Vísir - 20.09.1968, Page 3
Ví SIR / Föstudagur 20. september 1968.
3
> • \ ' -j ;■ ;■ -
Með forstjórum og einkariturum á skólabekk
„Cvo lengi lærir, sem lifir“,
segir gamla máltækið og ,
skynsamra manna háttur er það
að notfæra sér reynslu annarra
og læra af henni, eins og unnt
er. Enda urðu allmargir til þess
að gripa tækifærið, sem nám-
skeið Stjórnunarfélags íslands
fyrir stjómendur fyrir-
tækja og einkaritara þeirra
veitti, til þess að fræða menn
um hagnýt „kontór“ vinnubrögð
Rosknir og virðulegir forstjór-
ar og aðrir stjómendur fyrir-
tækja og stofnana settust á
skólabekkinn á mánudag til þess
að hlýða á tilsögn danskrar
kennslukonu, sem beinlinis er
hingað komin til þess að kenna
þeim, hvernig þeir geti sem bezt
velt sem mestu af daglegum önn
um sinum yfir á herðar vesal-
ings einkaritara sinna. Heilum
degi frá öörum þýðingarmiklum
störfum vöröu þeir til þess að
hlýða á fyrirlestra frú Elínar
Hansen, sem kann góð skil á
þessari list.
Áhugi einkaritara á þessu
námskeiði virtist ekki benda til
þess, að þeir teldu sig þurfa
neinnar meðaumkunar við, þótt
stjómendur þeirra væru að búa
sig undir að leggja á herðar
þeirra meira starf og meiri á-
byrgð. Nær sex tugir sóttu um
þátttöku * námskeiðinu, sem
veitti einkariturum tllsögn f þvi,
hvemig þeir gætu gengiö til
móts við stiórnendur sína við
að létta af þeim sem mestu í
hinum daglega erli. Til þess
vörðu einkaritaramlr tveim dög-
um.
„Mér kemur I hug, að þeim
heföi ekki veitt af tveim dögum
líka, blessuðum,“ sagöi ein stúlk
an við stöllu sína, svo Mynd-
sjáin heyröi, um leið og þær
gengu út að afloknum einum
fyrirlestra frú Elínar Hansen.
„Það er reyndar mín reynsla
einnig heima f Danmörku,“
sagði frúin, þegar Myndsjáin bar
það undir hana. „Margir stjórn-
enda, sem gengið höföu á nám-
skeið hjá okkur (í IBM), höfðu
samt ekki lag á því aö beita
einkariturum sínum til fulls. Ein
kennilegt kann það að virðast,
en einkum voru það yngri menn
irnir, sem voru þá að vinna sig
upp.“
Hún sagðist hafa ánægju af
þeim áhuga, sem ríkti fyrir nám-
skeiðinu, en eins saknaði hún úr
kennslustundunum. Það var nán-
ast viðburður, ef einhver spurði
spurninga, en frúnni skildist, að
það væri nánast þjóðareinkenni
Útlit og klæðnaður, starfsfólk, fyrlrtækið, framkvæmdastjórinn, hegðun — yfirleitt allt,
sem hugsanlega getur snert starf einkaritarans, var hugleitt og rætt á námskeiðinu.
Stjómendur fyrirtækja og stofnana á skóiabekk.
l tvo daga hlýduu pær á fyrirlestra og nettu uokum og leiööeiningarpésum til þess að geta
komið stjórnendum sínum að sem mestu liði í starfinu.