Vísir - 22.07.1968, Qupperneq 10
ÍO
VI81R . Manuaagur 22. jun iuus.
• James Earl Ray, sem sakaður
er um moröið á dr. Martin
Luther King, hefur nú verið fram-
seldur til Bandaríkjanna. Hann var
íluttur með leynd úr Wandsworth
fangelsi og settur í fiugvél, sem
flutti hann til Memphis þar sem
áann verður leiddur fyrir rétt. —
Bandrískir leynilögreglumenn
gættu hans á leiðinni.
9 Hæstiréttur Tékkóslóvakíu hef-
ur fellt úr gildi 15 ára fang-
elsísdóm yfir Rudolf Barak fyrrver-
andi innanríkisráöherra og úrskurð-
aö, að mál hans skuli tekið fyrir
á ný.
9 Verkfall póstmanna i Kanada
hófst á fimmtudag og hafa allir
póstflutningar stöðvazt.
fram mótmæli vegna bandarískrar
flotaheimsóknar. Nokkrir tugir stúd
enta voru handteknir.
• Fulltrúadeild Bandarfkjaþings
hefur lækkað efnahagsaðstoð-
ina við aðrar þjóðir um 370 millj-
ónir dollara, og er nú lægri í frum-
varpinu en nokkurn tíma fyrr, en
öldungadeildin á eftir að fjalla um
frumvarpið á ný. — Áður hafðí
deildin sarriþykkt 72 þúsund millj-
arða dollara til landvarnanna á
þessu fjárhagsári og er það 6 af
hundraði minna en stjórnin upphaf-
lega lagði til.
• Ojukwu ofursti hefur lagt til,
að Port Harcourt, nú á valdi
sambandshers, verði afvopnuð og
fari fram flutningur á nauðsynjum
um hana til bágstaddra í Biafra.
Hann endurtók, að Biafra myndi
ekki þiggja aðstoð frá brezku stjórn
inni, nema hún hætti að senda
sambandsstjórninni í Lagos her-
gögn.
• Ian Smiith. forsætisráðherra
Rhodesíu, segist hafa vikið
Harper fyrrum innanríkisráðherra
frá af öryggisástæðum, en fór ekki
nánar út í þetta. — Harper, sem
hefur neitað að koma fyrir þing-
nefnd, sagði í fyrradag, að frávikn-
ingin hefði verið vandlega undir-
búin, og væri þetta eitt af þvf, sem
Smith væri að gera til þess að losa
sig viö stjórnmálaandstæðinga.
® Nokkrir unglingar, 17 ára norsk
ur piltur og fjórir danskir, voru
handteknir í Málmey 1 fyrradag,
fyrir eiturlyfjasölu.
• Til óeirða kom í Istanbul tvo
daga í þessari viku. Stúdentar báru
• Fjárlagafrumvarpið á þingi
Rhodesíu hefur verið lagt fram.
Skattar eru ekki hækkaðir. í fjár-
lagaræðunni var sagt, að tóbaks-
birgðir hefðu aukizt, en að öðru
leyti hefði verið sigrazt á mestu erf-
iðleikunum vegna refsiaðgerðanna.
Eiginmaður minn og faðir okkar
ÞORLÁKUR EINARSSON
andaðist á sjúkradeild Hrafnistu 21 þ. m.
Þórunn Franzdóttir
Páll Þorláksson
Halldór Þorláksson
Þórhallur Þorláksson.
2ja-4ra herbergja 'ibúb
2ja til 4ra herbergja íbúð óskast á leigu fyrir
fámenna fjölskyldu frá 1. september næst-
komandi. Upplýsingar gefur Jón Hjartarson,
s. 1 16 65.
YOGA
Erindi í Tjamarbæ þriðjud. 23. júlí kl. 20.30.
Séra Þór Þóroddsson, fræðar:, flytur erindi
um hið tíbezka yogakerfi og heimspeki. —
Sagt frá Spádómi tíbezku meistaranna. Skýrt
frá kennslufyrirkomulagi næstu daga fyrir
byrjendur. — Sími 35057.
Lagtækur maður
óskast í aukavinnu við byggingu í 2—3 vikur.
Sími 3250Ö og 32749 á kvöldin.
Hörð átök eftir fund
á Trafalgartorgi
• Talið er, aö 10.000 manns hafi
í gær mótmælt Víetnamstyrjöldinni
á Trafalgartorgs-fundinum. Fyrir
framan bandariska sendiráðið við
Grosvenor-torg héldu 1000 lög-
Sprenging
í Saigon
Sprenging varð i gærkvöldi í kvik-
myndahúsi i Saigon og biðu að
minnsta kosti 5 manns bana, en um
30 særðust.
