Vísir - 10.10.1968, Page 2
V í S IR . Flmmtudagur 10. október 1968.
Nýr landslibsþjálfari ráðinn:
HILMAR BJ0RNSS0N - AÐEINS
22 ÁRA Á AÐ LEIÐA LIÐIÐ í HM
Sjaldan hafa verkefnln blasað
eins við I handknattleiknum
eins og í vetur. Fjöldi lands-
leikja, — og HM undirbúningur
inn. Nú á íslenzka liðið að kom
ast í aðalúrslitin! Sá sem á að
leiða landsliðið okkar alla leið
er Hllmar Bjömsson, aðeins 22
ára gamall handknattleiksmaö-
ur úr KR. HSÍ samþykkti í gær
að ráöa Hilmar til starfans
samkvæmt tillögu tæknincfndar
sem mælti með honum.
Hilmar Bjömsson er reyndur
í þjálfun, þrátt fyrir æsku sína.
Hann er útskrifaður frá íþótta-
kennaraskólanum á Laugavatni
og starfar sem íþróttakennari.
Auk þess hefur . hann þjálfað
unglingalandsliðið og hefur getið
sér sérstaklega gott orö sem
þjálfari þess. Þá hefur hann
þjálfað KR-lið með ágætum á-
rangri.
Hilmar hefur fengið orð fyrir
að vera mjög duglegur og sam-
vizkusamur í starfi, þessir
kostir vega upp á móti því
hversu ungur hann er. Áhuginn
hiýtur aö vera þjálfaranum mest
virði og eflaust munu lands-
liðsmenn hjálpa sjálfir til með
því að verða þjálfaranum innan
handar. Er - ástæöa til að óska
Hilmari til hamingju með stöð-
una og hverja jafnframt hand-
knattleiksmenn til dáða í starfi
með honum að þeim verkefnum
sem við blasa.
Svíar burstuðu
Norðmenn 5:0
• Heldur léku Svíar Norðmenn
grátt í landsleik landanna 1
Stokkhölmi í gærkvöldi. Sviar
unnu 5:0 og gjörsamlega léku
„frændur“ vora sundur og sam-
an. í hálfleik var staðan aðeins
1:0, en í seinni hálfleik hófst
„flugeldasýningin“ fyrir alvöru.
• Sérstaka athygli hinna 30 þús
unda áhorfenda vöktu þeir í
framlínu Svía, Örjan Persson,
Bo Larsson og Ove Grahn.
Hilmar Björnsson — hér skorar hann af línu í lcik með KR.
Otto Rieder látinn
— fórst í flugslysi
FRAM GEKKILLA AD
SKORA FYRSTA MARKIÐ
en i seinni hálfleik var eins og flóðgátt hefói opnazt
ÞAÐ GEKKILLA aö skora
opnunarmarkið í gær-
kvöldi í leiknum viö Ár-
menninga í Rvíkurmótinu.
Ármann skoraði 3 fyrstu
mörkin, og það var ekki
fyrr en eftir 16 mínútur að
Fram tókst að skora sitt
fjTsta mark. í hálfleik var
staðan 4:3 fyrir Ármann.
Síöari hálfleikurinn var ákaflega
auöveldur fyrir Fram og var að
mestu einstefna á Ármannsmarkið.
Fram skoraði nú 12 mörk gegn 4
og vann leikinn með yfirburðum,
15 mörkum gegn 8.
Framarar leiða því í Reykjavikur
mótinu, hafa unnið alla sina leiki til
þessa.
ÍR vann KR í leik liðanna í gær-
kvöldi með 13:10, en í hálfleik
hafði IR yfir 7:4. Þá vann Víkingur
Val auðveldlega með 12:8, eftir
að staðan i hálfleik var 6:5 fyrir
Víking.
Leikirnir eru enn heldur lélegir,
en mjög fljótlega verða handknatt
leiksmenn búnir að hrista rykið
af sér, — enda ekki seinna vænna
því að alvarlegri átök eru í vænd-
um, íslandsmót og landsleikir. —
Staðreyndin er sú að áhuginn fyrir
Reykjavíkurmótinu er næsta lítill,
bæði hjá áhorfendum og leikmönn-
um. Mótið er ágæt upphitun fyrir
stærri átök, en heldur varla mikið
meira. —jbp—
Aukið öryggið
Með því að stilla og lagfæra ljósin auka öku-
menn öryggi sjálfra sín og annarra vegfar-
enda..
