Vísir - 09.07.1968, Page 7
VÍSIR . Þriðjudagur 9. júlí 1968.
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
Brezka stjórnin reiðubúin að láta
herþotur flytja lyf og mat til Nígeríu
Thomson samveldismálaráðherra
Bretlands tilkynnti í gærkvöldi, að
til mála gæti komið, að flugvélar
Kemur á ný til
óeirðu í Purís?
Maurice Grimaud yfirlögreglu-
stjóri Parísar hefir í skýrslu til
borgarráðsins látiö í iiós beyg um,
að til nýrra óeirða kunni að koma
í borginni.
í óeiröunum fyrr í sumar hlutu
meiösli 1910 lögreglumenn og 1459
óróaseggir. Af lögreglumönnunum
meiddust 9 hættulega og af öörum
14.
brezka flughersins yrðu notaðar til
flutninga á lyfjum, matvælum og
öðrum brýnustu nauðsynjum til
bágstaddra f Nígeríu og væru á-
form í þessu efni nú rædd við land
varnaráðherrann.
Samveldismálaráöherrann tók
fram, að nauðsynlegt skilyröi væri,
aö báöir aöilar í borgarastyrjöld-
inni féllust á þetta.
í Genf hefur forstjóri Alþjóða
Rauöa krossins rætt við U Thant
framkvæmdastjóra Sameinuöu þjóö
anna um flutninga á nauösynjum til
hinna þjáöu í Biafra.
Á furidi Vestur-Evrópusambands-
ins hefur málið einnig verið rætt
og stakk Willy Brandt utanríkis-
Gammarnir bíða..
London: Á veggjum gamalla og
hrörlegra flóttamannabúða í bæn-
um Ikot Ekpene f Biafra bíða gamm
amir eftir að ráðast á konur og
börn, sem em að deyja úr hungri.
Borizt hefur skeyti frá John
Birch framkvæmdastjóra hjálpar-
starfsemi í Biafra og er í því ávarp,
sem hefir að fyrirsögn: Bjargið
börnunum.
„Bærinn“, segir hann í ávarpinu,
„er sannkallað víti hungurs, smán-
ar og dauða. Um það bil 1500
manns eru að bana komnir af nær-
ingarskorti, margir hafa selt sein-
ustu spjarir sínar til þess að kaupa
mat fyrir, en gammamir svífa
veggja milli reiðubúnir til þess að
rífa í sig deyjandi fölk. Þarna er
gamalt fangelsi byggt fyrir 200
fanga, en þarna er troöfullt. Daginn
sem heimsóknin átti sér stað biöu
30 manns bana þarna.“
Hunt lávarður — sigurvegari Ever-
est-tinds. Hann heimsótti í gær
borg, þar sem 10.000 manns bíða
dauðans.
ráðherra Vestur-Þýzkalands upp á
aö samkomulag yrði gert um hlut-
laust belti í Nigeríu til flutning-
anna.
Beinar flugferðir
hafnar ntilli New
York og Moskvu
Samkomulag Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna um beint farþega-
flug milli New York og Moskvu
hefst á mánudag í næstu viku í
fyrsta sinn. — Bandaríska flug-
félagiö Panamerican og sovézka
félagiö Aeroflot annast ferðirnar.
Samstarf kommúnistaríkja
og innanlandsmál þeirra
— Tékkar boðnir á nýjan fund
PundiB
hækkar
NTB-frétt frá Zurich hermir, að
pundið hafi hækkað í gær um 30
stig i hlutfalli við dollar á gjaldeyr-
ismarkaðnum þar.
Opinber tilkynning mun veröa
birt um stuöning viö pundiö. f
fyrradag fréttist að aðalbankastjór
ar vestrænna landa á fundi i Sviss
heföu náð samkomulagi um stuön
ing við sterlingspund til langs tíma
og var þetta talið sýna, að trú
bankanna væri að aukast á því, að
tilganginum yröi náö með efnahags
ráðstöfunum brezku stjórnarinnar
Miðstjórn kommúnistaflokksins í
Tékkóslóvakíu kom saman á auka-
fund í gærkvöldi til þess að ræða
Wilsoa svarar
gagnrýnendum
Harold WUson forsætisráðherra
Bretlands flutti ræðu í fyrradag á
flokksfundi í Wales og svaraði
stjórnarandstæðingum og öðrum,
er gagnrýnt hafa harðlega efnahags-
ráðstafanir stjórnarinnar.
