Vísir - 07.10.1968, Page 3
Dr. Biami Benediktsson.
Dr. Gunnar Thoroddsen.
Halldór Laxness.
15. skoðanakiinnun Vísis: a) Hvaöa íslendingi geðjast yður bezt að?
b) Hvaða útlendingi geðjast yður bezt að?
Þeir eru vinsælastir
Ásgeir Ásgeirsson
Magnús Jónsson.
□ Fátt mun vera hverf-
ulla hér í heimi heldur
en almenningshylli. Einn
er hylltur í dag —
gleymdur á morgun. Þó
tekst mörgum með verk-
um sínum eða líferni að
afla sér ævarandi vin-
sælda, sem aldrei fyrnist
yfir.
Skoðanakönnun Vísis beinist
að þessu sinni að því að reyna
að komast fyrir um það, hverjir
núlifandi manna, íslenzkir og
erlendir, njóta mestra vinsælda
hériendis.
Framkvæmd þessarar könn-
unar var töluvert erfiö, þvl að
margir kváöust alls ekki undir
það búnir aö svara spuming-
unni: Hvaða íslendingi geðjast
yður bezt að og hvaða útlend-
ingi geðjast yður bezt aö?
Tjó urðu margir við þessari
umleitan, en svörin skiptust
í ákaflega marga staði. Sumir
gerðu sér leik að því að svara
út í hött og segja til dæmis:
„Mér er illa við alla útlendinga,“
eða: „Mér er vel viö þá, sem ég
get haft gott af.“
Ýmislegt athyglisvert má
lesa út úr úrslitum skoðana-
könnunarinnar. í fyrsta lagi
virðast menn vera töluvert al-
varlega þenkjandi, þar sem
þjóöhöfðingi landsins lendir í
fyrsta sæti, forsætisráðherrann
í öðru sæti ásamt forsetafram-
bjóðanda og ambassador, því
næst kemur nóbelsskáldið, og
síðan fyrrverandi forseti ásamt
ráðherra, sem nú á sæti í ríkis-
stjóm.
Ef aðeins er miðað við skoð-
un þeirra, sem létu afstöðu
sína f ljósi, eru þessir Islend-
ingar efstir:
Dr. Kristján Eldjárn 32%
Dr. Bjarni Benediktsson 11%
Dr. Gunnar Thoroddsen 11%
Halldór Laxness 7%
Ásgeir Ásgeirsson 3%
Magr.ús Jónsson 3%
Af útlendingum eru þessir
vinsælastir:
Edward Kennedy
Alexander Dubcek
Charles de Gaulle
Ludvík Svoboda
U Thant
29%
16%
12%
10%
8%
Flest atkvæði erlendra manna
hlutu þeir, sem af ýmsum á-
stæöum virðast eiga samúö Is-
lendinga. Edward Kennedy nýt-
ur samúðar vegna þess. að tveir
bræður hans, ágætir menn, hafa
fallið fyrir morðingjahendi.
Tékkneskir leiðtogar, Dubcek
og Svoboda, hverra land er í
hers höndum. De Gaulle er
gömul kempa, sem hefur reynzt
sterkur leiðtogi þjóðar, sem
eitt sinn þurfti á leiðtoga að
halda, leiðtoga af því taginu
sem betir engum vettlingatök-
um. Fulltrúi friðar og málamiðl-
unar, U Thant frá Burma, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, nýtur vinsælda fyrir til-
raunir sínar til að fá deilumál
friðsamlega til lykta leidd.
Fjölmargir menn eiga sér þó
trygga aðdáendur, þótt þeir
standi kannski ekki í fremstu
víglínu í þjóðmálum eða listum.
Þessir menn hafa unnið sér vin-
sældir vegna viðkunnanlegs per
sónuleika sfns eða ljúfmannlegr-
ar framkomu.
j Reykjavík voru t.d. nefndir
Eiður Guðnason, sem kunnur
er sem fréttamaður og sjón-
varpsþulur, Geir Hallgrímsson
borgarstjóri, Gylfi Þ. Gíslason,
menntamáiaráðherra, Hannibal
Valdimarsson, alþingismaður og
forseti A.S.I., Jakob Jakobsson,
fiskifræðingur og átrúnaöargoð
þeirra, sem við síldveiðar fást,
séra Jóhann Hannesson prófes-
sor, sem mikið hefur látiö að
sér kveða í ræðu og riti. Jó-
Hannes Sveinsson Kjarval,
Magnús Bjarnfreðsson, sjón-
varpsmaður, Magnús Kjartans-
son, ritstjóri, Páll Isólfsson tón-
skáld, Sigurður Dagsson knatt-
spyrnumaður og kennari, séra
Sigurður Haukur Guðjónsson og
Stefán Jónsson fréttamaður út-
varps og rithöfundur.
Oti á landsbyggðinni’ voru
þessir nefndir aö auki: Brynjólf-
ur Jóhannesson leikari, Gísli J.
Ástþórsson ríthöfundur, Jón
Múli Árnason útvarpsþulur og
tónskáld, séra Sveinn Víkingur,
Þórbergur Þórðarson rithöfund-
ur og Þorsteinn Ö. Stephensen
leikari. ,
Það ken.ar greinilega í Ijós i
Dr. Kristján Eldjárn.
Reykjavík, að sjónvarpið er á-
hri-famikið tæki, og tveir af
þekktustu starfsmönnum þess,
hljóta sæti á vinsældalistanum.
Þó virðist það greinilegt, að
sjónvarpið í Reykjavík hefur
ekki jafn mikil áhrif og útvarp-
ið á landsbyggðinni, því að allir
sem eru tilncfndir þar af aðeins
einum manni, eru einkum og
sér í lagi þekktir sem útvarps-
menn, að Þórbergi Þórðarsyni
undanskildum, en hans rödd
hefur þó að undanförnu heyrzt
oft á öldum ljósvakans.
Um útlenda menn er þaö aö
segja, að þeir sem urðu fyrir
svörum treystust síður til að
benda á einhvern ákveðinn
mann. Þó er greinilegt, hverjir
eru vinsælastir, eins og kemur
fram á töflunni, sem hér fylgir
með. Annars varð heildarröðin
þannig, að Johnson forseti
Bandaríkjanna varö í 6. sæti
með 7% atkvæða og Willy
Brandt utanrikisráðherra Vest-
ur-Þýzkalands í 7. sæti.
l^leiri voru tilnefndir: Bauns-
gárd, forsætisráöherra Dan-
merkur, Erik Eriksen, danskur
stjórnmálamaður, Ivar Eske-
land, forstöðumaður Norræna
hússins í Reykjavík, Haraldur
krónprins Norðmanna, Eugene
McCarthy, bandarískur öldunga-
deildarmaður, sem gerði tilraun
til að verða forsetaefni demó-
krata, Ringo Starr, trommuleik-
ari í hljómsveit Bítlanna. Þessir
hlutu allir atkvæði í Reykjavik.
—>- 13. siða.
■ ■ -ÍH|
ifi!*'11':,1? <|i ■## ,l *,|
' i "ílfr
Edward Kennedy
Charles de Gaulle.
Ludvik Svoboda.
U Thant.