Vísir - 07.08.1968, Page 12
V1SIR . Miðvikudagur 7. ágúst 1968.
72
ANNE LORRAINE:
Hún gat ekki sofnað, og er hún
hafði bylt sér í rúminu í marga
klukkutíma, fór hún fram úr og
klæddi sig. Hún fór í hvíta slopp-
inn «tan ýfir kjóiinn og gekk niður
í garðinn.
Hún gekk í grasinu og leit til að
albyggingarinnar og sá dauft Ijós í
mörgum gluggum. Hún reyndi að
gera sér grein fyrir, hvernig það
mundi verða að slíta sig frá þessari
■ litlu veröld. Henni fannst hún vera
dáh'tið brot úr þessari stofnun, á-
ríðandi brot úr lffi hennar, og á
þessari stundu fannst henni óhugs
andi að yfirgefa hana allra sízt fyr
ir fiíUt og allt. En mundi hún una
þessu Iffi — án Tonys?
Ailt í einu langaði hana til að
líta inn til Anne. Hún gekk upp I
deildina og opnaði varlega herbergi
Anne.
Ung hjúkrunarkona sat við
iampatýru í hominu á herberginu.
i Hún stóð upp, þegar Mary kom
! inn, en Mary benti henni að setj-
! ast aftur. — Þetta er bara óform-
l leg heimsókn, sagði hún lágt og
I brosti. — Hvernig líður sjúklingn-
; um?
Hjúkrunarkonan leit efablandin á
stúlkuna í r minu. — Ég er ekki
vel ánægð, læknir, sagði hún lágt.
— Mér sýnist hún vera vel hress,
þegar Specklan yngri er inni hjá
henni, en undir eins og hann fer,
er eins og ...
Hún yppti öxlum. — Það er dá-
lítið erfitt að skýra þetta, en það
er alveg eins og þegar vindi er
hleypt úr blöðru. Hún lognast út af.
Þeim þykir sjálfsagt ósköp vænt
hvoru um annað.
Mary kreppti hnefana í slopp-
vösunum, Hún leit forviða á hjúkr-
unarkonuna, sem roðnaði og varð
ókyrr.
— Afsakið þér, læknir, muldraði
EINKARITARI
® HMf
Rannsóknarstöð Hjartaverndar óskar eftir
stúlku til ritarastarfa. Væntanlegir umsækj-
endur þurfa að hafa góða vélritunarkunnáttu
og gott vald á enskri tungu og a. m. k. einu
Norðurlandamáli. Laun eftir samkomulagi.
Umsóknir sendist skrifstofu Hjartavemdar,
Austurstræti 17, fyrir 12. þ. m.
hún. — Ég athugaði ekki, hvað ég
sagði.
— Það er allt í lagi, sagði Mary.
— Haldið þér áfram. Þér haldið þá,
að þessi ungi maður — hjálpi sjúkí
ingnum okkar?
— Ó! Já-já! Hjúkrunarkonunni
létti auðsjáanlega, er hún sá, að
Mary haföi áhuga á þessu. — Ég
sá þau saman í kvöld, og það var
auðséö, að hún hresstist, undir eins
og hann kom inn. Hann var líka
svo nærgætinn við hana — alveg
eins og hann væri að hugga lítið
bam. Honum hlýtur að þykja skelf
ing vænt um hana, og henni um
hann. Það væri hræðilegt, ef þetta
færi iila...
Hún varð skjálfrödduð. — Ég —
veit, aö það er rangt að vera svona
kvíðinn, en ég er svo hrædd, þegar
ég sit hérna ein á nóttunni. Ég hef
aldrei vakaö yfir neinum, sem hefur
verið alvarlega veikur.
Mary brosti hughreystandi. —
Einu sinni verður allt fyrst, sagði
hún. — Ég man enn fyrsta skiptij
sem ég gerði það. En þér skului
alltaf treysta því, að ef þér gerið
það, sem í yöar valdi stendur, þá
hjálpar guö yður. Hann tekur allt-
af við, þar sem okkur þrýtur.
