Vísir - 07.10.1968, Síða 16
VISIR
HSsJudagui- 7. október 1968.
Á sundi í
höfninni
ölvaður maður brá sér á sund
i hötninni á laugardag, svona sér
til hressingar og heilsubötar. Nær-
staddir menn voru bó ekki eins
vissir um hvort þetta yrði svo
heilsusamlegt manninum, og var
lögreglan kvödd á staöinn. Settur
var út bátur tollgæzlunnar og mann
inum náð upp úr höfninni. Hann
var siðan fluttur í fangagevmslur
iögreglunnar, þar sem hann fékk að i
hlynningu og gistingu. »
SILDIN CNN I FELUL
— Hundruð skipa leita og finna ekki neitt
Hegðun síldarinnar síð-
ustu dagana er flestum
óskiljanleg. — Hundruð
skipa, veiðiskipa og leit-
arskipa, íslenzkra, rúss-
neskra og norskra, hafa
leitað hennar á stóru
svæði, sem tekur yfir
tvo eða þrjá breiddar-
bauga og fjóra lengdar-
bauga, eða meira. En ár-
angurinn er aðeins fá-
einar tunnur, sem tekizt
hefur að hreyta úr nót-
unum.
Síldin fannst i smápeðrum á
þessu svæði framan af vikunni,
en síðasta sólarhringinn hefur
engin síld fundizt og er þó gott
leitarveður og flotinn allur á
höttum eftir veiði.
Fáein skip tilkynntu um afia
til síldarleitarinnar í gærdag og
eru það mest megnis smáslattar
frá síðustu dögum, samtals 805
tonn.
Það var mjög dauflegt hlióðið
í starfsmönnum síldarieitarinn-
ar, þegar Vísir hafði tal af þeim
í morgun. „Þetta er allt dautt
og dofið“ var viðkvæðið. Fjöldi
fólks er kominn á firðina eystra
tii þess að salta síldina og vona
menn nú að hún láti af þessum
feluleik hið bráðasta og gerist
auðsveip bráð.
mn a
StofneudakvöH
• Aðgangur ökeypis er fátíður
endir á auglýsingum um sam-
komuhald nú til dags — ef und-
anskildar eru kirkjulegar sam-
komur. Undantekningin gerist þó
í kvöld á Stofnenda
kvöldi Bandalags islenzkra lista-
manna, sem veröur haldið í Þjóð-
leikhúsinu, Bandalagiö heldur þessa
samkomu til að minnast 40 ár af-
mælis síns og hefst hún kl. 20.30
Þar koma fram helztu islenzkir leik
arar og flytia verk eftir stofnendur
bandaiagsins. Flutningurinn er i
heiðursskyni við þá og franilag
þeirra til islenzkrar menningar.
Efni það sem flutt verður er
eftirfarandi: Lesinn kafli úr Svart-
fugli eftir Gunnar Gunnarsson,
Þorsteinn Ö. Stephensen les. Brynj-
ólfur Jóhannesson les úr Márus á
Valshamri eftir Guðmund G.
1-iagalin, Herdís Þorvaldsdóttir les
nokkur ljóð eftir Kristmann Guð-
mundsson, Baldvin Halldórsson les
Jón úr Brauðhúsum eftir Halidór
; Laxness, Guðbjörg Þorbjarnardóttir
I les nokkur kvæði eftir Jakob Thor-
| arensen. Helgi Skúlason les úr Is-
| lenzkum aðli eftir Þórberg Þórð-
j arson, Guðmundur Jónsson óperu-
| söngvari syngur með undirleik Ól-
' afs Vignis Albertssonar tvö lög
eftir Þórarin Jónsson, og önnur
j tvö eftir Pál Isólfsson og hátiðar-
j dagskránni lýkur með því að frum-
fiuttur er strokkvartett nr. 3 eftir
Jón Leifs, Biörn Ólafsson, Jón Sen
Ingvar Jónasson og Einar Vigfús-
son flytja.
Aðgöngumiðar að hátíðinni
verða afhentir í miðasölu Þjóð-
leikhússins í dag, en engum verða
afhentir fleiri en tveir miðar.
