Vísir - 07.10.1968, Blaðsíða 12

Vísir - 07.10.1968, Blaðsíða 12
12 VÍSIR . Mánudagur 7. október 1968. DALE CARNEGIE NÁMSKEIÐIÐ Vegna mikillar eftirspurnar er nýtt námskeið að hefjast. Námskeiðið raun hjálpa þér að: ★ Öðlast hugrekki ogsjálfstraust. ir Tala af öryggi á fundum. ir Auka tekjur þinar, með hæfileikum þinum að um- gangast fólk. 85% af velgengni þinni, eru komin und- ir þvi, hvemig þér tekst að umgangast aðra. ★ Afla þér vinsælda og áhrifa. ic Verða betri sölumaður, hugmynda þinna, þjónustu eða vöru. ★ Bæta minni þitt nöfn og andlit og staðreyndir. ★ Verða betri stjórnandi vegna þekktigar þinnar á fólkj ★ Uppgötva ný áhugamál, ný markmið að stefna að. ★ Halda áhyggjum f skefjum og draga úr kviða. Námskeiðið hófst i Bandaríkjunum árið 1912 og haía yfir 1.000.000 karla og kvenna tekið þátt i því um allan heim. Innritun og upplýsingar í dag og næstu daga í síma 30216. KONRÁÐ ADOLPHSSON, viðskiptafræðingur. Merriday kom að borðinu og baö um konjakk. „Ég hef síður en svo }& móti steikinni“, sagði hann. „En fyrst þessi hertogaynja er svona ' grískbrjáluö — hvers vegna kemur ,.'hún sér ekki upp grískri matstofu. Ég er ekki í neinum vafa um, að * hún gæti grætt drjúgan skilding á slíku fyrirtæki". „Hvar er Seifur vor... og hvað 'dvelur Apolló vorn?“ spurði her • togaynjan stundarhátt. „Jæja þarna kemur þá sjávarguðinn sjálfur Pos- ■ eidon!“ Lauru varð litið um öxl og sá hvar Kahler kom, klæddur svörtum ' froskmannabúningi og með skutul- byssu í hendi. í sömu svifum opn- uðust dyrnar á kofa Aldos og Aldo kom út, klæddur sínum venjulegu fötum og skikkjulaus. „Ég skal sækja Seif“, sagði Gail Kerr við hertogaynjuna. Að svo mæltu lagði hún af stað upp stíg- inn að koma Christians. Laura minntist þess að umtalað hefði verið að Hawkins læknir bæri gervi Æskilapusar, lækningaguðsins en hann og kona hans nálguðust nú borðið með drykkjarföngunum. Kona hans var klædd hvítum kvöldslopp úr silki með lausri skikkju — hún átti að koma fram sem Helena. Aldo bar að, og hertogaynjan gekk í veg fyrir hann. „Hvar er skikkjan yöar?“ spurði hún hneyksl uð. „Ég hef enga, frú“. „Það er nóg að hafa lak...“ En svo hló hertogaynjan. „Ef þér viljiö hins vegar sveipa yður skikkjunni á sama hátt og Appoló ber hana á fornum likneskjum og teikningum býst ég viö, að þér telduö yður líka þurfa á fíkjuviðarlaufi að halda." Winifred, sem virtist mun djarf ari eftir að hún var komin í gervi smeygði hendinni undir arm Aldos. Hún hló líka. „Komið inn með mér andartak, klaufski guð, ég skal hjálpa yður með gervið". Hún hafði sveipað Iak-skikkjunni þannig að sér að mjaömir hennar og lendar urðu engum launungarmál. Aldo, sem sýndist bókstaflega langt leiddur af leiðindum, svaraði. „Nei þakka yður fyrir, ég nenni þvi ekki. En ef einhver vildi skreppa inn eftir lakinu fvrir mig . . .“ Hertogaynjan sendi Sally, ganga þernuna, inn eftir lakinu, en síöan sveipuðu þær því eins og skikkju að Aldo, hertogaynjan og Winifred. Hertogaynian snurði liann hvort hann hefði komið til Grikklands, og Aldo sem uggði ekki að sér. játti því. Laura gekk til Kahlers sem stóð við borðið með drykkjarföngunum og leit helzt út eins og maður gat hugsað sér Marzbúa. Hann hafði lagt skutulbyssuna á borð þar rétt hjá. „Eftir myndum að dæma. var Venus hin gríska talsvert feitari og gildari”, sagði hann glettnislega, „en eflaust hefði hún farið f megr- unarkúr, ef hún væri uppi nú, svo þér eruð í fullum rétti“. ,,Og þér eruð nýtízku Poseidon", galt hún 1 sömu mynt. „Þessi ná- ungi á grænu stormúlpunni — ég hef tvívegis séð hann áður“. „Hvar?