Vísir - 07.10.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 07.10.1968, Blaðsíða 1
VISIR ásg. - Máuudagar 7. október 1©68. - 225. tbl. „Hann ekur á öfugum kunti" sagbi ökumaburinn, var hins vegar sjálfur á öfugum kanti — Sjáiö! Hann er á öfugum kanti þessi, varð ökumanni að orði sem 6k austur Þrengslaveg um helg ina og maetti bifreið á mótum Suð uriandsvegar. Með honum í bíln- um voru tveir farþegar og gátu þeir ekki betur séð en hann hefði þama rétt fyrir sér. En ekkert var þó gert til þess að koma í veg fyrir að óhapp yrði. Hvorugur stöðvaði eða vék út á hinn vegarheiminginn fyrr en allt var orðið um seinan. Bílamir rákust harkalega saman og stórskemmdust, en fyrir ein- hverja óskiljaniega mildi urðu engin slys á mönnum. Báða bílana TVÆR BÍL- VELTUR í NÓTT ® Bíivelta varð í nótt á Vestur- landsvegi, skammt frá Korpu. Öku maðurlnn missti vald á bifreið sinni einhverra hiuta vegna og steyptist bíllinn út af veginum. Með ökumanni var í bílnum ung stúlka og meiddist hún illa á hægra fæti, en bflstjórinn hiaut taugaáfall og voru baeði flutt á slysavarðstof- una. Önnur bilvelta varð í nótt á mót- um Kalkofnsvegar og Skúlagötu Þar komu vegfarendur að bílnum oltnum á hliðina, en ökumaðurinn vár farinn af staðnum, þegar lög- reglan kom að. Hann kom þó stuttu síðar á vettvang og féll á grunur um áð hann hefði ekið undir áhrif- um áfengis. Var hann fluttur á brott til frékari yfirheyrslu og blóð rannsóknar. þurfti að draga burt mð kranabíl. En svo kom í ljós, að sá, sem ekið hafði austur og hafði orð á því við farþega sína, að hinn vseri á öfugum kanti, var s.iálfur sá, sem ók á vinstri kanti. Hinn ökumað- urinn, sem var kona, ók réttilega á hægra vegarhelmingi. Svo föstum tökum getur vinstri vilian gripið menn. Heim með bikarinn Mikil gleði var í Vestmanna- eyjum um helgina. Knattspymu menn Eyja höfðu komið heim með bikarinn í bikarkeppni KSf, öðru af hinum „stóru knatt- spyrnumótum“ sumarsins. Lauk þar með giæsiiegu sumri knatt- spyrnumanna þar. Eftir sigurleikinn gegn KR á laugardaginn var flogið til Eyja, en þar tók bæjarstjóm á móti knattspyrnumönnunum ásamt miklum mannfjöida. Haidnar voru ræður knattspyrnumönn- unum til heiðurs og þeim barst fjöldinn allur af blómum. ... hrísgrjónadrífa hafnaði á sigurvegurunum, þegar þeir héldu innreið sína með bikarinn í bæinn, höfðu nokkrir ungir menn birgt sig upp af grjónum og úðuðu þeim yfir sigurvegar- anna, eins og oft er gert erlend- is við svipuð tækifæri. Á myndinni er Sigmar Pálma son með bikarinn. — SJá bls. 2. HASKALEGT AÐ BLANDA SER í ÁTÖKIN Á ÍTALÍUMARKAÐNUM — sagöi Tómas Þorvaldsson, stjómarform. SIF, / viðtali v/ð Visi — Góður árangur i Portúgal og S-Ameriku • Það er háskalegt fyrir okkur að blanda okkur f átök þau, sem eiga sér stað í sí- fellu milli saltfiskshringanna í ftalíu. Við eigum nóg með okkur, sagði Tómas Þorvalds- son, stjórnarformaður SÍF, Sölusambands íslenzkra fisk- framleiöenda, í viðtali við Vísi í morgun. Tómas kom til landsins ásamt Hfelga Þór- arinssvni. framkvæmdastjóra SÍF, á laugardaginn, en þeir höfðu þá verið á 5 vikna sölu- ferðalági í Portúgal, Spáni og löndum í Mið- og S-Ameriku. Mér þykir leitt að við skyld- um ekíd getá átt viðskipti við hr. Mercurio, sem vi'ðhöfum oft átt viðskipti við, en höf- um ekki haft ástæðu til þess að kvarta yfir þeim viðskipt- um. Málin hafa snúizt á þahn veg, að við getum ekki átt við hann viðskipti nú. Tómas taldi sig þess ekki um- kominn að skýra frá árangri ferðar þeirra Helga í öllum smá- atriðum að sinni, en þeir eiga eftir uð skila skýrslu til stjórn ar SÍF um ferðina. Þeir Helgi Þórarinsson fóru fyrst til Portúgal til þess að endurnýja leyfi fyrir saltfisk- innflutningi en