Vísir - 05.09.1968, Page 9

Vísir - 05.09.1968, Page 9
V í SIR . Fimmtudagur 5. september 1968. 9 • VIÐTAL DAGSINS er við Magnús Olafsson, sem man timana tvenna / Borgarnesi í rið 1880 bjuggu á Unastöð- um í Lundarreykjadal for- eldrar Magnúsar, þau hjónin Ólafur Helgason og Guðrlður Ottadóttir. Hún var ættuð frá Hrísakoti í Brynjudal, en hann Borgfirðingur. Faðir Hans, Helgi, bjó allan sinn búskap á Stóru- Drageyri £ Skorradal. — Ég var nú hálfgerður óviti fyrstu árin, og man því fátt eitt frá æsku minni. Móðir mín dó úr mislingum, þegar ég var á fyrsta ári, systir min úr kíg- hósta árið áður og ekki var ég fullra 5 ára, þegar faðir minn lézt. Hann var þá aö koma frá sjó og veiktist af lungnabólgu, er varð hans banamein. Þetta kot sem foreldrar mín- ir hokruðu á gaf ekki mikil tækifæri til velmegunar enda var víst ekki rúmt um hendur Þær eigur sem faðir minn lét eftir sig voru seldar á ,,axíón“. Þá var sýslumaður I Amar- holti, Guðmundur Gíslason. Hann fól fööurbróður mínum, Jóhanni I Grafardal, innheimtu búsins og forsjá fyrir mér. Ekki lét Jóhann mig fara á neinn flæking, en tók mig sjálf- ur, blessaður karlinn og haföi ég víst gott af því. — Hve lengi dvaldir þú hjá honum? — Fram yfir fermingu, þá fór ég viimumaöur til Þorsteins Péturssonar á Gmnd I Skorra- dal. Þar var ég I þrjú ár, en réðst þá að Hvanneyri til Hjartar Snorrasonar og Ragn- heiðar Torfadóttur frá Ólafsdal. Þar þótti vist flestum gott að vera,'mér ekki síður en öörum. — Var mikill búrekstur á Hvanneyri? — Já, Hjörtur hafði mikið umleikis. Ærnar voru 300, allt- af 120 sauöir og svo 100 geml- ingar. Ekki vissi ég hve kýmar voru margar, því ég kohi aldrei i fjósið, en þar var víst margt gripa. Talsvert var af hrossum, yfir 20 tamin. l^rá Hvanneyri fór ég áriö 1908 og þá hingað I Borg- arnes og hér hef ég svo hangiö siðan. Það var fyrst og fremst fyrir tilmæli Halldórs Vilhjálmssonar skólastjóra, aö svo réðist. Hann vildi, að ég tækist á hendur að annast vörúflutninga frá Borg- arnesi upp í árnar og vestur á Mýrar. Ég fékk lítinn mótorbát og notaði hann til að draga bát- ana sem farmurinn var hafður i. — Gat þetta ekki veriö erf- itt og vossamt? — Ójú, hent gat þaö. Maöur mátti ekki sofa allan sólar- hringinn. Flóð og fjara hegöa sér ekki eftir svefnþörf manna. — Var þetta þitt aðalstarf árið um kring? — Já, og auk þess afgreiðsla allra þeirra skipa og báta er í Borgarnes komu. Fyrsti flóa- báturinn var víst „Faxi“. Hann kom hér nokkrum sinnum, einnig Elín. Hún strandaði nú hjá þeim þarna syðra. Fyrsti báturinn, sem keyptur var til að halda uppi reglulegum ferö- um milli Borgarness og Reykja- vikur, hét Ingólfur. Hann fór Magnús Ólafsson. var einn þeirra sem fór utan til að sækja skipið. Þegar halda skyldi heim, var svo mikill ís á sundunum, aö við koiíiumst ekki en urðum að fara til Þýzka lands og gegnum Kielskurðinn heim á leið, tók siglingin til ís- lands um þrjá sólarhringa. — Er Akraborgin gott skip? — Tá, það mun hún geta tal- " izt, en þó ekki gott að -stýra henni á lensi, en hún er góð ef kvikan kemur framan undir. — Nú er hætt aö halda uppi ferðum sjóleiðina milli Reykja- víkur og Borgarnes? — Já, það er um hálft annað ár síðan. Allir flutningar fara fram með bílum. — Hve lengi hefur þú annazt afgreiðslu skipa í Borgarnesi? - Óslitið frá 1908 - 1954, eða í 46 ár. — Hvernig var meö afgreiðsl- una áður en bryggjur komu? — Þá var öllu skipað upp á bátum. allt fram til 1930. Oft geröi bölvaður straumurinn manni erfitt fyrir. — Einhver hefur sagt mér aö þú værir hestamaður, Magn ús? — Hestamaður, mér þykir gaman að hestum og fer vel með þá. Ég vandist því fyrst á Grund og síðar á Hvanneyri, að um- gangast mikið hesta. Það var alltaf verið aö temja. Þor- steinn hafði stundum gaman af að sjá hve mér tókst að hanga á trippunum, þótt þau væru villt. — Þú hefur átt góða hesta? — Já, nokkra, t,d. Lýsing og Sprota. Lýsingur var leirljós, lít iö kvikindi. eldsnöggur. Feikna skeiðhestur ef maður náði hon um „ofan“. Hann var skapharð- ur og stríðlyndur, iUa. taminn í fýrstu. Ég réði stundurn ^kkert við hann. Sproti var mikill hestur, stór „Ég var hálfgerður óviti