Wilson var óvenjuharðoröur og
kvaö stjórnarandstæðinga sýna hiö
mesta ábyrgðarleysi í gagnrýni
sinni. í rauninni væri hér haldiö
uppi baráttu af ofurkappi til þess
að ófrægja viðreisnaráform stjórn-
arinnar, af takmarkalausri ófyrir-
leitni, en þeir sem þessa iöju stund
uðu vissu mætavel, aö í rétta átt
miöaði, og kvað hann það fram-
undan að kraftaverk gerðist á efna-
hagssviðinu.
Um þetta eru þó margir í hans
eigin flokki honum ósammála. (I
grein á 8. síðu er sagt nokkuð
frá erfiöleikum Wilsons um þessar
mundir).
1 ofannefndri ræöu sinni vék
Wilson að öðrum málum og kvaö
brátt mundu verða varið meira fé
á Bretlandi til fræðslu- og mennta-
mála en til landvarna.
bréf, sem flokknum hafa borizt frá
kommúnistaflokkum Sovétríkjanna,
Póllands og Austur-Þýzkalands.
Efni bréfanna er boð um sameigin-
iegan fund til þess að ræða viss
vandamál.
í stuttri tilkynningu segir, að
tékkneski kommúnistaflokkurinn
telii mikilvægt að ræöa þessi vanda
mál og taka afstööu til þeirra.
I' henni segir og aö samstarf
kommúnistaflokka sé óhjákvæmi-
legt fyrir heillavænlega þróun
hinna ýmsu kommúnistalanda en
jafnframt sé nauðsynleg gagnkvæm
virðing fyrir sérstööu þeirra varð-
andi innanríkismál.
Lausnarbeiðni
grískra ráðherra
Gríski dómsmálaráöherrann, sem
tók viö embætti fyrir 3 vikum, hef-
ir beðizt lausnar, og aðstoðarráð-
herra, sem tók við embætti um
sama leyti. Orsakir lausnarbeiön-
anna eru sagðar vera persönulegar
ástæður ráðherranna.
GATT og innflutn-
ingshömlur Frakka
Á fundi Gatt-landanna í Genf var
fallizt á að sætta sig við til bráða-
birgða ráðstafanir frönsku stjórn-
arinnar til takmörkunar á innflutn-
ingi.
Var það gert á þeim grundvelli
að kringumstæðurnar væru óvenju
legar, en nefnd var skipuð til að
fylgjast með þróun mála, svo aö
hægt yrði að taka málin fyrir þeg-
ar af nýju, ef þess sæjust merki aö
takmarkanimar yrðu til frambúðar.
Van Thieu frestar
Bandaríkjaheimsókn
Van Thieu.
Nguyen van Thieu forseti Suður-
Víetnam hefur tilkynnt að hann
óski eftir að fresta áformaðri opin-
berri heimsókn sinni til Bandaríkj-
anna.
Orsökin ér talin vera hætta á
nýjum árásum Vietcong. Ekki haföi
verið fast ákveðiö hvenær heim-
sóknin yröi, en í fyrri viku var í
frétt frá Washington sagt, að heim-
sóknin myndi hefjast seint í þess-
um mánuði og standa hálfan mán-
uð.
í fréttinni í gær var sagt, að van
Thieu hefði gefið f skyn, að heppi-
legra væri aö hittast til tveggja
daga viöræöna einhvers staðar á
Kyrrahafssvæðinu.
