Vísir - 11.10.1968, Síða 2

Vísir - 11.10.1968, Síða 2
VÍSIR . Föstudagur 11. oktðber 1968. | BOB SEAGREN heltir hann þessi, sem er að reyna við 5.41 * ^ metra í stangarstökki. Hversu ótrúlegt, sem það kann að 1 ^ virðast þá fór hann yfir þessa hæð og setti nýtt heimsmet. 7 \ Þetta varð til þess að hann var valinn til að keppa á ÓL í * i Mexíkó, sem hefjast á morgun. Þess skal getið í sambandi ) við þessa hreint og beint ótrúlegu mynd, að það er bannað ? „að klifra upp stöngina“, eins og fram kom í einhverju blað- J \ anna á dögunum, enda ótrúieg framkvæmd. s Aukið öryggið Með því að stilla og lagfæra ljósin auka öku- menn öryggi sjálfra sin og annarra vegfar- enda. LÚKASVERKSTÆÐIÐ Armúla 7 . Sími 81320 HVERS VEGNA EKKI BIKARKEPPNI? I Mjög er rætt um þessar mundir um ástæðu þess að handknattleikur hefur verið svo illa sóttur til þessa í haust. Á heimsókr. SAAB, Svíþjóðarmeist aranna, komu aðeins um 2000 manns ' allt. Reykjavíkurmótið hefur verið illa sótt fram til þessa og engu Iíkara en að áhug- inn sé eitthvað dvínandi. E.t.v. er ástæðan ösköp einföld. Heimsókn SAAB kom á versta tíma eiginlega ekki i hinni eiginlegu „handknattleiksvertíð“, því knatt spymumótum var þá enn ekki lok- ið. Reykjavíkurmótið er líka fyrir löngu orðin úreltur hlutur og gegn ir litlum sem engum tilgangi, nema hvað leikmenn fá æfingu, sem þeir ættu að öðlast á annan hátt, og auðvitað ættu handknattleiksáhuga menn ekki að þurfa að kosta stórfé til að horfa á æfingar þessar. Handknattleiksmenn þyrftu að | I hefja æfingar af fullum krafti fyrr I I en gert er. Síðan kæmi bikarkeppni, j j — t.d, 16 liða keppni með útsláttar ! formi. Ekki er að efa að keppni ; þessi yrði vinsælt upphaf á hand-1 j knattieikstímabilinu. Alls yrðu j j þetta 15 leikir og mótið yrði til- j tölulega stutt gaman, — en 1 skemmtilegt. ' Þetta mundi gefa íslandsmótinu meira rúm, — og öllum heimsókn unum, eða þá æfingunum fyrir fé : login og landsliðið. Staðreyndin er j sú að eins og er þá getur Reykja- ! víkurmótiö vart talizt gott og gilt t l lengur, enda sýnir almenningur : . það að hann kann ekki að meta j ! það sem þar er á boðstólum. — j Hvernig væri að HSÍ-þing reifaði málið? —jbp— I Bogi Þorsfeinsson — gefur hann kost á sér úfram? • Á morgun verður ársþing Körfuknattleikssambands Islands haldið í Leifsbúð Hótel Loftleiða og hefst þaö kl. 15 með þingsetningu. Á dagskrá eru venjuleg aöalfundarstörf, en mjög er rætt um það hvort Bogi Þorsteinsson, hinn vinsæli for- maður gefi ekki kost á sér á- fram, en hann hefur haft við orð að hann hefði hug á að hætta formennsku. • Hafa körfuknattleiksmenn lagt mjög hart að Boga að gefa áfram kost á sér til að leiða hln ungu samtök, sem eiga við mjög mörg vandamál að glíma og mörg óleyst verkefni, þrátt fyrir að margt hafi vel ver ið gert og íþróttinni sjálfri hafi sannarlega vaxið fiskur um hrygg á þeim stutta tíma, sem íslendingar hafa stundað hana. J 'iiiir-i n»■iiM'riimi i ——wmawi—an— „DULARFULLIR GESTIR í LAUGARDAL í KVÖLD DULARFULLIR ERU þeir í meira lagi gestirn- ir, sem lenda á Keflavík- urflugvelli í dag meö Loftleiðavél frá New York. Þetta eru körfu- knattieiksmennirnir úr háskólaliöum Bandaríkj- anna, kostaðir af Gill- ette-rakblaðafirmanu mikla. Eitt er þó vist, — hér fer geysisterkt körfuknattleikslið, eitt af þessum bandarísku lið- uin sem sýna svo frábrugöinn körfubolta frá því, sem við þekkjum í Evrópu. Það sem gerir það fullvíst að hér sé um stórkostlegt lið að ræða er það að fyrirtæki skuli greiða kostnað af ferðinni. Bak við liggur aug- Iýsingagildið, og það mundi ekki vera fyrir hendi ef þama færu cinhverjir meðalskussar. Það er því mikil eftirvænting í loftinu hjá körfuknattleiks- mönnum, sem fá verkefni, ekki aldeilis af verri endanum í upp hafi leiktimabilsins. Körfuknattleiksmenn okkar eru þegar komnir í nokkuð góða æfingu, ekki sízt vegna þess að þeir hafa leikiö talsvert við lið in af Keflavíkurflugvelli. Lands liðsnefnd hefur valið liðið og birtist það í blaðinu í gær. Er 5 þetta sterkt lið og má vænta 1 góðs af liðinu í leiknum í Laug { ardaishöilinni í kvöid, en hann | hefst kl. 20.30. Gillette-liðiö er að hefja jjj keppnisferðalag um Evrópu og g stoppar hér á vegum Loftleiða sj aö svokölluðu Stop-over „pró- n granimi“. g Islandsliðio í körfuknattleik.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.