Vísir - 10.10.1968, Qupperneq 7
i
Vl SIR . Fimmtudagur 10. október 1968.
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í raorgun
útlönd
Stúdentauppþot í V-Berlín
við vígslu nýs sjúkrahúss
Þeir voru hraktir burt eftir að hafa kallað við-
stadda bandariska gesti striðsglæpamenn
Henry Cabot Lod|*e.
• Vestur-Berlín: Hópur stúd-
enta ruddist í gær áð ræðustól
við vígslu nýrrar, stórrar sjúkra-
húsbyggingar og var tilgangur
þeirra að mótmæla með þessum
hætti, að bandarískir stjórnmála
menn voru viðstaddir athöfnina.
Kölluðu stúdentar: Vér mótmæl-
um, að bandarískir stríðsgiæpa-
menn séu hér viðstaddir.
Lögreglan hrakti hópinn burt
fljótlega. Bandaríkin hafa greitt
hluta af kostnaðinum við að koma
stofnuninni upp, en kostnaðurinn
nemur 302 milljónum marka.
Meðal viðstaddra voru Wilbur
Cohen heilbrigðismálaráðherra
Bandaríkjanna og Henry Cabot
Lodge ambassador í Bonn.
Hið nýja sjúkrahús verður hluti
Frjálsa háskólans í borginni. Það
er eitt af stærstu og nútímalegustu
sjúkrahúsum.álfunnar.
Með framlagi Bandaríkjanna til
byggingarinnar er bundinn endi á
efnahagsaðstoð Bandaríkjanna til
Evrópulanda eftir síðari heimsstyrj-
öild en hún nemur samtals 12500
milljónum dollara. í sjúkrah'úsinu
eru 1430 rúm og gert ráð fyrir, að
25.000 sjúklingar komi þangaö ár-
lega, auk 180.000 sjúklinga sem
koma í átta Iömunarveikideildir
tengdar lækningamiðstöðinni.
1 ræðu, sem Henry Cabot Lodge
flutti, sagði hann, að Bandaríkin
myndu aldrei þola að ofbeldi yröi
beitt gegn Vestur-Berlín eða hótan-
ir um ofbeldi. „Viðburðir seinustu
tíma í Evrópu hafa orðið til þess
að minna okkur á það enn einu
sinni, að vér megum ekki gleyma“.
Forseti Mannréttinda-
dómstólsins hlaut
friðarverðlaun Nobels
René Cassil, kunnur franskur
lögfræðingur, forseti mannréttinda-
dómstóls Evrópu hlaut friöarverð-
laun Nóbels í ár, en þeim úthlutar
Nóbelsverðlaunanefnd norska Stór-
þingsins.
Cassin varð heimskunnur maður
á tima þjóðabandalagsins gamla
en á vettvangi þess var hann full-
trúi lands síns. Hann var fulltrúi
Frakklands í alþjöðanefnd um
stríösglæpi (1943 — 45), ráðherra á
tímabili og fulltrúi Frakklands á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Hann var einn af aðalhöfundum
Mannréttindavfirlýsingar Samein-
uðu þjóðanna.
Eftir Cassin liggja mörg rit um
lögfræðileg efni.
Litvinov og Larissa
Daniel fyrir rétti
í frétt frá Moskvu segir, að tveir
sovézkir borgarar verði leiddir fyrir
rétt sakaðir um að hafa skipulagt
ólöglega mótmælabaráttu vegna
hernáms Tékkóslóvakíu.
Þessir borgarar eru dr. Pavel
Litvinov, em afi hans var Maxim
Lltvinov, utanrikisráðherra á Stal-
instímanum, og frú Larissa Daniel,
“■".inkona rithöfundarins Júrí
Daniels.
Þrír menn aðrir eru bornir sömu
sökum.
Mótmælaatburöurinn átti sér
stað á Ráuöa torginu 26. ágúst og
hafa sakborningar verið í fangelsi
síðan.
I janúar skírskotuðu þau dr.
Litvinov og frú Daniels til almenn-
ingsálitsins í heiminum, að beina
athygli að réttarhöldunum vfir
sovézkum menntamönnum, en tveir
heil helztu voru Alexander Gins-
burg oa Júrí Galanskov. sem
dæmdir voru í fjmm og sjö ára
fangelsi fyrir áróöur fjandsamlegan
Sovétríkjunum.
Apollo á loft
bá og begar
Á Kennedyhöfða er unnið aö loka
undirbúningi að því að skjóta á
loft geimfari með þriggja manna
áhöfn, en eins og hermt hefir ver-
ið í fyrri fréttum er áformaö að
það verði 11 daga á braut um-
hverfis jörðu.
Hin fyrirhugaða geimferð er I "iur
í áætluninni um að senda mannað
geimfar til tunglsins.
