Vísir - 22.07.1968, Blaðsíða 2
V ! S I R . Mánudagur 22. júlí 1968.
Hörður Markan — skoraðl beint
úr hornspyrnu. .
Island — Færeyjar 27:17 (11:8)
Islendingar unnu með Wmarkamun
— Bergur GuÖnason skoraöi 9 miörk i
fyrsta landsleik sinum
íslendingar unnu Færeyinga i
landsleik í handknattleik, sem leik
inn var í Þórshöfn í Færeyjum á
laugardag með 27 mörkum gegn 17.
Leikurinn fór fram á malbikuðum
velli utan húss og var nokkuð vel
leikinn. Islendingum gekk nokkuö
erfiðlega framan af og um tíma
í fyrri hálfleik höfðu Færeyingar
yfir, en er kom fram yfir miðjan
fyrri hálfleik náðu íslendingar for
ystu og héldu hennl eftir það til
leiksloka.
Það var Ágúst Ögmundsson, er
skoraði fyrsta mark leiksins strax
í byrjun, síðan fær Geir vítakast
en skaut í stöng, og stuttu sfðar
jafna Færeyingar. Ágúst nær foryst
unni á ný með fallegu marki, en
Færeyingar ná forystunni með
tveimur fallegum mörkum, 3—2.
Þá skorar Bergur Guðnason sitt
fyrsta mark og jafnar. Þetta varð
ekki síðasta mark Bergs, sem lék
nú sinn fyrsta landsleik og varð
lang markahæstur í leiknum og
átti prýðisgóðan leik. Stuttu síðar
náðu fslendingar forystunni með
B-liðið vann Fœreyingana 3:0
— i bófkenndum leik i fjokumollu
íslendingar unnu Færeyinga f
landslelk i knattspyrnu f Þórshöfn
f gær, með 3 mörkum gegn engu.
íslendingar tefldu fram B-liði gegn
færeyska liðinu, en f llði íslendinga
léku þó þrfr af þeim er léku f A-
landsliöinu gegn Norðmönnum á
fimmtudag.
Það voru þeir Hörður Markan,
Björn Lárusson og Gunnar Felix-
son, sem skoruöu mörkln, öll f
síðari hálfleik.
Eins og fyrr segir var ekki mik-
ið um knattspyrnu f leiknum, knött
urinn gekk frekar milli mótherja
enn milii tveggja samherja. Var
frekar lítið um hættuleg færi á
báða bóga, en fslendingar voru
þó ákveðnari við markið. Leikur-
inn fór fram í kalsaveöri og þoku,
og voru áhorfendur margir.
Fyrri hálfleikur var tíöindalaus,
og ekkert mark skoraö. Komst hvor
ugt markið í teljandi hættu, fslend
ingar þó heidur betri aðilinn. í
síðari hálfleik hélzt sama þófið
áfram, en á 8. mínútu sóttu íslend
ingar að færeyska markinu og úr
hornspyrnú skoraði Hörður Mark
an mjög laglega beint í markið. Á
15. mín. skoraði Björn Lárusson
annað markið eftir sendingu frá
Hreini Elliðasyni.
Gunnar Felixsson fékk á 23. mín,
útu sendingu, þar sem hann var
einn og óvaldaður og markvörður
einn til varnar. Skaut Gunnar fram
hjá markverði Færeyinga, sem kom
út á móti honum. Þaö sem eftir
var sóttu íslendingar öllu meira,
en Færeyingar áttu þó sitt bezta
’tækifæri eftir, en þá skutu þeir
beint á Kjartan markvörð og siðan
framhjá xipnu marki. Sigur fslands
var verðskuldaður en of mikill eft-
ir gangi leiksins. Færeyingar voru
áþekkir ísl. liðinu, en bitlausir við
markið. fslenzka liðið var betri að-
ilinn f leiknum, en þó átti enginn
sérstakur góðan leik.
Meistaramótiö i frjálsum hefst i kv'óld:
Keppendur hátt
á annað hundrað
Meistaramót Islands í frjáls-
um iþróttum hefst íkvöld kl. 20
á Laugardalsvellinum i Reykjavik.
Keppcndur i mótinu eru hátt á ann
aö hundrað, og eru mjög margir
þátttakendur í sumum greinum.
T.d. eru 17 keppendur í langstökki
og 9 i 1500 m hlaupi. í kvöld verð-
ur keppt í mörgum skemmtilegum
greinum, svo sem hástökki karla,
kúluvarpi, þar sem Guðmundur
! Hermannsson er meðal keppenda,
Guðmundur kastar — setur hann nýtt met i kvöld?
’marki Einars Magnússonar og þá
skora lslendingar tvö næstu mörk,
og hafa yfir 6—3. Færeyingar ná
að minnka bilið niður f tvö mörk,
8—6 og enn siðar rétt fyrir leik-
hlé, í 1 mark, 9 — 8 en mörk frá
þeim Hiimari Björnssyni og Geir
Hallsteinssyni tryggja fslandi, 3ja
marka forystu í hálfleik, 11—8.
