Vísir - 17.10.1968, Qupperneq 10
V í SIR . Fimmtudagur 17. október 1968,
10
Eins og fram kemur á forsíðu voru Óðinsmenn heiðraðir fyrir va sklega framgöngu sína i vetur. Þessi mynd var tekin af þeim
varðskipsmönnum ásamt eiginkonum, en með á myndinni eru br eski sendiherrann, Jóhann Hafstein og Pétur Sigurðsson.
Þeir fá vísindastyrki NATO
• Menntamálaráðuneytiö hef-
ur úthlutað fé þvi, er kom í hlut
íslendinga til ráðstöfunar til
vísindastyrkja á vegum Atlants
hafsb^ndalagsins („NATO Sci-
ence Fellowships") árið 1968.
Umsækjendur voru sautián, og
hlutu tólf þeirra styrki sem hér
segin
Auðólfur Gunnarsson, læknir,
50 þúsund krónur, til framhalds-
náms í læknisfræði (líffæraflutn
ingur) við The University of
Minnesota Medical School, St.
Paul, Bandaríkjunum.
Gottskálk Þ/Bjömsson, lækn-
ir, 30 þúsund krónur, til fram-
haldsnáms í lungnasjúkdóip.a-
fræði við U. S. Veterans Hospi-
tal, West Haven-Yale University
New Haven, Bandaríkjunum.
Höröur Filippusson, B. Sc., 30
þúsund krónur, til framhalds-
náms og rannsókna í lífefnafræði
við University of St. Andrews,
Skotlandi.
Kristinn Guömundsson, lækn-
ir, 30 þúsund krónur, til fram-
haldsnáms í taugaskurðlækning
um við Mayo Graduate School
of Medicine, Rochester, Banda-
ríkjunum.
Leó Geir Kristjánsson, M.Sc.,
50 þúsund krónur, til framhalds-
náms í jarðeðlisfræði við háskól-
ann í St. John’s á Nýfundna-
landi.
Páll G. Ásmundsson, læknir,
50 þúsund krónur, til framhalds
náms og rannsókna í iyflæknis-
fræði við Georgetown Uni-
versity Medical Divifeion,
Washington.
Sigurgeir Kjartansson, lækn-
ir, 30 þúsund krónur, til fram-
haldsnáms í handlæknisfræði
við The Memorial Hospital,
Worcester, Bandarikjunum.
Dr. Svend-Aage Malmberg,
haffræðingur, 30 þúsund krón-
ur, til rannsókna á sviöi haf-
fræði við Kaupmannahafnarhá-
skóla.
Sverrir Schopka, efnafræðing
ur, 30 þúsund krónur til fram-
þaldsnáms í lífrænni efnafræði
Við háskólann í Frankfurt am
Main,
Valgarður Stefánsson, fil.
kand., 30 þúsund krónur, til
framhaldsnáms í eðlisfræði við
Stokkhólmsháskóla.
Víglundur Þór Þorsteinsson,
læknir, 50 þúsund krónur, til
framhaldsnáms í fæðingar- og
kvensjúkdómafræði við Mayo
Graduate School of Medicine,
Rochester, Bandaríkjunum.
Þórarinn Stefánsson, eðlis-
fræðingur, 30 þúsund krónur til
framhaldsnáms í eölisfræði við
Verkfræöiháskólann í Þránd-
heimi.
Seagten slapp naumlega
Verðmunur —
®--------------------:—
Símusumbands-
luust við Kópuvog
Símasambandslaust varð í
morgun milli Kópavogs og Reykja-
víkur vegna skemmda, sem uröu á
símalínustreng hjá Fossvogslæk.
Þar vinna verktakar að fram-
kvæmdum við smíði umferðarbrú-
arinnar yfir Kópavogsháls.
Viðgerðarflokkur fór þegar á
vettvang í morgun og var þess að
vænta, að ekki mundi líða langur
tími, áður en aftur yrði komið á
símasambandi á milli bæjanna.
Skyndi-hupp-
drætti
í gær var dregið í skyndi-happ-
drætti sumardvalarheimilis Sjó-
mannadagsráðs.
Þessi númer komu upp:
Myndsegulbandstæki ásamt upp-
tökutæki nr. 56235.
Gúmbátur með utanborðshreyfli
nr. 43754.
Vélsleði nr. 13082.
| Vinninga má vitja til Guðmund-
j ar H. Oddssonar skipstjóra.
Gæti verið upphuf
Þr'ir stukku 5.40
Bob Seagren vann gullverðlaun-
n f stangarstökki ÓL í gærkvöldi,
sihs og raunar var búizt við. Hins
vegar varð keppnin miklu haröari
en nokkurn óraði fyrir. Þrír fyrstu
rnenn stukku allir 5.40 metra.
Annar varð V.-Þjóðverjinn Klaus
Schiprowski og þriðji A.-Þjóðverj-
inn Wolfgang Nordwig. Schi-
prowskj er 24 ára gamall og bætti
árangurinn um 27 sentimetra.
