Vísir - 05.09.1968, Blaðsíða 10
10
Bezti síldveiðidagurim im
VISIR . Fimmtudagur 5. september 1968
wrnnaaaBBaFqasiBKg’ssg'ss” ?
langan tíma
Bækur — frímerki
íslenzk frímerki. Mikið úrval af einstökum
merkjum og heilum seríum. T.t. Flugmerkin
1930, stimpluð á Þingvöllum. Flugmerki 1934.
Háskólinn 1938. Þorfinnur karlsefni, báðar
takkagerðir. Snorri Sturluson. Jón Sigurðs-
son 1944. Flugmerki 1947. Sveinn Björnsson.
Handritin. Hannes Hafstein. Kristján X. Þjón-
ustumerki og margt fl.
Fyrsta dags umslög: Um 70 mismunandi teg-
undir. Geymslumöppur 2 gerðir.
Innstungubækur: 15 gerðir. Verð kr. 39.00 til
364.00.
íslenzka frímerkjabókin: Nú komin í vönduðu
lausblaðabandi, kr. 235.00.
Frímerkjavörur: Tangir, klemmuvasar, verð-
listar o. m. fl.
Erlend frímerki. Pakkar og seríur, mótíf.
KÓRÓNlTMYNT. Getum nú selt einstaka pen
inga og heil sett. Möppur, 2 gerðir koma í
næstu viku.
Við erum nú að birgja okkur upp af bókum
fyrir haustið, og veljum hjá útgefendum eigu-
legustu bækur frá fyrri árum, sem innkallaðar
hafa verið úr bókaverzlunum. Margar þeirra
hafa verið lækkaðar í verði og allar eru á að-
eins broti af verði nýrra bóka.
VASABROTSBÆKUR og TÍMARIT. Mikið
úrval bóka á ensku og Norðurlandamálum á
aðeins 6,00 til 12.00 krónur.
Góðar bækur. Mikið lesmál. Lágt verð.
BÆKUR OG FRÍMERKI
Traðarkotssundi 3.
Gegnt Þjóðleikhúsinu.
Laxveiði
Nokkrir dagar í Grímsá eru af sérstökum
ástæðum lausir fyrir 1 stöng. Upplýsingar í
kvöld að Hofteigi 8, 2. hæð.
Efni til sölu
Tilboð óskast í timbur aðallega stærðirnar
2x4,1x6 og 1x4 í mismunandi lengdum. Enn-
fremur þilplötur og annað efni, sem notað var
á Landbúnaðarsýningunni ’68. Efnið er til sýn
is við Múlaveg í dag og á morgun. Tilboð
sendist skrifstofu Stéttarsambands bænda
Bæ/idahöllinni, þar sem þau verða opnuð kl.
10.30 laugardaginn 7. sept.
Landbúnaðarsýningin ’68.
Mjög gott sjónvarpsfæki
Til sölu á hagkvæmu verði. Upplýsingar í
síma 23410 eftir kl. 17.30.
1 gær var einn skásti veiöi-
dagurinn, sem komið hefur
lengi hjá síldveiðiflotanum og
fengu 14 skip veiði, samtals um
700 lestir.
Síldin færist stöðugt suður á
bóginn og virðist nú heldur þok-
ast ti'l vestlægari stefnu. Jakob Ja-
kobsson hefur spáð því að síldin
muni taka stefnuna suð-vestur og
upp að landinu næstu daga, eða
þegar hún er komin suður undir
72. gráðu, en norski síldarfræðing-
urinn Devold, hefur sagt að eins
miklar líkur væru á aö síldin tæki
stefnuna austur á bóginn og nálg
aðist þá Noregsstrendur.
Sfldin lónar þama suður meö
kaldsjávarsvæöi, sem nær suður
undir 72. gráðu en þar sunnan við
og austan er hlýrri sjór. — Veiöi
svæðið í nótt var 73° 25‘ N br. og
9° 40‘ A 1. Jakob Jakobsson fann í
nótt sfld nokkru suð-vestan við
þetta svæði. Síldin var ekki eins
stygg í nótt og hún hefur verið og
reyndist auðveldara að ná henni í
nætumar. — 1 gær var mikið salt
að um borð í skipunum á miðunum,
síld, sem veiddist í fyrradag. Vitað
er um eitt skip, Eldborgu frá Hafn-
arfirði á landleið með saltsíld. Skip
ið er með 1449 tunnur og fer senni
lega með þær til Eskifjarðar, en
þar hefur Eldborg landaö öðrum
farmi áður.
Þessi skrp tilkynntu síldarleitinni
um afla síöasta sólarhring:
þTáttfari 35 tonn, Gígja 90, Heim-
ir 25, Héðinn 15, Gjafar 20, Hárpa
110 Óskar Magnússon 40, Vörður
20, Guðbjörg ÍS 70, Ingiber Ólafs-
son 35, Fylkir 50, Sigurbjörg 50,
Kristján Valgeir 50 og Súlan 90.
Enn einn
I "íSEEVS:.''-
®—> 1. síðu
að stefnið vísar beint á land. Hann
hallast æðimikið á stjórnborðshlið.
Brúnleitt dekkiö er mannlaust. tJr
stefni skipsins liggja línur upp á
land. Á endanum á öðrum lífvaðn-
um sáum við rauðan björgunarstðl-
inn. Skipverjar hljóta allir að vera
komnir á land.
Á sandinum sjáum við menn á
lireyfingu innan um bílana. Þarna
eru tíu eða tólf jeppar. Lengra
uppi á landi sjáum við rútubíl á
hreyfingu. Hann stefnir hægt frá
strandstaðnum. Nokkrir menn j
ganga á undan honum. Nokkrir
þeirra eru á klofstígvélum.