Nýjustu fréttir herma, aö fundur
þeirra van Thieu og Johnsons verði
haldinn í Honolulu 20. júlf.
onn: Andreas Papandreau, fyrr-
srandi grískur stjómmálamaður,
sáði í gær „heitu sumri“ í Grikk-
indi, eða meö öðrum orðum, aö
eilur myndu haröna og til átaka
koma vegna sívaxandi óánægju ;
manna rheð hemaðarlegu stjórnina |
og mótspyrnu gegn henni. — Pap- ■
andreau er nú búsettur í Stokk- \
hólmi.
Melbourne: Til alvarlegs uppþots
kom hér f fyrradag. Um 2000 and-
stæðingar Víetnamstyrjaldarinnar
söfnuöust saman fyrir utan hús
bandaríska ræöismannsins og er
ríðandi lögregla dreifði mannfjöld-
anum meiddust 35 menn, og yfir
50 voru handteknir. Ekki var skilin
eftir heil rúða í húsinu.
París: Tilkynnt er, að Vinstrisam-
fylkingin muni ekki breyta stefnu-
skrá í bill. Var þaö samþykkt á
fundi leiðtoganna, en ný stefnuskrá
verður tekin á dagskrá í septem-
ber. Leiötogi vinstri samfylkingar-
innar, Mitterand, sætti harðri j
gagnrýni fyrir frammistööuna í!
kosningunum. Staða hans er ekki!
sízt erfið vegna þess, aö flestir
nánustu samstarfsmenn hans féllu
í kosningunum. Talsmaður sam- (
fylkingarinnar ræddi í fyrradag,
nauðsyn sterkrar samfylkingar jafn-1
aðarmanna og stuöningsmanna j
þeirra, sem fólk ætti kost á að j
styöja í stað þess að eiga valiö
milli gaullista og kommúnista.
London: Talið er, aö tjón Bretlands
af efnahagsaögerðunum gagnvart
Rhodesíu nemi sem svarar
til um 5100 milljóna íslenzkra
króna. Það var Whitlock aðstoðar-
í-áðherra sem svaraði fyrirspurn um
þetta í neðri málstofunni. Meötalin
er fjárhagsaðstoð veitt Zambíu. -
Lissabon: Verkfalli strætisvagna-
stjóra í Lissabon lauk eftir að sent
hafði verið fram lögregluliö meö
stálhjálma á höfði og vélbyssur á
lofti. Verkfallið stóö í 3 daga. Það
er brezkt félag sem annast rekst-
ur strætisvagnanna og fél-lst það á,
að strætisvagnamenn fengju kaup-
hækkun, sem nemur 5 ísl. kr. á
dag.
Lissabon: Portúgalska stjórnin til-
kynnir, að upprættur hafi verið
flok-kur hermdarverkamanna, sem
laumaðist inn í Mozambique, og
ætlaði að komast til Suður-Afríku.
Moskva: Nasser Egyptalandsfor-
seti ákvað í gær, að dveljast 2—3
dögum lengur í Sovétríkjunum en
upphaflega var ætlað og halda
áfram viðræðum viö sovézka leið-
toga. Eftir honum er haft, að sovét-
stjórnin myndi styöja arabisku þjóö
irnar áfram, en hann minntist ekki
á hernaöarlega aöstoð. Minna er
nú í bili rætt um „sovézk-egypzka
friöarsókn" og athugendur telja, að >
einhver snurða hafi komið á þráð- ,
inn á viðræöufundunum,
Rómaborg: Signor Leone hefir
myndað minnihlutastjórn á Ítalíu
í stefnuræðu hét hann endurbótum
á háskólakerfinu, stuðningi .viö
Norður-Atlantshafsbandalagið og
aðildarumsókn Bretlands að EBE.
Haldi stjórnin velli við atkvæða
greiðslu nú í vikunni mun þaö
verða meö naumum meirihluta.
Moskva: Varsjárbandalagið efnir
til fyrstu flotaæfinga sinna á Norð
ur-Atlantshafi í þessum mánuði og
taka þátt í þeim herskip frá Sovét-
ríkjunum, Póllandi og Austur-Þýzka
landi. Æfingunum verður haldlð
áfram á Eystrasalti í næsta tnan-
uði.