leyfin höfðu runn ið út í ágúst. Öll leyfi fyrir saitfiskinnflutningi til Portúgai gengu úr gildi en samtök útgerð armanna í Portúgal gengust fyr- ir því að þau yrðu felld úr gildi vegna þess að þeir vildu hafa betri tök á markaðnum. SÍF átti ónotað innflutnings- levfi fyrir um 4250 tonnum, þeg- ar þau voru numin úr gildi, en þetta magn var hægt að auka upp í um 4800 tonn. Var byrjun- arerindið í ferðinni að fá leyfi fyrir þessum innflutningi aftur. Ambassador íslands í London, Guðmundur í. Guðmundsson að- stoðaði þá, en mjög erfiðlega gekk að fá þessi leyfi. I fyrstu lotu fékkst leyfið ekki og héldu þeir þá til S-Ameriku til þess að semja um sölu á saltfiski þangað. Þeim tókst að semja um sölu á ölium saltfiski, sem til er i iandinu og verkaður er fyrir S-Amerikumarkað. Eftir dvölina í S-Ameriku skildu leiðir þeirra, Helgi hélt til Mexíkó til þess að huga að markaðsástandinu þar, en Tóm- as fór til Portúgal aftur og Heigi seinna. I Portúgal fengu þeir loks eft- ið mikið þjark leyfin endurnýjuð fyrir saltfiskinnflutning og samningur á sölu á um 1500 tonnum var endumýjaður (þessi saltfiskur er á góðu verði, sagði Tómas). Eftir dvölina i Portúgal héldu þeir þegar til Spánar, þar sem þeir reyndu að fá innflutnings- leyfi, en SÍF hefur á hendi samning um söiu á um 1500 tonnum þangað. Þegar þeir fóru var ekki útséð um, hvort leyfi fengist til að flytja þennan salt- fisk inn. í VÍSI í DAG Bls. 3: Hver er vinsælastur? Skoðanakönnun Vísls snýst að þessu sinni um vinsældir manna, og kýrt er frá þvi, hvaða menn, fslenzkir og erlendir, njóta mestra vinsælda hérléndis. Bls. 8: „Kristnihald undir jökli“. Gagnrýni um nýjustu skáldsögu nóbelsskáldsins Halldórs Laxness. 1 8 ár hafa menn beðið eftir nýrri skáldsögu frá hans hendi. Nú er hún umtalaðasta bók á markaðnum. Bls. 9: 7D00 manns í Síðumúla. Viðtal dagsins er við Bjarka Elíasson lögregluvarðstjóra um ofdrykkjuvandamálið. Þar kemur frani, að á siðasta ári gistu um 7000 manns fangagé.vmsluna í Síðumúla, eða um 20 manns á sólarhring. Þó eru aðeihs 18 ein- menningsklefar. ÞÓTTIRAFMAGNIÐ 0FDÝRT Valgarð Thoroddsen, orkumála- stjóri sagði f morgun, að Rafmagns- veitum ríkisins hefði þótt Patreks- Þrjú skip fó síld við SV-land Þrir bátar eru komuir til sild- veíða hér sunnanlands og hafa fundlð smátorfur siðustu sólar- hringana. Skipin hafa einkum ver- ið úti á Eldéyjarbankanum. — I gær komu þau að landi með svo- lítinn afla, Hamravík m<>ð 100 tunn- ur, Alberl með 200 tunnur og Geir- fugl með 400 tunnur. firðingar selja rafmagn frá dísel- stöð sinni of háu verði og þess vegn. afþakkað frekara rafmagn þaðan. Rafveita Patreksfjarðar hef- ur keypt rafmagn i heildsölu af Rafmagnsveitunum, en selt í vara- tilfel'um rafmagn frá díselstöð sinni. Rafmagnsveiturnar hafa nú tvær slíkar varastöðvar aðrar sunn- an Arnarfjarðar og telja það full- nægjndi. Patreksfirðingar munu hins vegar ekki ánænðir með þau málalok. Þetta er i innað sinn á stuttum tima, að hreppsfélög deila við Rafmagnsveiturnar. I j fyrra skiptið var það hreppsnefnd ' Suðurfjarðarhrepps, Bíldudal, sem liugðist yfirtaka rafveituna á staðn I um og vitnnði i orkulög máli sínu til stuðnings. Rafmagnsveiturnar hættu þá við framkvæmdir á Bíldu- dal. Bændur bíða stór- tjón af gjaldþrotum kaupfélaga Kaupfélögum á landinu fer fækkandi um þessar mundir. Virðast hin stærri og sterkari vera í þann veginn að yfir- iaka hin minni. Gjaldþrot hafa orðið hiá kaupfélaginu á Ólafsvík og Kaupfélagi Austfirðinga. Bændur munu væntanlega stórtapa vegna gjaldþrotsins á Óiafsvík, en reynt hafði veriö að halda l>ví gangandi um langt skeið, þrátt fyrir fyrirsjáanlegt »-*- 10. síöa.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.