LÚKASVERKSTÆÐIÐ
Ármúla 7 . Sími 81320
Otto Rieder, skíðakappinn frægi
frá Austurríki, sem marga vini og
kunningja á hér á landi í hópi
skíðamar.na er látinn Hann fórst í
flugslysi þann 21. september sl.
segir í bréfi ekkju hans til vina
hér á landi, en það barst í gær.
Rieder kom hingað tvívegis til
skíðamanna og var þeim ómetanleg
hjálparhella. Nánar verður sagt frá
Rieder í blaöinu á morgun.
Veriur Siguríur hæsti leikmaBur
HBunnu — 2,09 metrur?
Jim McGregor, hinn frægi þjálfari
Gillette-liðsins
• Siguröur Helgason verður að
öllum likindum hæsti mað-
urinn í leik íslenzka úrvalsins
gegn GILLETTE-liðinu, sem leik
ur hér á föstudagskvöldið. Is-
lenzka liðið hefur nú verið valið
og er Sigurður meöal leikmanna,
en hann er 2.09 metrar á hæð.
I gærkvöldi æfði liðið saman
fyrir kenpnina við bandaríska
liðið. Það er þann!" skipað:
Agnar Friöriksson ÍR
Birgir Örn Birgis Á
Birgir Jakobsson ÍR
Gunnar Gunnarsson KR
Hjörtur Hansson KR
Jón Sigurðsson Á
Kolbeinn Pálsson KR
Kristinn Stefánsson KR
Ölafur Thorlacius KFR
Sigurður Helgason KFR
Sigurður Örn Torstensen KR
Þórir Magnússon KFR
Þjáifari úrvalsliðsin- Guðmund
ur Þorsteinsson. I þessu liði leika
fjórir menn sem ekki voru í lands
liði íslands á Polar Cup, þeir Hjört
ur Hansson, Ólafur Thorlacius, S!g
urður Helgason. sem mun vera
hæstur íslenzkra iþróttamanna og
Sigurður Örn Thorstensen. mjög
efnilegur leikmaður úr KR. Þessir
menn koma í stað Þorsteins Hall-
grímssonar; sem dvelur erlendis
þessa dagana, Guttorms Ólafsson-
ar, sem er við ”' "''•óttakennara
| skólanum S:~ ólfssonar og
1 Einars
KKÍ hafa ekki enn borizt upplýs
ingar um einstaka leikmenn banda
ríska liðsins en þeir eru:
Rod Mcdonald, Dave Wagnon,
Joe Franklín. A1 Skakely, Glendon
Toreen, George Hicker, Bobby Lew
is, Joe Portier Bill Langheld og
Ken Morehead.
Allir hafa þeir leikið með vel
þekktum háskólaliðum og er ekki
að efa að þetta er s*:erkt lið. enda
eru hálfatvinnumannalið sem þetta
stökkpallur fyrir körfuknattleiks-
menn er hafa í huga að gerazt at-
vinnumenn í íþróttinni.
• Þjálfari bandaríska liðsins, Jim
McGregor, er ekki heldur neinn
aukvisi og vel þekktur bæöi í
Evrópu og Bandarikjunum. Hefur
hann m.a. þjálfað nokkur landslið
| í Evrópu á undanförnum árum.
j Fyrir tveimur árum var hann þjálf
I ari liðs Gulf olíufé' gsins og fór
1 með það í kepnnisferð til Evrópu.
Nokkrir leikmanna þess liðs eru nú
atvinnumenn i körfuknattleik i
Bandaríkiunum.
Þó að keppnistimabil körfuknatt
leiksmanr.a sé ekki enn hafið, eru
( reykvískir körfuknattleiksmenn í
góðri æfingu. Hafa beir æft í sumar
margir hverjir og auk þess hafa
þrjú lið úr Reykjavík tekið þátt
, í Körfuknattleiksmóti sem fram hef
ur farið á Keflavíkurflugvelli nú í
haust. Lið KR er nú efst í því móti
og má ætla að leikmenn séu í góðri
æfingu.
' Eins og fyrr segir fer leikurimi
fram n.k. föstudag 11. október, ki.
j 8.30 í Laugardalshöllinni.