Vísir - 05.09.1968, Blaðsíða 7
VlSIR . Fimmtudagur 5. september 1968,
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlöhd í morgun
útlönd;
Smirkovsky segir óhjákvæmilegt að fram-
kvæma Moskvusamkomulagið lið fyrir lið
PRAG í GÆR: Eftir aö slóvakíu fari til Moskvu í
orðrómur hafði komizt á
kreik um nýjan f und helztu
leiðtoga Sovétríkjanna og
; Tékkóslóvakíu er nú talið
líklegast að flokksleiðtog-
ar og ráðherrar frá Tékkó-
Isveztija fór
ntannavillt
í Parisarfrétt frá NTB segir að
Isveztija hafi fariö mannavillt er
það sakaði Jiri Hajek utanríkisráð-
herra um að hafa verið samstarfs-
mann nazista í síöari heimstyrjöld,
en sá hét Bedrich Hajek, sem haföi
samstarfið við nazista — og tók
sér síðar annað nafn.
næstu vikn.
Sagt var, að fyrir þessu væru
áreiðanlegar heimlidir.
Ekki er enn vitað hverjir fara,
en að öllum líkindum Dubcek,
Cernik og Smirkovsky.
Rude Pravo hefur birt það sem
Smirkovsky sagöi í greinargerð
sinni, eftir að hann kom heim frá
Moskvu, og kveöst hann hafa talað
af „ýtrustu varfærni", er hann
flutti þessa fyrstu ræðu sína þá.
„1 dag segi ég i sömu einlægni,
að eins og sakir standa er óhjá-
kvæmilegt fyrir okkur, að fram-
fylgja Moskvu-samkomulaginu lið
fyrir lið, svo að mótaðilinn geri
slíkt hið sama“.
Þetta er haft eftir Smirkovsky f
blaðinu.
Hann sagði ennfremur, aö þaö
væri í þessum anda, sem þjóðþingið
yrði að vinna. .
Hann gerði ráð fyrir, að þjóð-
þingiö myndi koma saman til fund-
ar bráðlega og þá sennilega 13.
CHICAGO — ekki Prag
Undir þessari fyrirsögn birtir Politíken nokkrar myndir frá Chic-
ago, sem gefur öriitla hugmynd um hinn geysilega viðbúnað sem
þar átti sér stað til þess að halda uppi reglu meðan flokksþing
demokrata var háð. Mikið hefur verið ræt um ásakanir á hendur
lögreglunni og til alvarlegra óeirða kon. íháskólabænum Berekley
í Kaliforníu, er stúdentar mótmæltu hrottaskap iögreglu- og þjóð-
varðliðsmanna í Chicago.
september og mundi ríkisstjórnin
þá gera grein fyrir þvl nauösynleg-
asta, sem gera þyrfti. M. a. minnt-
ist hann á lögin urri prentfrelsi, op-
inber fundahöld o. fl. Smirkovsky
kvað einingu ríkja milii þjóöþings-
ins, flokksforustunnar og ríkisstjórn
arinnar, og allt yrði að geta haldið
áfram að þróast á viðunandi hátt,
svo að hraða mætti framkvæmd á-
kvarðana Moskvusamkomulagsins
og venjulegt ástand skapaöist.
MOSKVU í GÆR: Pravda heldur
enn áfram áróðri í þá átt, að and-
sósíalistisk öfl vinni gegn því að allt
komist í eðlilegt horf í Tékkósló-
vakíu og segir sovézka hermenn
verða aö verja áfram það, sem á-
unnizt hafi með sósíalismanum.
Blaðið segir þó síga hægt í átt-
ina til „normaliseringarinnar“.
í ungkommúnistablaðinu Kom-
somolskaya f Moskvu er talað um
„nýja tegund Kagnbyltingar“ í
Tékkóslóvakíu og hafi fyrst VQriö
byrjaö að framkvæma „áætlunina"
í janúar.
Ajexander Dubcek, flokksleið-
togi í Tékkóslóvakíu, kom fram í
gær í fyrsta sinn opinberlega, og
var sýnd af honum fréttamynd í
sjónvarpinu, í miðstöð flokksins,
og er hann heimsótti nokkrar verk
smiðjur, ræddi við verkamenn og
bað þá styðja stjórnina.
Ríkisstjórnin kom saman á fund
f gær og var Cernik forsætisráð-
herra í forsæti. Rætt mun hafa
veriö um ýmsar nauðsynlegar ráð-
stafanir tengdar þvf, að hernáms-
liðið hefir afhent byggingar útvarps,
sjónvarps og blaða, er það hafði
tekiö yfirráö yfir. Hin seinasta, f
Kosice, var afhent í gær. Þá var
rætt um að auka varðgæzlu að
næturlagi.
Af blöðunum kom aðeins Rude
Pravo út f gær.
Hernámsliðið hefir yfirgefiö bvgg
ingu verkalýössambandsins.