Listamannaskálinn oð hverfa
Byrjað var að rifa Listamanna-
skáLann gamla við Austurvöll á
'augardag. Með honum hverfur sú
bvgging, sém hefur verið vettvang-
ur umbrota málaraiistar hér á landi
og lyftistöng hennar um leið. Lista
mannaskálinn er reyndar frá árinu
1943, teiknaður af Gunnlaugi Halt-
dórssyni artitekt, en hrörlegt yfir-
bragð hans síðustu árin varð til
þess, áð hann var gömul bygging i
augum margra. Enda átti Lista-
mannaskálinn aðeins að vera bráða
birgðahúsnæði í upphafi en lifdagar
hans urðu lengri en búizt var við
Margir munu sakna listamannaskál-
ans, við hann eru tengdar margar
miningar. og margir lögöu leið sína
inn í hann, þegar sýning stóð yfir
enda byggingin í hjarta borgarinn-
ar. Þessi staður, sem skálanum var
valinn var áður kálgarð-
ur Halldórs Friðrikssonar alþingis-
manns en núna er Alþingi lóðarhafi.
Yitnað gegn
Wnrren í
Tjnrnnrbæ
• Þeir sem lagt hafa leið sína í
Tjarnarbæ til þess að sjá sýn-
ingu ieikfélagsins Grímu um morð
ið á Kennedy Bandarikjaforseta
hafa ýmist fyllzt hneykslun eða
hrifningu, enda hlióta færri að vera
sammála höfundinum, Kaj Himmel
strup og niðurstöðu hans í málinu,
þar sem hún brýtur í bága við
tuttugu og sex binda skýrslu Warr-
io «ið-
Tónaflóð á garðshliði!
„Ég hýttist heyra sam-
hljóminn klukknanna..."
Lagið „Kirkjuhvoll“, eftir
séra Bjarna Þorsteinsson, er
hugleikið mörgum Siglfirð-
ingum sem og öðrum lands-
mönnum. Á aldarafmæli séra
Bjarna var komið upp klukku-
spili í turn Siglufjarðarkirkju
og spilar það stef úr laginu
klukkan sex sfðdegis dag
hvern.
Nú hefur siglfirzkur tónlistar-
maðut' sett sama stef í stál, á
garðshlið sitt, ásamt samhljómi
gerðum af Geirharði Valtýssyni
söngstjóra. Eins og myndin að
ofan sýnir, er ekki einungis lág-
linan sett með stálnótum á hlið-
ið, heldur eru þar einnig tákn-
myndir, sem tilheyra textanum
ld sfðr ■
Listamannaskálinn kvaddur á laugardag. Skálað var í átta ára
gömlu brennivíni.
Stela bensíni og rafgeymum
úr yfirgefnum bifreiðum
Tveir piltar voru í nótt staðnir
að verki, þar sem þeir voru að
stela bensíni af bílum Mjólkursam-
sölunnar, læddust piltarnir inn í
port Samsölunnar og soguðu bens-
ínið með slöngum úr geymum bíl-
anna, en þeirra varð vart og lög-
reglan kom á vettvang og hirti þá.
Töluverð brögð voru að þannig
bensínþjófnuðum í fyravetur, en
í sumar hefur þessa gætt minna.
Aðrir tveir piltar voru staðnir að
verki, þar im þeir voru aö skipta
um rafgeymi í bifreiöum. Voru þeir
búnjr að setja rafgeyminn úr sinni
bifreið yfir í aðra, sem hafði verið
yfirgefin vegna bilunar, og setja
rafgeyminn, sem var í henni, yfir í
sina.
Gufuvirkjunin við
tilbúin eftir áramót
Mývatn
— Framleidir 3000 KW
Fyrsta rafstöðin, sem bvtt^ð er
á gufjiafli er nú að rísa við Mý-
vatn og er reiknað með að hún
hefji framleiðslu eftir áramótin.
Búið er að bora 1138 metra
djúpa holu fyrir þessa gufuafls-
virkjun og er hitinn í henni nærri
300 gráður. Knútur Ottesen. raf-
veitustjóri Laxárvirkjunar, sagði í
viðtaii við Vísi í morgun, að vélar
morgun, að vélar til gufuaflsstöðv-
arinnar væru væntanlegar til lands-
ins næstu daga og yrðu þær settar
upp i stöðvarhúsinu á næstunni, en
húsið er nú að veröa tilbúið. Reikn-
að er með að vélar þessar geti skil-
að 2900 kw og síðar 3000 kw með
smávsegijegum breytingum. Orka
bessi verður tengd rafveitukerfinu
• '-’-nds.
'' ’r um tilraunavirkjun að
ríí'1! <! sagði Knútur að reynslan
sem fengist af þessari virkj-
un yrði vandlega metin áður en
nokkuð yrði farið að huga að frek-
ari gufuvirkjun.