Felmtur greip fólkið, sem æddi
út. Húsfyllir var. Sprengjunni var
komið fyrir í kaffistofu við hliðina
á kvikmyndahúsinu. í frétt frá
Saigon segir, að Víetcong sé um
kennt, og hafi þeir ekki um margra
mánaða skeið fyrr en nú valið úr
til hermdarverka stað sem þennan,
þar sem eingöngu var borgaralegt
fólk fyrir.
Skaftcihæstu —
> 1 ,|'V
Þá eru gerðar athugasemdir um
eignarskatta og lífeyrisgreiðslur fyr
irtækja.
Listi þessi er í framhaldi af lista
yfir hæstu skattgreiöendur af ein-
staklingum, sem nýlega var birtur
í samanburði sést að einstaklingar
bera tiltölulega mjög háa skatta,
miðað við fyrirtækin. — Listinn er
á blaðsíðu 3 ásamt athugasemdum
og umsögnum nokkurra helztu ráða
manna skatthæstu fyrirtækjanna í
þættinum „Vísir spyr“.
Söltun —
reglumenn vörð og mynduðu keðju-
raðir.
Til alvarlegra óeirða kom í gær
í London, eftir að fundurinn hafði
verið haldinn á Trafalgartorgi, en
menn héldu þaðan í áttina til sendi-
ráðs Bandaríkjanna. Lögreglan
hindraði menn í að fara þangað og
hófu þá nokkrir tugir manna grjót-
kast á hana, brutu rúöur í bílum og
gerðu tilraun tii íkveikju. Margar
rúður voru brotnar í Hilton-gisti-
húsinu. Margir menn meiddukt,
þeirra meðal Iögregluþjónar, og
nærri 50 voru handteknir.
Island með
4Vz úr fveim
umferðum
íslenzka stúdentaskáksveitin,
sem teflir nú í A-flokki á alþjóða
skákmóti stúdenta í Ybs í Austur
ríki hef: staðið sig mjög vel, það
sem af er, vann Júgóslavíu í fyrstu
•umferðinni með 2*4 gegn 1*4, en
Júgóslavar eiga mikið úrval skák-
manna og eru jafnan taldir með
alira sterkustu skákþjóðum heims.
í annarri umferð gerðu íslending-
arnir iafntefli við A-Þýzkaland 2-2.
Skólholtshátíð —
m—> i6. siðu
Reykvíkingar. Veður var fremur
drungalegt framan af en birti til
sfðdegis. Kirkjugestir fylltu kirkj-
una við messu, sem biskupinn, hr.
Sigurbjörn Einarsson. flutti ásamt
þeim séra Guðmundi Óla Ólafssyni
og séra Valdimar Eylands, dr.
theoi. Eftir messu var samkoma í
kirkjunni. Tók þátt í henni fjöldi
manns.
m—> > síðu
langt komin á miöin og eru þar
um borð birgðir af tunnum og salti,
fyrir flotann, en skipið mun jafn-
framt taka við saltaðri síld af
veiðiskipunum.
Vísir frétti í morgun af þremur
skipum, sem búið er að salta í
slatta. Um borð í Reykjaborgu var
búið að salta 250 lestir og Hafdís
frá Breiödalsvík var komin með 70 j
tunnur saltsíldar. Einnig haföi eitt-1
hvaö verið saltað um borð í Ósk-1
ari Magnússyni frá Akranesi. — j
Elisabeth Hentzer er auk þess kom !
in með drjúgan saltsíldarfarm og r
er nú á leið með hann til Raufar-
hafnar. Síldveiðiskipin eru dreifð
um stórt svæði og gengur fremur
erfiðlega að ná síldinni, sem stend-
ur djúpt og er auk þe§s ljónstygg.
Svæðið þar austur frá er átulaust
og er mikil hreyfing á síldinni, en 1
þó engin ákveðin hreyfing suöur !
eða vestur á bóginn, að því er síld
arleitin taldi í morgun. Hins vegar |
vonast menn til þess að hún fari
að lóna upp undir landið, þegar
kemur fram í ágúst.
Nokkur sVcip eru að veiðum í -
Norðursjó og hafa fengiö reytings
afla sem ísaður er í kassa og síðan
seldur í Þýzkalandi á góöu verði.
Eru þaö Jón Kjartansson, Jón
Garðar, Hólmanes, Guðrún Þor-
kelsdóttir og Elliði.
