Vísir - 09.08.1968, Qupperneq 16
KLEFARNIR FULLIR OG FRYSTI-
HÚSIÐ VERDUR AÐ LOKA
— 50 manna starfslið frystihússins á Dalvik sent i sumarfri
— Fleiri frystihús hafa lokað vegna markaðserfiðleika
VISTR
4b
Föstudagur 9. ágúst 1968.
Á að þjóðnýfa
laxveiðiórnar?
Páttunnn Á öndverðum meiöi hefst
aftur í kvöld að afloknum sumar-
leyfum sjónvarpsins. Umræðuefn-
ið verður, hvort skynsamlegt sé að
þjóðnýta laxveiðiárnar og veiði-
vötnin, en það hefur verið gert i
nokkrum löndum eins og t.d. Banda
ríkjunum, Kanada og Noregi. Á
öndverðum meiði verða þeir Helgi
Sæmundsson, ritstjóri (fyrir þjóö-
nýtingu) og Jakob V. Hafstein,
forstjóri. Stjórandi þáttarins verð-
ur dr. Gunnar G. Schram að vanda.
■ Við erum að vinna síð-
asta fiskinn, sem við get-
um tekið á móti í bili, en síð-
an verðum við að loka hús-
inu um einhvern tíma, sagði
Trygpvi Jónsson hraðfrysti-
hússtjóri á Dalvík. — Fólkið,
sem unnið hefur í húsinu, um
50 manns, verður nú bara að
fara í sumarfrí. Sagði Tryggvi
að ástæðan væri sú að klefar
væru orðnir yfirfullir og ekki
væri auðvelt að losna við
fiskinn í bráð. Sagði Tryggvi
það einnig bera til að frysti-
húsin. sem skiptu við Sam-
bandiö, virtust heldur ekki
hafa eins greiðan aðgang að
flutningum með Fossunum.
Hins vegar var búizt við að
eitthvað af fiskinum yröi lestað
í Jökulfellið á næstunni, en það
yrði hverfandi.
Sagði Tryggvi, að frystihúsin
á svæðinu frá Skaga að Tjör-
nesi hefðu orðið að skammta
bátunum veiöi síöustu mánuð-
ina. Þaö er að segja, bátarnir
hafa ekki veitt nándar nærri
eins og þeir gætu, þar sem hús-
in hafa ekki getað tekið á möti
aflanum. — Frystihúsið á Húsa-
vik hefur orðið að setja lönd-
unarbann á sína báta öðru
hverju til þess að vinna upp það
sem safnast fyrir, eins og áður
hefur komið fram í Vísi.
Tryggvi Jónsson sagöi enn-
fremur, að aflinn, sem nú bærist
á land, væri heldur stærri fisk-
ur en áður veiddist og væri það
einkum vegna þess að togbát-
arnir hirtu bókstafléga ekki
smæsta fiskinn.
Tvö togskip voru á togveið-
um frá Dalvík fram eftir sumri,
en annaö þeirra varö aö hætta
í júlí, þar sem ekki var hægt
m-* 10. sfða.
SAUÐKIND
IN OG
GRÓÐ-
URINN
í fornritum okkar lesum við,
aö „landið hafi verið vaxið skógi
milli fialls og fjöru.“ Nú eru
litlar leifar þessara víölendu
birkiskóga eftir og
ið örfoka. Sauðkindinni er aö
miklu leyti kennd þessi skógar-
eyðing. Skógræktarmenn hafa
tekið upp baráttu fyrir
klæða landið aftur skógi“ og
hefur víða orðið vel ágengt. Aðr
ir hafa tekið upp baráttu
útrýmingu sauðkindarinnar og
þá frá görðum og garðagróðri
og hefur einnig orðið vel ágengt
a.m.k. í Reykjavík. Þó má búast
vlð því, að þessu stríöi sauð-
kindarinnar og skóg- og ræktun
armanna sé ekki að fullu lokið,
allar sögur eiga sinn eftirmála.
Á myndinni má sjá hinn mikla
vágest gróðurs — sauökindina
þar sem hún nagar lauf og gróð
ur f Þórsmörk f mesta sakleysi.