“ „1 bakdyrastiganum á þriðju hæð“. Hún fylgdist með svip Kahl- ers „og þarna inni í skóginum?" „Veittuð þér honum einnig athygli í „Hellinum" í veitingahúsinu í Skeljavík?" „Nei“, sagði hún — en minntist svo andlitsspeglunarinnar í fiska- búrinu, áður en hún sá andlit Kahl ers bregða þar fyrir, „Hann var þar, og sýndist gefa ykkur nánar gætur. Sígarettustubb ur sem ég fann fram á bjargbrún- inni, þar sem hrunið varð, var sömu tegundar og sígarettustubbur, sem hann dran í á öskubakka þar á bar- boröinu. En hvað um það, ég veit ekki hvar hann heldur sig þessa stundina". Kahler yppti öxlum. „Sennilega hefur hann verið síga- rettulaus þama uppi á fjallinu". „Voruð þér uppi á fjallinu á sunnudag?" „Ég fór annan stíg, austar, en hafði auga með ykkur oftast nær“. „Það voru tveir skothvellir... annar úr riffli og hinn úr einhverju , öðra skotvopni... Þér hafið auðvit að heyrt það?“ Kahler kinkaði kolli. „Það var ég, sem skaut í seinna skiptið, til að hræða þann, sem. skotið hafði af rifflinum og koma þannig í veg fyrir að hann hleypti , af öðra sinni. En ég kom aldrei auga á hann, og hef því ekki nein- ar sannanir fyrir því að það hafi verið hann.“ Hún tók eftir því að Aldo kom í áttina til þeirra og Kahler færði sig fjær henni. Hvers hafði hún orðið vísari? 1 rauninni einskis. Þegar hún lyfti glasinu, sá hún hvar Christian kom eftir stfgnum f fylgd með Gail Kerr. Hann hafði sveipað lakinu um herðar sér, og Gail nam staðar á stígnum og virtist eiga eitt hvað vantalað við hann áður en þau kæmu í hópinn undir trénu. Hún talaði en hann horfði fram hjá henni •’ út yfir hafið. „Hvemig geturðu afboriö aðra eins heimsku og þetta?“ spurði Aldo. „Ég er smáskritin lika“. ,,Ég held að þú sért gengin af göflunum í bili, að þú skulir geta haldið þig héma og tekið þátt f öðram eins heimskulátum. Setjum sem svo að blöðin fengju veður af þessu?“ Christian og Gail bættust i hóp- inn undir kýprustrénu. Sennilega var það hún sem hafði sveipað hann skikkjunni. HAUtwnvtesite ai sfcvn 23022 MMá p HWtt SVISSNESK ÚR í G/EÐAFLOKKI ÞÉR GETIÐ VALIÐ §1S UM UPPTREKT, SJÁLFVINDUR, II H y jnppip MEÐ DAGATALI OG JAFNVEL DAGANÖFNUM. 4tJJ |y| (mTtllr AÐALATRIÐIÐ ER . AÐ VELJA RÉTT. BIÐJIÐ ÚRSMIÐ YÐAR UM TISSOT ^^SKÁLINN Bilor of öllum gerSum til sýnis og sölu i glaesilegum sýningarskálo okkpr oð Suðurlandsbraut 2 (við Hallarmúla). Gerið góð bílakaup — Hagstæð greiðslukjör — Bílaskipti. Tökum vel með farna bila í um- boðssölu. Innanhúss eða utan.MEST ÚRVAL—MESTIR MÖGULEIKAR KR.HRISTJÁNSSDN H.F II M R (1 II I fl SUÐURLANDSBRAUT 2, VIÐ HALLARMÚLA U m U U II I II SÍMAR 35300 (35301 — 35302). YMISLEGT YMISLÉGT 3D435 IbKuru aC oKkui nvers Komu múrnru >« sprengivinnu i húsgrunniim og ræs um Lelgjum út loftpressui og zíbn sleða Vélaleiga Steindórs Sighvats ■onai Alfabrekki. við Suðurlands nraut simi 10435 GISLI JÓNSSON Akurgerði 31 Smi 35199. Fjölhæf jarðvinnsluvél ann- ast lóöastandsetningar, gref húsgrunna, holræsi o.fl. Meðan athygli tígrisdýrsins er beint í aðra Stt tek ég bnrt málsverðinn þess. Púh, það er gott að hann er ekki stærri. Forðum okkur héðan.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.