Fjórtán skip tilkynntu afla ril
síldarleitarinnar í nótt og í gær:
Guörún Guðlaugsdðttir 167 lestir,
Dagfari 154, Bjartur 247, Bjarni II
87, ísleifur 195, Kristján Valgeir 89,
Ársæll Sigurðsson 53, Sveinn Svein-
björnsson 77, Birtingur 238, Þor-
steinn 11, Gjafar 120, Baldur 90,
Öm 130, Guðrún 58 lestir. — Alls
1417 lestir.
Breiðholt
9. síöu.
ætti að vera hægt aö spara mik-
ið fé við frágang útveggja og í
þeim efnum hefur fengizt mikil
reynsla við þessar framkvæmd-
ir. Veggir seinni húsanna koma
miklu sléttari undan mótunum
en í fyrstu húsunum, sem steypt
voru.
Vatns- skólp- og hitalagnir
eru efalaust ódýrari I þessum
húsum en gerist og gengur, eink
um vegna þess að þær eru sam-
einaöar mikið ti! á einn stað og
eru því færri göt í gólfi. Raf-
magnslögnin er hins vegar
miklu óhagstæðari en búizt var
við. Þessi liður hækkaði við
gengislækkunina. Auk þess var
farið að leggja leiðslurnar undir
oarketgólfið og gerði það tré-
smíðavinnuna mun dýrari.
T>arketgðlfiö var boöið út sér-
staklega og kom lægsta til-
boðið bæði í efni og vinnu frá
Danmörku. eða 400 kr á fer-
metra. — Við fengum ekki aö
ráða danska iðnaðarmenn til
verksins og varð trésmlðavinn-
an dýrari fyrir það. — Hins veg
ar var efnistilboði Dananna tek-
iö. — f reyndinni kostar park-
etið um 600 kr. á fermetra. Við
munum að fenginni reynslu ekki
nota það í seinni áfangann, sem
eftir er, þar sem við teljum
það of dýrt.
Innréttingar voru einnig boðn
ar út og kom það revndar á ó-
vart að ekki skyldu berast fleiri
tilboð í þessi stóru verkefni.
hver sem ástæðan er. Einkum
BORGIN
BELLA
Það skiptir mig engu máli, þótt
ég hafi fengið bakkann hans
Hjálmars, ef hann hefði ekki feng
ið Jyttu bakka i staðinn.
$t ’
Bókasatn Sálarrannsóknarfé-
lags Islands og afgreiðsla tímarits
ins MORGUNN. Garðastræti 8.
sími 18130, er opin á miðvikudög
um kl. 5.ú0 til 7 e. h. Skrifstofa
félagsins er onir á san a tíma
Landsbókasain isiands „irns
núsinu við Hverfisgötu Lestrar
salur er opinn alla virka dagf ki
9- 19 nema .augardaga kl. 9—12
Utlánssalur kl 13—15. nema laug
ardaea kl 10- \
riLKYNNINGAR
Bústaðakirkja.
Munið sjálfboðaliðavinnuna hvert
fimmtudagskvöid kl. 8. Bústaða
kirkja.
kemur það á óvart að ýmis
hinna stærri verkstæða I Reykja
vík skyldu ekki sinna þessu
verki. — Hins vegar fengum
við mjög hagstæð tilboð í inn
réttingar, einkum eldhúsinnrétf
ingar, sem Kristinn Ragnarsson
átti, ennfremur var tifboð tré-
smiðjunnar Akurs á Akranesi 1
fataskápa mjög hagstætt. Tré-
smiðja Hveragerðis átti lægsta
tilboðið í innihurðir og KÁ Sel
fossi í útihurðir.
I heild sögðu þeir Björn og Ói
afur að þeir álitu þennan fyrsta
áfanga hafa tekizt eftir vonum
þó að hann yrði nokkru dýran
en upphaflega var reiknað með
Og með þessum fr.amkvæmdum
hefði safnazt mikil reynsla sem
kæmi að góðum notum við
smíði húsanna, sem eftir eru —
Sögðu þeir að sjálfsögðu að
margar kvartanir hafa borizt
Ýmsir smágallar hefðu komiö 1
Ijós, en þó ekki meiri en geng-
ur og gerist við bvggingar al-
mennt og væru þeir lagaöir jafn
óðum. — tbúarnir fara og skoða
íbúðirnar áður en þeir skrifa
undir afsal og bera þá strax
fram sínar kvartanir. En eftir
að fólk hefur skrifað undir af-
sal er kvörtunum ekki sinnt,
rema um leynda galla sé að
ræða, eða skemmdir .sem orðið
hefðu af umgangi starfsmanna
við framkvæmdirnar.
\