Haförninn flytur
mjólk á síldarmiðin
— notaðar eru W litra umbúðir
Að undanförnu hefur Haförninn
farið með mjólk á síldarmiðin til
mjólkurþyrstra síldarsjómanna. Haf
örninn hefur tekið mjólkina á Seyð
isfirði, Akureyri og víðar. Hefur
hann flutt um 5 tonn af mjólk í
hverri ferð. Mjólkin er flutt í um-
búðum, sem Kassagerðin hefur
framleitt og taka þær 10 lítra. Hiti
hefur veriö mikill fyrir austan síð-
ustu daga og gerir þaö mönnum
erfitt meö mjólkurflutningana
vegna þec.', að mjólkin má ekki
hitna meira en 4 gráður. Haförn-
inn er nú á miðunum og er von-
andi að sjómenn fái mjólkina ó-
skemmda því fáir geta mjólkurlaus
ir veriö. Einnig hefur verið flutt
kjöt og aðrar nauðsynjavörur til
sjómannanna og þær vörur tekn-
ar fyrir austan.
Deyfilyfjavurnir
til umrædu
Deyfilyfjavarnir, loftmengun, ó-
næmisaðgeröir hafa m.a. verið til
umræðu á þingi norrænna borgar-
lækna, sem staðið hefur yfir hér í
Reykjavík frá 6. þ.m. og lýkur í
dag. Á þinginu eru 12 norrænir |
læknar frá öllum hinum Norður- j
löndunum.
Hafa læknarnir farið í skoðana
ferðir til Reykjalundar, einnig heim
sækja þeir ýmsar stofnanir í1
Reykjavik t.d. Heilsuverndarstöð-
ina og Borgarsjúkrahúsið.
Húðarrigning í gær
Húðarrigning var i gærdag
víða um land. Um hádegisbiliö
rigndi svo mikiö í Reykjavík,
að á sumum götum fossaði vatn
ið fram í lækjum. Mest var rign
ingin i Vestmannaeyjum og á
Suðurlandi en í Vestmannaeyj-
um mældist 30 mm. sólarhrings
úrkoma, sem er mjög mikið að
sumarlagi. Svipuð úrkoma mæld
ist á Loftsölum í Mýrdal, 28
mm. á Reykjanesi en 14 mm í
Reykjavík. Rigningarsvæðið
náði einnig norður og austur
um land. Mældist 8 mm. úr-
koma á Grímsstöðum á Fjöllum
t.d.
\ i
Aðeins þrír árekstrar
þrátt fyrir slæm skilyrði
D Aðeins þrír árekstrar voru
skráðir hjá Slysarannsóknadeild
umferðarlögreglunnar í gærdag,
AGNEW ekki vandanum vaxinn?
_ Gagnrýni í New York Times
New York Times gagnrýnir I
morgun val Nixons á varaforseta-
efni, — það hafi verið vegna
flokkshagsmuna en ekki þjóðarhags
muna, aö hann valdi Agnew vara-
forsetaefni.
„Það verður ekki 'tjá því komizt
að álykta", segir blaðið, ,,aö hann
hafi valið Agnew frekar með tilliti
til flokkshagsmu, a og kosningabar
áttunnar en vegna þjóðarhagsmuna
eftir alvarlegar athuganir á hver
væri beztur fáanlegur rnaður."
E..nfremur segir blaðið: Hann
(Agnew) hef'ir enga reynslu varð-
andi stjórn Ir 'smála eða utanrik-
ismála, og þar til í ár hafi hann
i-nga reynslu á þvi sviði.“
Þá segir blaöit a. hann hafi að
visju staðið sig vel sem rikisstjóri,
en ekkert varðandi bakhjarl hans
eða starfsferil bendi til, að hann
geti fyrirvaralaust tekið á sig þær
byrðar, sem hvíla á herðum forseta
Bandaríkjanna".
þrátt fyrir það, að mjög slæm
akstursskilyrði voru í borginni.
Mikil úrkoma var, götur blaut-
ar og skyggni slæmt. Aö því er
starfsmaður slysarannsókna-
deildarinnar sagði Vísi í morgun
er algcngt að mjög lítiö sé um
slys í umferðinni, þegar skyndi-
lega gerir slæm akstursskilyrði.
Þá virðast ökumenn vera miög
varir um sig, en þegar frá líöur
og slæm akstursskilyrði eru dag
eftir dag, verði þeir kærulausari
og þá sé fjandinn laus. Sérstak-
lega gildir þetta um hálku. —
Fyrstu hálkudaga vetrarins
verða nær engir árekstrar, en
þegar frá líöur aukast þeir mjög.