Stúlkan hleypti brúnum. — Ég
efast um, að yfirhjúkrunarkonan
sé sammála um það, byrjaði hún.
Svo mundi hún, að hún var að
tala viö lækni, og roðnaði. — Þakka
yöur fyrir, læknir. Ég skal muna
þaö, sem þér sögðuð.
Mary gekk að rúminu og horfði
á Anne, sem var vafin umbúðum
um höfuðið. Það var eitthvað hríf-
andi við þetta unga andlit og hend
urnar, sem voru sífellt á iði. Jafn-
vel í svefni virðist fólk vera að
leita að einhverju, hugsaöi Mary
með sér.
— Henni þykir gott að láta
halda í höndina á sér, sagði hjúkr
unarkonan vandræðalega. - Ég held
stundum í höndina á henni. Það er
kannski vitleysa, en mér finnst, að
henni þyki vænt um það. Af
hverju kemur það?
Mary andvarpaði. — Við þurfum
stundum öll hönd til að halda í,
sagði hún dræmt, eins og hún væri
að tala við sjálfan sig. — Jafnvel
þeir, sem þykjast sterkastir.
HVAÐ ER AÐ CAREY?
Hún fór upp í herbergið sitt aft-
ur, en í stað þess að fara í rúmið
settist hún á stól við gluggann og
horfði á nóttina, sem var að breyt-
ast 5 dag. Ljósin í gluggunum í
sjúkrahúsinu slokknuðu smátt og
smátt, og hún sá hjúkrunarkonum-
ar hlaupa um gangana með tebakk
ana handa sjúklingunum. Nýr dag-
ur ....
Mary ar.dvarpaöi. Hún var þreytt
og vansæl. Skrítið að hugsa til
þess, að fyrir skömmu hafði henni
fundizt hún vera sælasta mann-
eskjan í heimi. Þá hafði hún átt
Toay og hafði verið svo örugg um,
að þau elskuðust. En nú var hún
ekki örugg um neitt, —. ekki einu
sinni um sjálfa sig.
Þó hún gerði sér það ekki ljóst,
hafði þetta samtal við hjúkrun-
arkonuna valdiö henni mikilli geðs
hræringu. Unga stúlkan hafði veriö
svo sannfærð um, að Anne og Tony
elskuðust. Þaö var vitanlega ekki
rétt — hafði Tony ekki neitað þvi
sí og æ, að nokkuð væri milli sín
og Anne? Hún þekkti Tony miklu
betur en hjúkrunarkonan gerði, svo
að það var ástæðulaust að taka
mark á því, sem stúlkan sagði? En
hún hafði allr, ekki verið spurð
um þetta, hún hafði sagt það frá
eigin brjósti Heimska að taka nokk
urt mark á þessu, en ...
Hún stóð upp og bjóst tii að
fara út. Hún ætlaði að sleppa morg
unverðinum 1 dag. Það var auðvitað
misráðið, en nú hirti hún ekkert
um heilræðin, sem hún var vön að
gefa sjúklingunum sínum. 1 dag
varð hún að svara Tony endanlega
— varð að skera úr um, hvort hún
elskaði starfið sitt heitar en hann.
Hún vildi ekki viðurkenna, að
það væri þetta sem réði úrslit-
um, og sagði við sjálfa sig, að fyrst
yrði hún að vita vissu sina um,
hvort Tony elskaði hana. Á þann
hátt gat hún bægt sínum eigin efa
frá og skotið ábyrgðinni á hann.
Þegar hún kom niður, sá hún
Simon Carey inni í matstofunni og
reyndi að flýta sér fram hjá hon-
um. Hann stöðvaði hana og spurði,
hvers vegna hún væri svona
snemma á ferð.