LONDON: Forustumenn í Afriku-
ríkjum blakkra eru sumir lítt hrifn
ir af því, aö viðræður eru hafnar
um lausn Rhodesíudeilunnar Kenn-
eth Kaunda forseti Zambíu lét í
ljós áhyggjur út af þvi, að vegna
þess að reynt yrði að hraða mál-
um um of yrðu hagsmunir blakkra
í" Rhodesíu fyrir borð bornir. For-
sprakki blakkra rhodesiskra útlaga
sagði í Zambíu í gær, að samkomu
lag sem ekki viðurkenndi fullan
rétt blökkumahna yrði „ekki þolað“
og á álíka lund talaði talsmaður
Ghrna á vettvangi Sameinuðu þjóð
ann
NEW YORK: Eban utanríkisráð-
herra ísraels gerði í gær grein fyr
ir tillögum til lausnar deilu Israels
og Arabaríkjanna. Tillögurnar eru i
9 liðum: Meginefni: Að Israel fallist
á að hverfa frá hernumdu svæðun-
um til „varanlegra, öruggra og við
urkenndra landamæra" og að Ak-
abaflói og Suezskurður verði viður
kenndar alþjóða siglingaleiðir.
WASHINGTON: Nefnd í öldunga-
deildinni hefir samþykkt lagafrum-
varp um eftirlit með sölu á skot-
vopnum og skotfærum, borið fram
af þingmanninum Thomas Wood.
í frv. er lagt bann viö sölu skot-
færa milli sambandsrikja innbyrðis
og innflutmngi ákotfæra frá öðrum
löndum af „umfram birgðum".
Með samþykktinni í nefndinni er
lokið mikilvægum áfanga á leið að
markinu.
STO PAULO, Brazilíu: I fyrrakvöld
var áframhald á alvarlegum átökum
stúdenta og heimavarnarliðsmanna.
sem beittu kylfum og táragasi
Átökin áttu sér stað í miðhluta
borgarinnar. Tala handtekinna er
talin skipta hundruðum.
LONDON: Vestrænir fréttamenn
segja að Kekkonen og Kisygon hafi
án vafa rætt stjórnmál. — Blaðið
Helsinki Sanomat segir meiri leynd
hafa hvílt yfir þessum seinasta
fundi þeirra en nokkrum öðrum
og enginn þurfi að efast um hver
umræðuefni hafi 'verið. — Vest-
ræn blöð minna á. að bæði Isvestia
og Pravda hafa að undanförnu
rætt í umvöndunartðn um afstöðu
Finna til hernámsins i Tékkóslö-
vakíu.
Stöku sovézkar hersveitir sagðar hafa
byrjað brottflutning frá Tékkóslóvakíu,
en — koma aörar í staðinn?
Myndin er frá Prag af sovézk-
um skriðdreka við líkanið af
Jóhanni Húss tekin litlu eftir
innrásina. Mestar líkur eru fyrir,
að sovézkt lið verði í Tékkósló-
vakíu í vetur, en að hluti her-
námsliðsins verði fluttur burt.
í frétt frá Moskvu í gær var
sagt, að komin væri þangað fjöl-
menn tékknesk nefnd og í henni
hátt settir foringjar úr tékk-
neska hernum, og var þess getið
til, að rætt yrði um sáttmála til
„lagalegrar staðfestingar á dvöl
sovézks herliðs í Tékkóslóvakíu“
en ekkert hefur verið um þetta
sagt opinberlega í Prag, þegar
þctta er skrifað, en fregn í gær-
kvöldi frá Washington var sagt
að Clark Clifford landvarnaráð-
herra Band rikjanna hcfði sagt,
að þess sæjust mcrki, að ein-
stakar sovézkar hersveitir væru
byrjaðar brottflutning þaðan. —
Landvarnaráðuneytið tilkynnti
síðar, að hér væri um „óveruleg-
an fjölda herliðs að ræða“, mik-
ið lið væri áfram í landinu, og
hugsanlegt væri, aö nýtt lið
kæmi í stað þess sem færi.
Að lokinni Finnlands-
heimsókn Kosygins
Helsingfors: Að lokinni tveggja
daga Finnlandsheimsókn Kosygins
forsætisráðherra Sovétríkjanna var
birt tilkynning þess efnis, að Kekk-
onen forseti og Kosygin forsætis-
ráðherra hefðu rætt af vinsemd og
hrcinskilni alþjóðavandnmál og mál
sem varða þróun framtíðarsam-
starfs Finnlands og Sovétrikjanna,
að þeir myndu halda áfram aö
starfa i þágu friðarins og öryggis i
Evrópu og að bættri friðsamlegri
sambúð allra þjóða.
Þá staðfestu þeir, að vináttusátt
málinn frá 1948 um vináttu, sam-
starf og gagnkvæma aðstoð yrði
áfram hinn trausti grundvöllur þró-
unar og samstarfs i finnsk-sovézkri
sambúð o. s. frv.