Vísir - 30.09.1968, Síða 12

Vísir - 30.09.1968, Síða 12
V1SIR . Mánudagur 30. september 1968. 12 j ly Edgak Rtcs BunnouGHS SREAT! TLU GOALONQ i WíTH IT! .SHOULPMAK3E i FINPING F TARZAN - 1 EASIER! ^ - £>OK-í/t-OT»a- SONOFGOD! THEY THINK I'M THE SON OF THEIR TAIlrLESS v GOVl DQK-UL-OTHO! r f. -rvese > f HO-DONS • PONT SEEM ; TO KNOW • ANYTH1N6 A0OLTT HIM_ BUTOTHERS .. MK3HT* . Úrval af permanentum og hárkúrum fyrir allt hár. HELGU JÓAKIMSDÓTTUR SKIPHOLTI 37 SÍMI 81845 3vert ertu að íara, svona fyrir- varalanst....?“ „Ég ætla að skreppa í stutta 1 gönguf erð ... „Er eitthvað aö?“ Hann ætlaði jað standa upp en hrkaði viö þaö. S.Má ég ekki koma með þér, Laura .... það er svo mikið og margt, ,sem ég þarf að ræða við þig?" „Ég kem aftur“, svaraði hún ró- lega. „Þú mátt ekki reyna á fót- inn enn.“ Hún gekk brott úr saln- um án þess að líta um öxl. Og hún lét sem hún sæi ekki Merriday, sem reis úr sæti sínu og hneigöi sig með glaðMakkalegu brosi, þegar hún gekk fram hjá. FJÓRTÁNDI KAELL Frammi á bergbrúninni var nokk- urn veginn skjól fyrir norðvestan- áttinni, loftið milt og hressandi seltublandiö um leiö. Hún tók sér sæti á bekk, sem stóö við stíginn, rétt hjá þar sem slóöinn lá út af niður aö einstiginu ofan í fjöruna. Hún var staðráðin í að kryfja til- finningar sínar til mergjar, eða að minnsta kosti komast að einhverri hiðurstööu. Nú hefurðu staðið andspænis honum, sagði hún viö sjálfa sig, og þú varðst einskis vör. Hvað hefur orðið af ást þinni og söknuði? Jafnvel sú kennd, að hún væri einungis vofa af sjálfri sér, sjúk- lega einangruð frá öllum raunveru leika, virtist með öllu horfin. Hún gat þó ekki gert sér grein fyrir hvenær hún haföi Horfið. Vissi þaö eitt, aö hún haföi allt í einu fund- ið sig standa föstum fótum í raun veruleikanum aftur, fundið að hún stóð í tengslum við jörð, himin og haf, að hún var virkur þátttakandi í því, sem fram fór í kringum hana, ásamt öðru raunverulegu fólki.... að hún hafði endurheimt allt þaö, sem hún hafði verið svipt, morgun inn sem hún ók af stað til strand arinnar, eða kannski löngu áður ... Hún heyrði óm af röddum, og þegar henni varð litiö eftir berg- brúninni, aö kofa Christians, sá Hún að þeir Christian, Kahler og þriðji maður, sem hún bar ekki kennsl á, stóðu á þrepinu fvrir dyrum úti. Það var ómurinn af samtali þeirra, sem hún heyrði. Kahler og þessi ókunni maður lögöu af'síkð eftir stígnum. Christ- ian stóð andartak og horfði á haf út ætlaði síðan að hverfa inn aft- ur en varð þá litiö þangaö sem hún sat og kom auga á hana. Hann hélt þá óðara í humátt á eftir þeim Kahler og félaga hans. Kahler veif- aði til hennar þegar þeir gengu framhjá, þar sem hún sat. Félagi hans var mjög á aldur við hann sjálfan, dökkhærður. Þeir héldu up að kránni. „Yndislegt veður“, sagði Christ- ian, þegar hann nam staðar hjá henni. Hún leit á hann, horfði í augu honum og nokkurt andartak rauf ekkert þögnina nema brimgnýrinn og gargið í mávunum. Hann settist hjá henni. „Ég þurfti einmitt að tala við þig“, sagði hann. Hún fann ekkert svar við því, og enn varð nokkur þögn. Þvínæst sagði hann, en án þess að líta til hennar. „Ég ætla að segja þér það að ég ann þér...