Markamunurinn hélzt óbreyttur í
byrjun síöari hálfleiks, en íslending
ar komust þó 5 mörkum yfir, 15—
10, þá skora Færeyingar tvö næstu
mörk, og ná að minnka bilið aftur
niður f þrjú mörk, 15—12. Bergur
skorar þá tvö mörk úr vítaköstum,
17—12 og eftir það virðist sigur
Islendingar nokkuð öruggur, enda
juku þeir frekar bilið en hitt. Voru
það einkum þeir Bergur og Jón
Hjaltalin, sem skoruöu á því tíma
bili. Lauk leiknum því með verð-
skulduðum sigri Islendinganna, 27
—17.
Langflestir íslenzku leikmann-
anna áttu góðan leik. Markverð
irnir báðir voru góðir, Þorsteinn
lék lengst af í markinu og varði
m.a. vftakast, en þann tfma sem
Guðmundur var inn á var mark-
varzlan ekki lakari, og varði hann
einnig vítakast á síðustu sekúndu
leiksins. Mörkin skoruðu: Bergur
9, Ágúst, Einar og Jón Hjaltalfn,
4 hver, Geir Hallsteinss. 3, Öm Hall
steinssson, Sigurður Jóakimsson og
Hilmar 1 mark hver. í færeyska lið-
inu átti markvörðurinn Mamar
Gárd mjög góðan leik og varði m.a.
vítaskot frá Geir. Þá var Svein-
björn Zakariason, og góður sem
Bergur — markahæstur í fyrsta
Iandsleiknum.
og þeir Petur Hojgárd, Sverre Jak-
obsen og Jon Peter Midjord. Leik-
inn dæmdi danskur dómari, Olsen.
Áhorfendur voru 12—1500.
KR-b vann lið Völsunga frá Húsa
vík með 2 mörkum gegn 1 í spenn
andi leik á Melavellinum í gær. I
hálfleik var jafnt, 1 — 1.
';' ’l-■ .....
Daninn Steen Smith Jensen setti
um helgina nýtt danskt met í stang
arstökki, stökk 4,81 m á móti i
Skellefteham, gamla metið átti
hann sjálfur, en það var 4,75.
800 m hlaupi, þar sem keppendur
eru 7.
Keppni verður eflaust spennandi
í mörgum greinum, svo sem I 200
m hlaupinu, en þar eru 10 þátttak
endur. Þá má minna á hástökkið,
kúluvarpið og 800 m hlaupið. Kven
fólkið keppir einnig í kvöld, og
verður m.a. keppt i kúluvarpi
og hástökki. Keppni verður eflaust
hörð f hástökkinu, því aö fjórar
fyrstu á landsmótinu aö Eiöum
stukku allar 1,44 metra. Auk þeirra
keppir Ingunn Vilhjálmsdóttir iR,
sem nýlega stökk 1,50 metra. Eins
og fyrr getur hefst mótið kl. 20
f kvöld og verður enginn svikinn
af að sjá keppnina á Laugardals
vellinum.
#íVIc«í#«í’
Srúttir
Vestur-Þjóðverjinn Henfried Bir
lenbach setti nýtt Evrópumet i
kúluvarpi á Ítalíu á laugardag. —
Hann kastaði kúlunni 20.18 m.
Metið var sett f 6 landa keppni,
sem fram fór á Ítalíu um helgina.
Úrslit í nokkrum greinum: 100 m
hlaup: Bambuck, Frakkl. 10.2 sek
400 m: Mueller, V-Þýzkal. 46,5 sek,
800 ,m: Kemper, V-Þýzkal. 1.49,4
mín, 400 m grind: Hennige Vestur
Þýzkal. 50,5 sek, Langst: Pani,
Frakkl. 7,86 m. Spjótkast: Salomen
V-Þýzkalandi 75.56 m. Stangar-
stökk: Dionisi, Italíu, 5.10 m. 4x100
m boðhlaup V-Þýzkal. 40,2 sek.
Shnoes
Eusebio.
Eusebio, Torres og fleiri
stjörnur Benfica koma
hingað örugglega
— segir portúgalskur ijyróttablaöamaöur,
sem hér var um helgina
□ Portúgalskur blaðamaður, Mendonsa Ferreira,
var hér á landi um helgina á vegum portúgalska
íþróttablaðsins „Record“ að safna efni um íslenzka
knattspymu, ísland og þá sérstaklega knattspymu-
félagið Val, sem leikur eins og kunnugt er við Ben-
fica. Vísir átti viðtal við hann um komu Benfica
hingað og um stjörnur liðsins, og birtist viðtalið
hér á síðunni á morgun. Sagði Ferreira m. a., að
það mætti teljast alveg ömggt að Benfica sendi
hingað sitt sterkasta lið, þ. ám. Eusebio, Torres,
Augusto, Graza, Coluna, Simoes og fleiri. Viðtaliðl
birtist hér á síðunni á morgun. |