— Ég svaf illa i nótt, sagði hún
rólega. — Og mér fannst réttara
að komast snemma í vinnuna. Má
ég ekki fara í deildina strax. Ég
þarf að athuga ýmislegt í spjald-
skránni.
Hann starði á hana með einkenni
legu augnaráði og svip, sem hún
gat ekki ráðið. Ef það hefði verið
einhver af hinum læknunum, mundi
hún hafa sagt, að það væri fyrir-
litningarsvipur. — En Simon Carey
hafði aldrei látið á þvf bera, að
hann liti niður á kvenfólk f lækna
stöðu. En kannski hafði hann sofið
illa í nótt lfka?
— Já, þú hefur vafalaust nóg að
gera sagði hann ólundarlega. —
En það er ekkert undarlega. Ég
sagði þér, þegar þú byrjaöir starf-
ið, að vinnutíminn yrði langur og
enginn tími til að sinna óviðkom-
andi áhugamálum.
— Hef ég kvartað? spurði hún
hvöss. — Ég ætlaði mér aðeins að
fara að vinna á undan þér, og það
ætti þér að þykja vænt um. Þá
getum viö byrjað á sjúklingunum,
undireins og þeir koma.
— Þú verður að fá morgunverð
fyrst.
Hún hnyklaöi brúnirnar og leit
gremjulega til hans. — Því ræð ég
sjálf, sagði hún stutt. — Ég er
ekkert barn.
— Þú ættir þá að sanna það með
því að haga þér ekki eins og barn,
sagði hann. — Kona f jafnmikilli á-
byrgðarstöðu og þú hefur ekki leyfi
til að vera dyntótt. Þú ættir að
vita það.
— Og þú ættir að hafa vit á
því að skipta þér ekki af þvf, sem
þér kemur ekki við, svaraði hún
reið. — En nú verður þú að hafa
mig afsakaða. Ég verð í deildinni,
þegar þú þarf á mér að halda.
FJOUÓJAN HF.
HagstæSusín ycscð.
Greiðslusldlmálar.
Verndið verkefni
íslenzkra Iianda.
FJÖLIÐJAN HE,
Sími 21195
Ægisgötu 7
Maðurinn sem
aldrei les auglýsbgar
JAR-ZA.MY PAUGHTER! 100
LONG YOU HAVE CURSEP THE
FATE THAT CAUSEP YOU lO
BE BORN ALMOST FUR-LESS
ANP WITH HAIR OF NO COLOR!
NOW WE HAVE
NEEP OF YOUR
STRANGENESS...
ANP YOUR TALENT
FOR MARING
TROUBLE:
!N WHAT WAY
PO YOU WISH ME
TO PECEIVE THE
NAKEP-SKIN
WARRIOR YOUK
LET ME GUESS! HE SEARCHES
FOR A WOMAN... HIS MATE?_
ANP YOU WISH ME TO MAKE
HIM THINK T AM THAT
WOMAN? SOUNDS PELtC-
Dóttir þín neitar aö yfirgefa bústað Nú getum við notfært okkur skringileika Og fólk kailar mig vitran.
sinn. :
Jæja, gerir hún það, bölvuð?
Jarza, dóttir mín. Þú hefur lengi bölv-
að þeirri ógæfu, að vera fædd nær feld-
laus og með hár, sem engan lit hefur.
þinn og hæfileika þfna til þess að valda
vandræðum.
Á hvaða hátt vilt þú að ég ginni hina
hárlausu hermenn, sem menn þínir hand-
tóku?
Láttu mig geta. Hann var að leita að
konu, konunni sinni. Þú vilt láta mig
blekkja hann svo tann haldi að ég sé
hún. Hljómar seiðandi. Ég skal gera það.
'OGREIDDIR f
REIKNINGAR ‘I
LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA...
£>að sparar yóur t'ima og óbægindi
INNHEIMT USKRIFST OFAN
Tjarnargötu 10 — 111 hæd — Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3linur)
' /
K