Vísir - 09.07.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 09.07.1968, Blaðsíða 3
VÍSIR . Þriðjudagur 9. júlí 1968. 3 \ §i II n inHft MM -- ■ Síldin kom með sumarið til Stöðvarfjarðar kom til landsins í fyrra. — Skip- ið mun leggja allt kapp á að afla verksiniðjunni Söxu á Stöðv arfirði hráefnis. — Síldarútveg- urinn þar er mjög ungur eins og víðar á Austfjörðum og verk- smiðja þessi tók til starfa fyrir tveimur árum, en auk þess starf ar þar eitt síldarplan. Nú er talið að sildin haldi .sig þarna við Bjarnarey fram í ágústlok eða september og verð- ur þvi öll áherzla lögð á síldar- flutninga af miðunum, bæði bræðslusildarflutninga og salt- síldarflutninga. En Síldarútvegs- nefnd mun taka á leigu skip til þess að flytja til lands síld, sem söltuð verður um borð i veiði- skipum á miðunum. Má því bú- ast við að*smærri staðirnir fyrir austan verði nokkuð afskiptir nema því aðeins að þeir hafi á sínum snærum skip, sem sinni sinni heimabyggð. Fyrsti síldarfarmur sumarsins var 400 tonn milljónar króna virði. — um hálfrar Heimir SU leggst að bryggju á Stöðvarfirði. Keisaraskurður í Hvalfirði Það kemur út á mönnum svltanum aö flensa hval í Hval- firði þessa sólskinsdaga. Hver hvalurinn er dreginn eftir annan upp á skurðarplanið — og þar bíða flensararnir með brýnd járn in eftir því að skera þá í stykki. Vertíðin byrjaði óvenju seint í ár, en veiðin hefur gengið mjög vel fram til þessa. I gær voru 133 hvalir komnir á land, en einn bátur var á leiðinni með tvo í togi. — Þeir hafa komið þetta tveir og þrír á land á dag. Og það er unniö á vöktum í Hvalstöðinni nótt sem nýtan dag. — Alls munu vinna við veiðarnar 160 menn. Auk þess gefur hvalvertíðin af sér talsverða vinnu í frystihúsinu Heimaskaga á Akranesi, en þar er hvalkjötið fryst og síðan selt úr iandi sem dýrafóður. — Þessi sala hefur ekki gengið sem bezt að undanfömu sem kunnugt er og fleiri erfiðleikar stgðja að hvalvertíðinni. Til dæmis mun nú Iítill grundvöllur fyrir soð- kjarnaverksmiðjunni, sem reist var í Hvalfiröi og tók til starfa í fyrra, en hún átti að fram- leiða efni i súputeninga. Nú eru komin til sögunnar gerviefni, sem gera sama gagn en eru miklu ódýrari í framleiðslu og þar með er kippt grundvellinum undan þessum iðnaði. Það mun ýkja sjaldgæft að sjá slíka sjón sem myndin sýn- ir í Hvalfirði, en kemur þó fyr- ir. Hér er sem sagt verið aö taka kálf úr einni skepnunni með nokkurs konar keisara- skurði. Því miöur er hvort tveggja lífvana móðir og af- kvæmi, en við slíkri sorgarsögu verður ekki gert. m Hvalkálfur tekinn með „keisaraskurði“. sumarsins kom þangað á mið- vikudaginn i vikunni sem leið. Heimir frá Stöðvarfirði kom einna fyrstur báta á miðin við Bjarnarey og fékk þar fyrstur sild, um 400 tonn af fallegri síld, sem fróðir menn telja vel söltunarhæfa. Ekkert flutningaskip var kom- ið á miðin svo aö Heimir varð að sigla til lands með aflann og sú sigling tók þrjá sólar- hringa og sautján tíma. — Og það var eins og sildin hefði kom- ið með sumarið til Stöðvar- fjaröar. — Hún glæðir með mönnum von um mikið annríki og mikið í aðra hönd. Þegar skipið Iagðist að landi stóð hópur fólks á hafnar- bakkanum. Stöðvfiröingar binda miklar vonir við þetta flaggskip sitt i sumar, en það er eitt hinna nýrri og glæsilegri síldar- skipa, 363 lestir að stærð og Það var uppi fótur og fit á Stöðvarfirði, þegar fyrsta síld \ l

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.