Kannski voru þeir um borð í |
skipinu fyrir stundu síðan. Þeir i
vilja sennilega ekki eiga á hættu j
að festa bifreiðina í sandinum. i
Þeir líta upp, þegar þeir heyra
vélardyninn.
|
Flugvélin flýgur annan hring
yfir togaranum. Framhlerinn er úti, j
stjómborðsmegin. Öldurnar skolast j
um skipshliöamar, klofna á skutn- ,
um og skolast fram meö hliðunum.
Einn jeppinn er kominn af stað,
heldur inif í land í humátt á eftir
rútunni. Tveir fuglar flögra yfir
skipinu, þeir svífa um og láta vind-
inn bera sig. Undarleg litbrigöi
myndast, þegar hvítar öldumar
sogast út af svörtum sandinum.
Hér höfum við ekkert meira að j
gera. Við stefnum aftur til Reykja- !
víkur. Eftir rúmar fimmtán mínút-
ur, erum við lentir aftur.
„Er eitthvað á seyði?“ spyr
maður, sem við hittum á flugvell-
i inum, greinilega nývaknaður. Ekki
j annað en þaö, að í nótt hefur enn
ein orustan verið háð við hafið
undan íslandsströndum, sem að
þessu sinni liefur orðið af bráð
sinni. Sem betur fór varð mann-
björg.
.......... ■ ,.:asEwaeaim
Þessi langferðabíll var á leið
upp af sandinum frá strand-
staðnum. Mennirnir gengu á
eftir til að þyngja ekki bílinn
um of í gljúpum sandinum.
N t
Surprise —
i síðu
og var farið með þá upp á Hvols
völl í morgun, en þaðan oru
þeir væntanlegir í bæinn um
hádegi, allir nema skipsstjóri
og vélamenn, sem munu bíða á-
tekta í Sigluvík, eftir því að
reynt verði að ná skipinu á
flot í dag.
Vélar skipsins voru í gangi,
allt þar til skiþstjórinn yfirgaf
skipið og virtist það algerlega
óskemmt. Varöskipið Ægir, sem
var austur við Alviöruhamra,
þegar strandið varð fór þegar á
vettvang og átti aö vera komiö
að strandstað klukkan ellefu i
morgun. — Átti þá aö athuga
aöstæður og möguleika á því að
ná skipinu á flot, en það var
talið hæpiö meöan rokið héldist.
Þeir nást venjulega út
þarna, segir Ágúst bóndi
í Sigluvík.
Blaðiö hafði samband viö
Ágúst bónda í Sigluvík í morg-
un, en hann varö fyrstur manna
á strandstaöinn, enda strand-
aði skipið rétt niður undan bæ
hans.
— Ég varð ekki var við þetta,
sagöi Ágúst, fyrr en ég kom á
fætur klukkan sex í morgun. —
Skipið var þá eiginlega á floti
og ég sá hann fara þarna upp
í sarídinn. — Skipiö virtist þá
allt óskemmt og ég tel engan
vafa á því að hægt veröi að ná
því út, ef þeir koma nógu
snemma, til þess að draga þaö af
sandinum. — Þau hafa yfirleitt
öll náðst út, þessi skip sem hafa
strandað hér á sandinum.
Ágúst sagði að síðasta skipið
hefði farið þarna upp á sand-
inn 1956, þaö var Frosti frá
Vestmannaeyjum — og hann
náöist út 20 dögum eftir strand-
ið. Ágúst sagði ströndina vara-
sama á þessum slóðum vegna
þess hversu aðdjúpt væri þarna
og skipverjar hafa sennilega
ekki áttaö sig vegna dimmviðr-
isins hversu nálægt þeir voru
komnir landinu.
Togarinn Surprise er smíðað-
ur í Skotlandi árið 1947. Eig-
andi er Þ. Erlingsson & Co„
Hafnarfirði. Skipiö var nýkomið
úr viðgerð í Reykjavík.
BORGIN
BELLA
Viltu svara fyrir mig i símam
og segja að forstjórinn sé ekld
við, svo ég geti kjaftaö áfram í
simann. Segðu að hann komi eftir
tvo tima!
VEÐRIÐ
I DAG
Suðaustan stinn-
ingskaldi eða all
hvasst, skýjað og
dálítil rigning
ööru hverju, held
ur hægara í nótt.
Hiti 12-14 stig.
Bæjarfréttir. — Grímur Jóns
son cand. theol. frá ísafirði ei
staddur hér í bænum.
Vísir 5. sept. 1918.
Ragnar Þórarinssor
yfirsmiður
i í Viðtali við Jón málara Jónssor
s.l. mánudag f Vísi á 6. síðu. Þa
sem segir frá húsbyggingu Íslandí
1 félagsins á Siglufirði féll niðu
j setningin: Yfirsmiður var Ragna
Þórarinsson trésmiður frá Homa
firði, er siðar átti í mörg ár sæti
i stjórn Trésmiðafélags Reykjavik-
Göngur —
milli Hvítár og Þjórsár. Þessar
'réttir hafa undanfarin ár verið
færðar fram um eina viku til þess
að bændur geti fyrr byrjað að
slátra. Sama dag munu réttir hefj-
ast norðanlands. Guðmundur Jósa-
fatsson, hjá Búnaöarfélagi fslands.
sagði í morgun, að vonir bænda
sunnanlands um góða uppskeru
hefðu brugðizt síðustu vikur. Hey
I væri mjög hrakið.
BS*Ber.7«saa«
W3t«sæ»
i