fyrstu árin“ tvær ferðir i viku. Þetta var lítill kuggur, líklega um 70 tonn. Hann kom sama áriö og ég flutti í Borgarnes, og var í förum fram í apríl árið 1918. Þegar Ingólfur gafst upp, var ekkert skip fyrir hendi og því gripið til þess ráðs að leigja tvo litla mótorbáta. — Hefur aldrei verið útgerð frá Borgarnesi? — Jú, það var gert út héöan i tvö ár. Bátarnir hétu Haförn og Hvítá. En sú tilraun fór út um þúfur, olli því langræði og sjávarföll. Eftir að mótorbátamir hættu milliferðum, var fenginn lítill bátur, sem Skjöldur hét, og var eign Elíasar Stefánssonar út- gerðarmanns í Reykjavík. Ekki var hann þó lengi og þá kom Suðurlandið, sem síðast laut þeim örlögum aö vera siglt á land í Djúpuvík á Ströndum og notað þar sem braggi fyrir síldarvinnufólk. Þegar Suður- landið hætti var Laxfoss keypt- ur, en hann strandaöi á skeri nærri Örfirisey, sem betur fór varð mannbjörg. Skipið hékk lengi á skerinu og virtist aldrei ætla að komast í verk að ná því þaöan. íyjeðan þessu fór fram var allt í óreiðu með ferðirnar og skapaöist, af þeim sökum, vandræðaástand. Vegur var þá kominn milli Akraness og Borg- arness, og varð að því nokkur bót, því auöveldara og ódýrara var að fá bát milli Akraness og Reykjavíkur. Þar kom að lokum, að Laxfoss náðist af skerinu og var settur i „slipp". Að lokinni aögerð, sem þar fór fram, hóf hann ferðir að nýju, en strandaði svo síðar aftur upp undir Kjalamesi og eyðilagðist meö öllu. í hið fyrra skiptið var skipstjóri Pétur Ingjalds- son, en hið síðara Þórður Guð- mundsson, sá hinn sami og nú fer með Akraborg. Báðir þessir menn eru viöurkenndir skipherrar, en þótt ekki sé á lengri leið en milli Akraness og Reykjavíkur getur ýmsa válega hluti að borið, sem ekki er gott að sjá fyrir né ráða við. Eftir þessar hrakfarir Lax- foss, vaf fenginn stór bátur, sem var á vegum Borgnesinga, Eldborgin, til að annast ferðim ar. Þetta var mikið og gott skip og var nokkur ár í notkun. En svo var í það ráðizt að láta býggja skip úti í Morstad í Dan mörku. Það er lítil eyja, leiöinda staöur. Hér var um að ræða Akraborgina, sem síðan hefur haldið uppi þessum ferðum. Ég vexti, gangmikill og bar sig nokkuð hátt. Hann var rauð- yrjóttur með hvitan sprota á lendinni. Ég fékk hann hjá kunn ingja mínum fyrir mestu náð. — Hver var kona þín? — Hún hét Guðrún Guð- mundsdóttir frá Deild á Akra- nesi. — Hvernig gekk ykkur svo að hafa lífsframfæri af atvinnu þinni? — Einhvem veginn komumst við af, enda varð svo að vera. Meðan ég hafði afgreiðsluna upp á eigin spýtur, átti ég að skila öllum fröktum, en fékk það sem kom inn fyrir uppskipanir. — Einnig fékk ég 5 aura af hverj um manni sem fluttur var aö og frá skipi. Það dró sig sam- an, þegar margt var með skip- ingu. Á þessari gjaldskrá varð engin breyting fram til 1930. — Gaztu ekki haft einhverja vinnu með þessu afgreiðslu- mannsstarfi? — Jú, við höfðum oftast um 30 kindur, eina kú og tvo hesta. Fyrir þessu heyjuðum við svo á sumrin. Maður leyfði sér svo sem enga eyðslu, enda hefði það dregiö skammt til að upp- fylla hliðstæðar kröfur þeim, sem fólk nú vill fá uppfylltar. 13. síða i«SG i r ■ij'ftSifffl rim sftb: LOKUNARTÍMI sölubúða var ekki fyrir löngu ti! umræöu ó fundi Kaupmannasamtakanna að Bifröst. Á briðúidae var ritað um málið á kvennassðu, og i framhaldi af því spyrjum við nokkrar húsmæður: Teljið þér æskilegt að opnunartími sölubúða verði lengdur? Jóna Magnúsdóttir húsmóðir: — Opnunartíminn er ab'eg nógu langur fyrir mig. Margrét Eyjólfsdóttir, húsmóðir: — Nei, opnunartíminn er nógu langur og mikla meira en það, Auk þess er allt opið á kvöldin. — Hann er alveg nógu langur eins og hann er. Svava Valfells, húsmóðir: — Já, tvímælalaust. Það væri ■ mikiö hagræði að því fyrir hús- mæöur, t. d. þær, sem eru bundn ar yfir barni og eiga ekki heim- angengt f búðir. Ef opnunartím- inn yröi lengdur, gætu þær farið ■ og verzlaö eftir að maðurinn er kominn heim úr vinnunni. Þorbjörg Valdimarsdóttir. hús- móðir og skrifstofustúlka: — Nei, ég myndi frekar vilja hafa líka lokað á laugardögum, maðurinn minn vinnur nefnilega í verzlun.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.