Vísir - 03.07.1968, Blaðsíða 10
10
V í SIR . Miðvikudagur 3. júlí 1968.
Norræn tolla-
ráðstefna
hófst í morgan
í morgun klukkan tíu hófst í
hátíðasal Háskóia íslands norræn
ráðstefna um tollamál. Torfi Hjart-
arson, tollstjóri, er þar í forsæti,
en ekki tókst að hafa tal af hon-
um i morgun, þar sem hann lagði
sig eftir hinn harða sáttafund í
sjómannadeilunni og svaf fram á
síðustu stund. Var hann vel að
blundinum kominn, þar sem tekizt
hafði að leysa deiluna, sem nærri
hafði kostað milljónir króna í töp-
uðum afla.
Annars er tollaráðstefnan haldin
á vegum Nordiska administrativa
raadet, og sitja hana um 25
manns. ísland geröist aðili að
þessu samkomulagi 1957. Ráðstefn-
an er einkum merk vegna athugana
ísienzku ríkisstjórnarinnar á að-
ild að fríverzlunarbandalaginu
EFTA, en önnur Norðurlönd eru
aðilar að því, Finnland þó auka-
aðili. Þá hefur rikisstjórnin stefnt
að lækkun ýmissa tolla. Hugsan-
lega gætu Norðurlönd reynt að
samræma tolla sína að einhverju
leyti, að minnsta kosti gefst mönn-
um tækifæri á að skiptast á skoð-
unum, er þeir koma saman í Há-
skólanum í dag og næstu tvo daga.
Laxveiði —
9-*- 16. siðu.
„Á aðal„tökustaðnum“ fann
ég gaddavír — - heljar mikla
dræsu! Félagi minn var búinn
að margfesta í henni, svo ég óð
út í til að athuga þetta.. Hún
var auðsjáanlega búin að gera
mörgum grikk, því ég fann 1
henni 5 flugur, 8 eða 9 maðka-
öngla, 6 sökkur og ómælanlega
lengd af girni.“
Það er eitthvað það versta,
sem veiðimenn geta hugsaö til,
þegar veiöistaðir eru eyðilagðir
fyrir þeim, vegna slæmrar um-
gengni mannanna.
SKÍPAFRÉTTTR
SKIPAUTGtRB KIKISINS
Frá og með 3. júlí er vöru-
móttaka daglega til Austfjarða-
hafna, Vestfjarðahafna og
Noröurlandshafna.
Ms. Herðubreið
fer vestur um land í hring-
ferð 9. þ. m. Vörumóttaka dag-
lega til áætlunarhafna.
Kveðjudansleikur
verður haldinn í Sigtúni í kvöld kl. 9 fyrir þýzku
knattspymumennina.
Hljómsveitin Orion ásamt söngkonunni
Sigrúnu Harðardóttur skemmta.
Móttökunefndin.
Ibúð til sölu
120 ferm. efri hæð við Miklubraut til sölu.
Óhindrað útsýni. Uppl. í síma 10427 eftir kl. 6
á kvöldin.
Nýjung — Nýjung
HÚSEIGENDUR — SKIPAEIGENDUR
Höfum háþrýsta vatns- og sandblástursdælu
(10.000 lbs.) til hreinsunar á húsum, skips-
lestum, skipsskrokkum o. m. fl.
Ath.: Sérstaklega hentug til hreinsunar á hús-
um undir málningu.
Uppl. í síma 32508 e. kl. 19.00.
Martröð —
m-> j síöu.
aö sjálfsögðu halda búskap áfram,
en ekki er fullvíst hverjar bætur
veröa á tjóni þeirra né heldur
hvaða ráð verða tekin með útveg-
un nýs búpenings.
Leiðrétting
Vegna fréttar í gær hefur Hall-
dór Vigfússon komið að máli við
blaðið og beðið um leiðréttingu.
Fréttin er viövíkjandi þeirri veiki,
sem vart varö við í vetur meðal
hreindýra. í fréttinni hefur nafn
veikinnar skolazt til, og hún er
nefnd garnaveiki en hið rétta nafn,
er Halldór gaf upp var garnaeitr-
un (enterotoxemia).
Hreingerningar. Hreingerningar.
anir menn, fljót afgreiðsla. Sími
S771, — Hóimbræður.
Gerum hreinar íbúðir, stigaganga
o. fl. Áherz* 1' iögð á vandaða vinnu
og frágang. Alveg eftir yðar til-
sögm Sími 36553.
Vélahreingerning Gólfteppa- og
húsgagnahréinsun Vanir og vand-
virkir menn Tdýr og örugg þión
usta — Þvegillinn sími 42181
Hreingerningar. Vanir menn. —
Fljót afgreiðsla. Eingöngu hand-
hreingerningar. Bjarni, sími 12158.
ÞJÓNIISTA
Reiðhjólaverkstæðið Efstasundi
72. Opiö frá kl. 8—7 alla virka
daga nema laugardaga frá kl. 8
— 12. Einnig notuð reiðhjól til
sölu. Gunnar Parmersson. Sími
37205.
