Vísir - 22.08.1968, Síða 13

Vísir - 22.08.1968, Síða 13
\ / V1SIR . Fimmtudagur 22. ágúst Hjálparsveit skáta í Njarðvík Þann 16. júlí s.l. var stofnuð í Ytri-Njarðvík Hjálparsveit skáta, Njarðvík. Stofnendur sveitarinnar eru 20 talsins. Mikill áhugi er ríkj- andi hjá meðlimum Hjáiparsveitar- innar og hafa þeir haldið margar æfingar og lagt mikla vinnu f und- irbúning. Vonast þeir félagar til að geta búið sveitina góðum tækjum og útbúnaði og er vonandi, að marg- ir góðir menn rétti þeim þar hjálp- arhönd, því að fjárhagur er þröng- ur, þótt vilji og dugnaður séu á háu stigi. Hjálparsveitin tók I fyrsta skipti þátt í leitar og björgunarstörf um nú fyrir skömmu, er flugvél með fjórum mönnum í fórst nálægt Látrum. Er það álit allra þeirra, er fylgdust með, að þar hafi sveit- in sannað ágæti sitt. Fyrstu stjórn Hjálparsveitar skáta í Njarðvík skipa: Birgir Olsen, for- maður, Einar Bjarnason,1 ritari, og Grétar Ólafsson, gjaldkeri. Námskeið fyrir íþrótta- kennara Á vegum íþróttakennaraskóla ís- lands fer fram námskeiö fyrir í- þróttakennara dagana 26.—30. ág. n.k. MSmskeiðið átti að fara fram að Laugarvatni, en þar sem heima- vistarhús skólans er eigi tilbúið, verður að starfrækja námskeiðið f beacær og ga@ifræðaskóla Austur- beejar í Heyfejavtk og veröur það sett í hátíðasal bamaskólans mánu- daginn 26. ágúst kl. 9 árdegis. Aðalkennarar verða Úíla-Britt Ágren og Anders Eriksson frá í- þróttakennaraskólum Svíþjóðar. Einnig munu annast kennslu og flytja erindi: Vignir Andrésson, í- þróttakennari, Stefán Hermannsson verkfræðingur, Hermann Sigtryggs- son, fþrótta- og æskulýðsfulltrúi Ak ureyrar og I>orsteinn Einarsson, f- þróttafulltrúi. 1 sambandi við námskeiðið mun Iþróttakennarafélag Islands halda aðalfund föstudaginn 30. ágúst. Námskeiðið mun verða starfrækt f fyrmefndum skólum frá kl. 9 til kl. 18.30 daglega. Fyrirhuguð þátttaka f námkkeið- inu að Laugarvatni virtist ætla að verða ágæt. Konur voru þó mun fleiri en karlar. Forstöðumenn námskeiðsins treysta því, að fyrrnefnd breyting raski ekki þátttöku. Tilkynning frá Arkitektafélagi Islands Á vetri komanda mun verða starf ræktur samnorrænn skóli f skipu- lagsfræðum. Skólinn er eins árs námskeið sem þó að nokkru leyti fer fram sem heimavinna. Þátttaka er heimil þeim einstakl- ingum, sem vinna að skipulagi og skipulagsforsendum, enda hafi þeir lokið háskólaprófi í sérgrein sinni. Aðilar geta verið arkitektar, verk- fræðingar, bygginga- og landmæl- ingaverkfræðingar, hagfræðingar og þjóðfélagsfræðingar. Nánari upplýs ingar fást á skrifstofu Arkitekta- félags íslands á Laugavegi 28. Skólinn verður staðsettur á Skeppsholmen í Stokkhólmi. Umsóknir um skólavist skulu stfl aðar til Interimstyrelsen för Nord- iska instituttet föar Samhallsplan- ering, c/o Utbildningssepartement- et Fack 103—10, Stockholm 2. Um- sóknir skulu hafa borizt fyrir 27. ágúst. FÉLAGSLÍF Ferðafélag Islands ráðgerir eftir- taldar ferðii um næstu helgi: 1. Kerlingarfjöll — Hveravellir, kl. 20 á föstuuagskvöld. 2. Þórsmörk 3. Landmaunalaugar 4. Hítardalur, þessar þrjár eru á laugardag kl. 14. 5. Gönguferð um Leggjarbrjót, kl. 9,30 á sunnudag. j Síðasta sumarleyfisferð Ferðafé- i lags fslands i 29. ág. hefst 4 daga ferð. Fariö ! verður norður Kjöl, austur með | Hofsjökli í Laugafell, sfðan í Jökul- dal við Tungnafellsjökul, suður Sprengisand og f Veiðivötn. Nánari upplýsingar veittar á skrif- stofunni Öldugötu 3, sfmar 19533 og 11798. Veiðileyfi í ölfusá, nærri Selfossi. Uppl. í síma 15065. FRÁ BYGGINGALÁNASJÓÐl KÓPAVOGSKAUPSTAÐAR Umsóknir um lán úr sjóðnum berist undirrituðum fyrir 10. sept. n.k. Umsóknareyðublöð fást á bæj- arskrifstofunum í Kópavogi. 25. ágúst 1968 Bæjarstjórinn í Kópavogi. 13 VELJUM (SLENZKT <H> (SLENZKAN IÐNAÐ íslenzk umbúðnsamkeppni Eins og áöur hefur verið auglýst, gengst Iðnkynningin 1968 fyrir fyrstu íslenzku umbúöasamkeppninni, en tilgangur samkeppninnar er að efla áhuga á umbúðum, sem auka söluhæfni og styrkja þannig samkeppnis- hæfni íslenzkra iðnfyrirtækja. Sérstök dómnefnd veit- ir þ^irn umbúðum viðurkenningu, sem að hennar dómi eru ,t.aldar til ■þess þæfar. Ákviðiö hefur verið, að áður auglýstur skilafrestur, 1. september, framlengist til 1. október n.k. Reglur dómnefndar fást hjá skrifstofu Iðnkynningar- innar, 4. hæð í Iðnaðarbankahúsinu, Reykjavík. Iðnkynningin 1968 Skrifstofur Landsvirkjunar Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, verða lokað- ar föstudaginn 23. þ. m. vegna ferðalags starfsfólks. Fimm ára styrkir Lánasjóður íslenzkra námsmanna mun í ár úthluta 7 , námsstyrkjum til stúdenta, sem hyggjast hefja nám j við erlenda háskóla eða 'dð Háskóla íslands. Hver styrkur er um 50 þúsund krónur. Sá, sem hlýtur slíkan styrk, heldur honum í allt að 5 ár, enda leggi hann ár- lega fram greinargerð um námsárangur, sem láriasjóð- urinn tekur gilda. Þeir einir koma til greina við út- hlutun, sem luku stúdentsprófi nú f vor og hlutu háa fyrstu einkunn. Styrkir verða veittir til náms bæði f raunvísindum og ■ hugvísindum. Umsóknir, ásamt afriti af stúdentsprófsskírteini, svo og meðmæli, ef fyrir liggja, eiga að hafa borizt skrif- stofu Lánasj. fsl. námsmanna, Hverfisgötu 21, fyrir 5. sept. n.k. Skrifstofan afhendir umsóknareyðublöð og veitir allar nánari upplýsingar. Reykjavík, 20. ágúst 1968. Lánasjóður ísl. námsmanna. ’ ■

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.