“ Hún staröi á hendur sér. Fyrst var sem kaldur hrollur færi um hana, í næstu andrá varð henni undarlega heitt. Skyndilega komu tár 1 augu henni, sem hún gerði hvorki tilraun til að leyna eöa þerra. Hún sat þarna hljóð og hreyfingarlaus og fann goluna leika um heita vanga sína. „Hefur það þýðingu fyrir þig?“ spurði hann. Hún kinkaði kolli. „Já“. „Þykir þér miður aö ég skyldi segja þér það?“ „Nei“. Hún hristi höfuðið. „Og mig langaði til að skýra þér frá öðru”, mælti hann enn. „Ég finn að ég er fær um það nú, en þér er það kannski á móti skapi...“ Hún leit á hann. „Ég vil einmitt að þú segir mér það“. „Það er varðandi mig og Lindu Hún kinkaði enn kolli. „Segðu mér það Christian“. „Ég taldi mig eiga sök á því að hún framdi sjálfsmorð ...“ sagði hann. „Að vissu leyti er sagan þar með öll sögð. Og ef til vill er það vegna þess aö ég vildi losna við Aðvörun til húseigenda Vegna síendurtekinna kvartana viljum við hér með ítreka aðvörun okkar til húseigenda við auglýsingum ýmissa réttindalausra aðila um húsaviðgerðir, og benda húsbyggjendum á að leita uplýsinga hjá samtökum byggingar- iðnaðarmanna. Meistarafélag húsasmiða, Trésmiðafélag Reykjavíkur. Blaðburðarbörn óskast í KÓPAVOG (austurbæ) Uppl. í síma 41168. DAGBLAÐH) VÍSIR ÝMÍSLEGT ÝMISLEGT rðkum aC oKkui overs konai uiúroro' og sprengivmnu i búsgrunnum og ræs um Lelgjum ú? loftpressur og vfbn sleða Vélaleiga Steindðrs Sigbvats sonai Aifabrekkn viC Suðurlands DrauL «fm1 10435 Dor-Ul-Otho. Sonur guðs. Þeir halda að ég sé sonur halalausa guðs þeirra. Fínt, ég mun láta þá halda það. Það ætti að auðvelda að finna Tarzan. Þessir Ho-Donar virðast ekkert vita um hann, þótt aðrir geri það. Ho-Donar, farið með mig til borgar ykkar. TiE sölu Willys ’67 með blæjum, fallegur, skipti á sportbfl 2ja manna. - pel Caravan ’62, glæsilegur bfll, skipti koma til greina á Cortina G.T. eða Singer Vogue. Volkswagen ‘55 til ’68. Opel Rekord á góöu verði. Nokkrir bflar án útborgunar. Bilasalinn við Vitatorg Sími 12500 og 12600. Bílasala — Bílaskipti Hillmann Superminx station, ’65 vill skipta á evrópskum station bfl, árg. ’67 til ’69. — Mismunur borgaður út. Bifreiðasalan, Borgartúni 7 Símar 18085 og 19615. Heilsuvernd Námskeiðin í tauga- og vöðva- slökun, öndunaræfingum og létt- um þjálfunaræfingum, fyrir kon- ur og karla, hefjast mánudaginn 7. október. Uppl. í síma 12240. Vignir Andrésson. r ^aas^ ViNNINGAR MERCEDES BENZ 220 ÁRGERÐ 1969 VERÐMÆTI KR.: 854.000,00 VERÐ KR.: 100 DREGIÐ 5. NÓVEMBER 1968 0GREIDDIR REIKNINGAR LATIÐ OKKUR INNHEIMTA... ' i t>oð sparat yður tima og óbægmdi j INNHEIMTUSKRIFSTOFAN Tjarnargötu 10 — III hæð —Vonarstrætismegm — Simi 13175 (3linur)

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.