Efnahagssérfræðingar ræða nú
hversu megi bjarga við fjárhag
landsins, sem hefir enn versnað
Landskjálftarnir
r
í Iran
— 22 jbúsund fórust
Gizkað er á að ,um 22.000 manns
hafi farizt f Khorossanhéraöi í
Iran í landskjálftunum s.l. þriðju-
dag, en hin opinbera tala er enn
12.000.
Keisarahjónin eru nú á land-
skjálftasvæðinu.
vegna hernámsins. Skattar munu
hækka og ríkisútgjöld lækkuð, m.
a. til heilbrigðis og menntamála.
Blöðin í Varsjá segja enn bera
á andspyrnu í Tékkóslóvakíu, límd-
ir eru áróðursmiöar á veggi, og
fólk hvatt til þes að hafa ekkert
saman aö sælda við hernámsliðiö
o. s. frv.
Sagt er aö aðeins örfáir austur-
þýzkir herflokkar séu eftir í land-
inu og ferðamenn segja frá löngum
fylkingum ungverskra skriðdreka-
fylkinga á leið frá landamærum
Tékkóslóvakíu f áttina til Buda-
pest.
Varnir NAT0
Norður-Atlantshafsbandalagiö
hefir birt tilkynningu aö afloknum
fundi skipulagsnefndar varna
bandalagsins. í henni er lögö á-
herzla á, haldast veröi hernaðar-
legt jafnvægi í álfunni, en það hafi
raskazt vegna hernámsins í Tékkó-
slóvakíu.
Rauði lcrossinn
byrjar loftflutninga
Alþjóða Rauði krossinn býst nú
við að frá deginum í dag að telja
og næstu 10 daga, að geta flutt loft-
léiðis til flugvallar í Biafra 14000^
lestir matvæla.
• Stofnað hefur verið til „loft-
brúar“ í íran — frá Teheran til
landskjálftasvæðanna. Læknar,
hjúkrunarkonur og annað hjálpar-
: lið er flutt þangaö loftleiðis.
• Fréttir bárust í gær um land-
skjálfta í Tyrklandi norðvestan-
verðu 16 menn létu lífið og 200
meiddust. '
20. fundur friðarráð-
stefnunnar um Viet-
nam í gær í París
• Fulltrúar Bandaríkjanna og
Norður-Víetnams komu sam
an á 20. fund ráðstefnunnar um
frið í Víetnam.
Ásamt sendinefndinni frá N.-
V. var á fundinum Le Duc Tho,
sem er í heimsókn í París, Hann
á sæti í stjórnmálanefnd Komm-
úpistaflokks Norður-Víetnams.
Xuan Thuy var fyrir sendi-
nefnd N.-V., en Averill Harriman
að venju fyrir þeirri bandarfsku
Fyrir fundinn sagði Harriman,
að hann vonaði að fulltrúar N,-
V. gerðu grein fyrir afstööu
stjórnarinnar, ef stöðvaðar yrðu
loftárásir á N.-V., eða „hvað
mundi gerast“, eins og hann
kvað að orði, ef til þess kæmi.
Smirkovsky þjóðþingsforseti.
Sprengingar
í Tel Aviv
• Tel Aviv: Að minnsta kosti 10
menn særðust í gær, er margar
sprengingar urðu í strætisvagnamið-
stöðinni í Tel Aviv.
Sprengingarnar voru öflugar og
minntu á þær, sem urðu f Jerú-
salem 18. ágúst.
Höföu skemmdarverkamenn kom
ið fyrir sprengjum á mörgum stöð-
um í Gyöingahluta borgarinnar.
Lögreglan í Tel Aviv handtók all-
marga menn, sem henni þóttu grun-
samlegir.
Abd hertekin
Sambandsstjórn Nigeríu tilkynmr
töku Aba, hins seinasta meða)
hinna stærri bæja Biafra, sem var
eftir á valdi Biafrahers.
Brezkir fréttaritarar segja fána
Nigeríu blakta þar og að sambands-
lið hafi sótt lengra norður á bóginn
og rofiö samgöngur á mikilvægri
samgönguleið.
Fjárl'óg Frakka:
Hærri skattar
minna fé til
landvarna
Franska stjórnin hefir samþykkt
fjárlagafrumvarpiö, sem lagt var
fyrir hana í gær.
Samkvæmt því verða útgjöld
lækkuð, m. a. áf til landvarna, en , .
skattar hækkaðir um 5—10 af
hundraði í hærri tekjuflokkum.
Hinar sérlegu gjaldeyris-varúðar-
ráðstafanir frá í fyrra verða felldar
niður.
Gjaldeyrisforöinn minnkaði um
1200 milljónir franka í ágúst og er
nú 7000 milljónir franka.
Samsæri
í London
Lögreglan í London hefir komizt
á snoðir um samsæri er efnt verður
til mikilla mótmæla í haust út af
Vietnam-styrjöldinni. Gert er ráö
fyrir aö þátttakendur í þeim verði
um 100.000 og eiga 6000 lögreglu
menn að gæta þess að allt fari vel
fram. Nú hefir komizt upp, að öfga-
menn meðal kröfugöngumanna á-
forma að kasta olíusprengjum að
byggingum og nota þær sem vopn
gegn Iögreglunni.