hinir mestu og
kunna að búa til mat á afar
lystugan hátt. Danskar húsmæö
ur eru einnig þekktar fyrir
smekkvísi sfna í framreiðsiu
matar.
Nú er tími ferðalaga og blóm
anna ekki sízt. Margir leggja
leið sína til Danmerkur og marg
ar íslenzkar húsmæður sjá þar
ýmislegt skemmtilegt og fróð-
legt, sem viðkemur veizluhaldi.
Annað mál er að e. t. v. leggja
þær ekki í þaö að afla sér upp-
lýsinga um hvernig hinn eöa
þessi rétturinn er búinn til eða
hvernig húsmóðirin á heimilinu,
sem þær heimsóttu hafi farið að
því að útbúa borðið á svo
skemmtilegan hátt eða hvaða
ráð hún notaði til að allt tækist
sem bezt hjá henni.
Stundum er þó hægt aö koma
aðalréttinn. Við steik er afar-
fallegt að velja fallegar rauðar
rósi’-, en leggur þeirra er klippt-
ur það stutt að rósirnar fljóti á
fallega kopardiskinum, sem
valinn hefur verið. Blá blóm
fara afar vel við fiskrétti. Má
þá nota stjúpmæðurnar okkar,
sem viö getum ræktað úti í garö
inum en einnig má hafa rauðar
nellikur til að skreyta meö.
Lambasteik eöa kjúklingar, með
þeim má nota þau blóm, sem
á boðstólum eru á sumrin en
á vorin eru páskaliljur tilvald-
ar til skreytinga með þeim rétt-
um.
Steikur á haustin, þá er kom
inn tími ávaxtanna og mætti
búa til ávaxtapíramíta á miðju
borðsins úr appelsínum, eplum,
perum og sítrónum og skreyta
hann efst, með vínberjaklasa.
Danska húsmóöirin tæmir
stundum grænmetisgeymsíu
sína viö boröskreytinguna.
Hægt er að skreyta boröið með
rauðum, þroskuðum tómötum,
hvítkáli og rauðkáli, sem sett
er í litríkan haug ásamt gúrk-
um, steinselju, grænum og rauö
um piparávöxtum (græni pipar-
ávöxturinn er kominn í búðir
hér), sem blandað er milli græn-
metisins ásamt salatblöðum. Við
þessa borðskreytingu geta ís-
lenzku húsmæðurnar notað hug
myndaflugið óspart, einnig þarf
•hún ekki að vera kostnaðarsöm,
því borðskreytinguna má svo
nota í rétti dagana á eftir. Til
þess að lífga ofurlítið upp á
má nota sítrónur til að fá gula
litinn. Einnig holar danska hús-
móðirin innan kartöflur og not-
ar þær sem kertastjaka, sem
hún setur sinn hvorum megin
borðskreytingarinnar eða felur
meðal grænmetisins.
Dönsk húsráð
heim meö nokkra fróðleiksmola
og í dag ætlum viö að rabba
um blöm og mat og höfum
svo nokkur dönsk húsráð í
pokahorninu.
Hin dugiega danska húsmóðir
kýs blóm á borðið með það fyr-
ir augum að þau fari vel við
Skeriö þrjá skurði hvorum
megin í fiskinn fyrir glóðar-
steikingu til þess að koma í
veg fyrir að hann svigni við
steikinguna.
Ef súpan er of sölt bætið við
hráum kartöflusneiðum. Sjóðið
í nokkrar mínútur og færið
kartöflusneiðarnar upp úr. End-
úrtakiö, unz súpan eða jafning-
urinn er orðinn mátulegur.
Setjið þunnar gúrkusneiðar í
skál meö einum bolla af ediki og
einum bolla af vatni og kryddiö
með svörtum pipar og sykri eftir
smekk. Kæliö f ísskápnum og
berið með nærri öllum köldum
réttum og smurðu brauði.
Grátið ekki — segir í gömlum
dönskum nálshætti — þegar
þið sneiðið niður lauk Hafið
brauðmola milli tannanna og
andið 1 gegnum munninn.
Ef gaffli er stungið f laukinn
áöur en hann er matreiddur á
hann að halda lagi og ekki
detta í sundur.
Ef rjóminn þeytist ekki, á
fyrst að kæia hann vel þá má
bæta við kældri eggjahvítu og
þeyta hann aftur.
Kalt te er ágætis áburðar-
vatn á pottaplöntur.
Vætið alltaf eggjaskurnina
áður en eggið er sett í vatniö
til suðu — til þess að koma
í veg fyrir að það springi.
Sprungið egg er enn hægt að
sjóða ef nuddað er röku salti
á sprunguna áður en eggiö er
sett í sjóöandi vatnið.
TiLKYNNING
Framkvæmdanefnd stuöningsmanna Krist-
jáns Eldjáms hefur opna skrifstofu fyrst um
sinn í Garðastræti 17 2. hæð, sími 83800.
Þeir sem erindi eiga við nefndina vinsam-
legast snúi sér þangað.
Snyrtistofan Iris
er flutt af Skólavörðustíg 3 a á HVERFISGÖTU 42
(áður Snyrtistofa Sigrúnar).
Sími 13645. Ath. breyttan síma.
Vinningurinn er ósótfur
Mercedes Benz bifreiðin kom á nr. 15940.
Dregið var aðeins úr seldum miðum, þann 16.
júní s.l.
HAPPDRÆTTI REYKJAVÍKURDEILDAR
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Sumarnámskeið
Síðara sumarnámskeið Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur verður haldið tímabilið 8. júlí til
2. ágúst og er ætlað börnum á aldrinum 10
til 13 ára.
Þátttakendur fá tilsögn í íþróttum, föndri,
hjálp í viðlögum, bókmenntum o.fl. Kynning-
arferðir verða og farnar um borgina og ná-
grenni.
Innritun á námskeiðið fer fram á Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur í dag, 3. júlí, kl. 10-12
og 2-4. Þar verða og veittar nánari upplýsing-
ar.
Þátttökugjald er kr. 550,00 fyrir tímabilið
og greiðist við innritun.
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur
FILMUR QG VELAR 5.F.
FRAMIÖLLUN-
99
STÆIK
SVART
& LITFILMUR
FILMUR OG VELAR S.F.
SKÓLAVÖRDUSTÍG 41 SIMI 20235 - B0X 995
1