Reiðhjól. Hef opnað reiðhióla-
verkstæðí í Efstasundi 72 Gunnar
Paimersson. Sfmi 37205. _____
Tek að mér r.f slá bletti með
góðri vél. Uppl. i stma 36417.
Garðeigendur — Garðeigendur.
Er aftur byrjaður að slá og hreinsa
garða. Pantið tímanlega i síma
81698. — Fljót og góff afgreiösla.
Sláum garða. Tökum að okkur að
slá grasfleti með orfi og ljá. Uppl
1 s'mtJrn 30fr»2_og 833Í6.________
Húseigandui — garðeigendur! —
Önnumst alls konar viögerðir úti
og inni, skiptum um þök, málum
einnig. Girðum og steypum plön
heliuieggjum og lagfærum garða
Sími 15928 eftir kl. 7 e.h.
Látið meisr-'rann mála utan og
innan Sími 19384 á kvöldin og
15461.
Húseigendur. Tek að mér glerí-
setningar, tvöfalda og kítta upp
Uppl. í síma 34799 eftir kl 7 á
kvöldin.
Slæ bletti með orfi. Sími 10923
eftir kl. 4.
Verkföll. J
© Nýlokið er hálfsmánaðar verk-«
falli flugmanna hjá brezka flugfé-J
laginu BOAC. Ekki hefir þó verið*
samið — en samkomulagsumleitan*
ir hafa verið hafnar. Allar flugvél-J
ar félagsins, sem annast flugflutn-*
inga milli landa, stöðvuðust erj
flugmennirnir fóru f verkfalliö. J
© í fyrradag náðist samkomulag*
um 5% kauphækkun hjá bandarísk- J
um farmönnum, en þeir voru þá»
búnir að vera þrjá sólarhringa í8
verkfalli og á þeim skamma tfmaj
stöðvuðust um eitt hundrað skip, •
og hefði verkfallið staðið lengij
heföu mörg hundruö skipa stöðv-»
azt. J
•
Hjartaígræðslur. •
© Framundan er, að haldin verðij
í Höfðaborg ráðstefna skurðlækna*
sem fengizt hafa við hjartaígræðsl-*
ur og verður einn’ helzti maðurj
hennar Barnard skurðlæknir, sem •
framkvæmdi fyrstu hjartafgræðslu J
í mann, sem heppnaðist. Nú ætlaj
skurðlæknarnir að bera saman •
bækur sfnar um fengna reynslu ogj
verður reynt að starfa sem mest í •
kyrrþey og innan strangvísinda-o
legra marka. Fundir verða sennilega J
flestir fyrir luktum dyrum. •
i ■ •
... •
í skyndi j
c
© Nokkrir vinir, samstarfs-I
menn og nemendur próf-J
essors Stefáns Einarssonar í sex«
þjóðlöndum hafa gefið út af-J
mælisrit honum ti’ heiðurs, enj
prófessor Stefán varð sjötugur á«
í sl. ári. Nýlega hefir háskólarektj
or afhent prófessor Stefáni ein«
tak af ritinu f umboði höfunda*
og forlagsins. f ritinu skrifaj
sextán kunnir fræðimenn þ.á.m.«
prófessorarnir Dáe Strömback.J
Einar Haugen, Georvp Lane, J
Kemp Malone. Margareth*
Schlauch og Sven B. F. Jansson.J
o
2ja-3ja herb. íbúðj
•
með húsgögnum óskast straxj
sem næst Miöbænum. — Sírni*
16115 á skrifstofutíma. J
IíIUíUUlJ
BELLA
, Við erum nú ekki alveg úti að
aka í sambandi við fjármálin. —
Lífsnauðsynjarnar hækkuðu um
9% sfðasta ár og við eyddum
aðeins 7% fram yfir tekjurnar
okkar.
VISIR
lárizm
FYRIRLESTUR um maurflugur
líf þeirra hætti og hyggjuvit held-
ur sfra Friðrik Friðriksson í
kvöld kl. 8.30 i húsi K.F.U.M.
Aögöngumiðar seldir á 1 krönu.
Aðgöngumiðar seldir við inngang-
inn aðeins.
3. iúlí 1918
I HBMETl
Stytzta konungdæmi, sem um
getur var valdaferill Dauphin
Louis Antoine, sem bar titilinn
Lúðvík XIX Frakkakonungur f
fimmtán mínútur — eöa meðan
Karl X (1757- 1836) og hann sjálf
ur skrifuðu undir skjal það sem
skýrði frá, að Dauphin afsalaði
sér konungdómi í héndur Hinriks
V
PENNAVINIR
12 ára gamall Nýsjálendingur,
Francis Jennings óskar eftir bréfa
viðskiptum viö ísienzkan dreng á
sínum aldri. Helztu áhugamál
hans eru sund, Ijósmyndataka,
lestur, bréfaskipti, frímerkjasöfn
: og skautaferðir. Einnig er hún
skáti. Heimilisfang "'rancis Jenn-
ings er: 150 Estuaryi Rd, Christ-
church, New Zeaiand.
mm
Hægviðri, létt-
skýjað að mestu
Hiti 11-14
dag 7—9 í nótt