)»» > 1. síöu.
nemur 25—35% af framleiðslu
verðinu. Við útflutning sé gjald
ið fellt niður en það nemur kr.
41.61 af kílóinu, ennfremur
styrktarsjóðsgjald, sem sé kr. 4
kíló. Sömuleiðis sé verksmiðj-
unni endurgreiddir tollar af hrá
efninu, sem nemur 40—100%.
Söluskattur sé enginn og álagn-
ingin mun minni en í verzlunum
í Reykjavík.
Ekki vildi Óskar gefa upp
súkkulaðiverðið frá verksmiðj-
unni til vallarins — en ef að
líkum lætur mun það vera mjög
lágt. Frá verksmiðjunni er súkku
laðiverð t.d. 40 gr. Caprisúkku
laði í verzlanir í Reykjavík kr. I
8.40, en við það bætist 50—60% j
álagning og söluskattur. I
Að lokum sagði Óskar, að um
takmarkað magn hafi verið aö ,
ræða, sem hafi farið á völlinn j
til sölu þar og hafi það verið af j
sérstökum ástæðum. Bjóst hann j
allt eins að því, að salan myndi I
leggjast niður innan skamms, •
ekki sízt vegna þess að nú stæði
yfir á vellinum herferðin „Buy
american“, sem myndi útleggj-
ast „kaupið ameriskt."
®—> 16, síðu.
ið settir á hana, sem breyta
flugeiginleikunum til hins
betra. Vængendarnir voru
fengnir aö utan, en allar fest-
ingar gerðar á Akureyri. Ot-
blásturskerfi hreyflanna var
breytt til þess að fá aukið
straumlínulag á vélitia og til að
nýta orku hreyflanna betur.
Farþegarýminu breytt og stækk
að. Vélin tekur nú 9 farþega
í stað 8 og möguleikar að auka
farþegatöluna í 10. Öll vinnan
var unnin fyrir norðan, nema
stólarnir voru fengnir að utan.
Áfallshorni á hæðarstýrið var
breytt og stélhjólið hækkað.
Útbúnaður til að taka stélhjólið
upp settur í vélina. Tvær ben-
sínmiðstöðvar fyrir farþegarým-
ið settar í flugvélina. Stór vöru
flutningahurð sett á skrokkinn,
sem gerir mögulegt að taka
stærrí hiluti í fragt og umhlaða
með meiri hraða í vélinni.
Sömuleiöis hefur hurðin mikiö
að segja, þegar vélin yrði notuð
í sjúkraflutninga og flytja
þyrfti tvær körfur eins og oft
gerist t.d, í sambandi við slys.
Að lokum má geta þess' að
skipt hefur verið um öll radíö-
tæki í vélinni. i
TIL SÖLU
nýleg 96 ferm. íbúö. Hagstæð lán áhvilandi og
útborgun má skiptast að nokkru. — Uppl. í
sírna 84223 eftir kl. 5.
Ríkistryggð skuldabréf
Vil kaupa ríkistryggð skuldabréf. — Tilboð
merkt „Viðskipti 1631“ sendist blaðinu.
— Nei, þetta er ekki nýtt af-
sökunarbréf frá Hiálmari, heldur
bara venjulegir reikningar.
llSMEfl
Stærsta fangelsið í heiminum er
fangelsiö f Kharkov í Rússlandi.
Það getur hýst 40.000 fanga sam-
tímis.
Dýrtíð. Maöur nokkur lét smíðá
fyrir sig Iykil, það kostaði 25 aura
fyrir nokkrum árum, nú kostaði
það 5 krónur, og sagði smiðurinn
þó, að það hefði eiginlega þurft að
kosta 6 krónur.
Vísir 17. okt. 1918
VEÐRIÐ
DAG
Suöaustan gola
og síðar stinn-
ingskaldi, rigning
með kvöldinu. —
Hiti 3-6 stig.
Ókeypis Ijósaathugun
í dag og á morgun eru síðustu
dagarnir, sem bifreiðaeigendum í
Hafnarfirði gefst tækifæri til þess
að fá ókeypis athugun á Ijósa-
búnaði bíla sinna.
Ljósaathugunin fer fram síð-
degis frá kl. 18 til kl. 22 á eftir-
töldum verkstæðum: Bifreiðaverk
stæði Jóns Vals Steingrímssonar
við Hjallahraun, Bílaverkstæði
Hafnarfjarðar við Reykjavíkur-
veg, Bílaverkstæði Njáls Haralds
sonar Norðurbraut 41 og Bifreiða
geymslu FÍB á Hvaleyrarholti.
Lögreglan í Hafnarfirði hvetur
a bifreiðaeigendur þar til þess
að nota sér þessa endurgjalds-
lausu þjónustu.
Síðasti dagur bóka- og tímaritaútsölunnar er í dag
II Notið tapkifærið — Hundruð vísinda-, menningar-, fræðslu- og skemmtitímarita og bæklinga á 5 og 10 kr.
H Töluvert eftir af bókum. — Opið til kl. 10 í kvöld.
BÓKA- OG TÍMARITASALAN GRETTISGÖTU 16