Vísir - 11.10.1968, Side 3
„Komdu sæll og blessaður og þakka þér fyrlr síðast.“
Skipzt ? kveðjum. Talið frá vinstri: Guðlaugur Gíslason, Eggert G. Þorsteinsson, Matthías
Bjarnason, Birgir Finnsson, Au3ur Auðuns, Pé tur Sigurðsson og Ólafur Jóhannesson.
Menn voru orðvarir og loðnir
í svörum, enda annað ofar í huga
einmitt þessa stundina. Heilsa
kunningjum. Spyrja frétta.
„Það er ekki nema gott um
það að segja, að unga fólkið
hafi áhuga á stjórnmálum. Nú,
ungir menn eru alltaf ungir
menn og ungmennum er það
eðlilegt að taka djúpt f árinni.
Maður hefur sjálfur verið ungur
eitt sinn og þessir ungu menn
verða einhvem tíma gamlir
sjálfir."
Lengra vildu menn ekki fara
út í þá sálma.
Síðan var hringt til messu og
að venju gengu þingmenn fylktu
liði út í kirkju og hlýddu á
messu séra Sigurðar S. Hauk-
dals.
Að lokinni guðsþjónustu var
siðan gengið í fundarsal neðri
deildar, þar sem sameinað þing
kemur venjulega saman og hinn
nýi forseti, Kristján Eldjám,
setti löggjafarþing íslendinga í
fyrsta sinn.
húsið, áður en haldið yrði í
kirkju og hlýtt á messu. Meðan
beðið var eftir þeim síðustu
spjölluðu menn um allt milli
himins og jarðar.
Myndsjáin skauzt á milli
hópanna, og á góma bar stefnu-
mál ungu mannanna og gagn-
rýni þeirra í garð stjómmála-
kerfisins og stjómmálamann-
anna.
„Það er allt gott og blessað.
Bara að það komi eitthvað já-
kvætt út úr því.“
Forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, á leið í ræðustól.
Hlýtt á messu. Forsetahjónin sitja á stólum og ráðherrar á fremsta bekk.
Með glaðlegu yfirbragði,
hressir og sællegir, hitt-
ust alþingismenn aftur í gær-
dag til þess að hefja aö nýju
störf sín á löggjafarþingi Is-
lendinga, sem sett var í gær í
89. sinn.
Það var skipzt á kveðjum og
einkum var þeim vel fagnað,
sem voru nýkomnir í bæinn og
höfðu ekki sézt frá því um síð-
ustu þingslit.
1 engu varð séð, að stjórn-
málamennirnir hefðu glatað
glaðlyndi sínu, þótt þeir þyrftu
nú að horfast f augu við erfiðari
vandamál en þeir hafa nokkru
sinni glímt við, síðan kreppuár-
unum lauk.
Smám saman stækkaði hópur-
inn, sem safnaðist f Alþingis-
ÞINGAÐ Á NÝ
0