Vísir - 17.10.1968, Side 3
3
:
W.iíSLw'HLji
V“í‘SliR . ESmmtodagHr 17. október 1968.
í okkar kyrrláta þjóðfélagi
viröist svo blessunarlega fjarlæg
sú tíó, þegar úti í heimi dunaði
stríð og öll Evrópa var sem
einn vígvöllur. Þær styrjaldir,
sem nú eru háðar, eru í fjar-
lægum heimsálfum og hafa ekki
bein áhrif á daglegt lff fólks
hér á landL
Á árunum 1940—45, þegar
stríðsmenn í þúsunda tali frá
Bandaríkjunum og Bretlandi
höfðu hér aðsetur sitt, var ekki
hjá því komizt, aö þeir settu
gffurlegan svin á umhverfi sitt.
Samskipti við þá voru óum-
flýjanleg, stundum beinlínis
æskileg, en þó ekki alltaf.
Á þeim árum var lifaö hátt.
Gullið fióði um greipar. FJár-
málalífið var snennandi eins og
setið væri viö snilaborð. Og
spennan lá í loftinu. Margir lifðu
eins og hver dagur væri hinn
siðasti, og sáðu eins og þeir
uppskáru.
Á einu vetfangi var þorps-
bragurinn af Reykiavík. Gullæð-
ið greip um sig. Allir vildu auðg
ast á skiótan hátt, og upplausn-
in greip um sig.
Saklausar Reykjavíkurstúlkur
hrifust af glæsileik og heims-
mannsbrag hinna erlendu gesta,
og sumar þeirra dreymdi um að
finna hamingjuna f einhverju
fjarlægu ævintýralandi. Sumar
þeirra og raunar flestar urðu
fyrir beizkum vonbrigöum — og
til að gleyma þeim fleygðu þær
sér út í stundarglaum, sem
hafði afdrifarikar afleiðingar fyr
ir margar hverjar.
En stríöinu lauk og óðagoti
hemámsáranna. Þar sem áður
voru herskálar eða fallbyssu-
stæði eru nú grónar rústir. En
Hermennirnir löguðu sig lítt að umhverfi sínu, miklu fremur reyndu þeir að breyta því eftir eigin höfði. Fyrir utan kampinn
hér á myndinni er hermaður á varðgöngu undir suðrænum pál matrjám, sem eiginlega ætti frekar að benda til þess að
myndin hefði verip tekin á einhverri Kyrrahafseyjunni en ekki á Islandi.
HERNÁMSÁRIN
sum sporín eru óafmáanleg. Ein
angrunarbragurinn er horfinn,
ný viðhorf mótuð, og ennþá Iif-
ir minningin um styrjöldina
miklu, og styrkir okkur í von-
inni um að við fáum aldrel
að sjá aðra slíka.
;-------------;......................................................«..........................
Það er einkennileg þverstæða, að á öllum styrjaldaHTrunum
urðu aldrei meiri óspektir í Reykjavík, heldur en einmitt á
sjálfan friðardaginn. Þessi mynd er tekin næsta dag þar á Siglingar skipalesta hér við Iai ' voru tíðar. Frá Hvalfirði lögðu upp stðrar skipalestir, sem
eftir. Verzlunarrúða hefur verið brotin, og verið er að kanna höfðu hér viðkomu á leið sinni frá Bandaríkjunum til Murmansk í Sovétríkjunum. Þessar
skemmdirnar. skipalestir fluttu dýrmætan farm, en oft tókst Þjóðverjum að höggva skarð í fjölda skipanna.