Vísir - 20.11.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 20.11.1968, Blaðsíða 8
8 VISIR Otgefandi Reykjaprent n.i Framkvaemdastjóri Sveinn R eyjólfsson Rltstj^ri: Jónas Krist jánsson Aðtitt itarritstjóri: Axei Thorsteinsoo Fréttastjóri Jón Birgii Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannessco Auglýsingar: Aðaistræt 8. Stmar 15610 U660 og 15099 Afgreiflsla- Aflalstræti 8. Sími 11660 Ritstjórn: tnugavegi 178. Simi 11660 (5 Unur) Áskrittargjald kr. 125.00 ð mánuöi innanlands t iausasölu kr 10.00 eintakifl Prentsmiflja Vísis — Edda h.f. Skuldir og ekki skuldir Eitt yndisetna stjórnarandstöðublaðanna þessa dag- ana er að skrifa um hinar miklu erlendu skuldir, sem peir kalla svo. Almenningi er ætlað að halda, að ríkisstjórnin skuldi svo mikið erlendis, að nú sé allt á vonarvöl. Vissulega hækka erlendar skuldir í krónutölu, þeg- ar gengi krónunnar er fellt gagnvart erlendri mynt. En hvað hefur gerzt? Hefur orðið til einhver ný skuldasöfnun? Skulda Loftleiðir meira en áður? Hafa kaup þess fyrirtækis á nýjum flugvélum, svo dæmi sé nefnt, orðið hærri í dollurum en áður? Er ríkið í ábyrgð fyrir þessari skuld? Öllum þessum spurning- um er hægt að svara neitandi. Hafa skuldir Landsvirkjunar vegna fyrstu stórvirkj- unar á íslandi hækkað í dollurum? Nei. En hafa þær hækkað í íslenzkum krónum? Já. Skiptir það máli? Nei. Af hverju skiptir það ekki máli? Vegna þess að lánasamningnum fylgir annar samningur. Hvaða samningur er það? Það er rafmagnssamningurinn við álbræðsluna í Straumsvík. Og sá samningur felur í sér, að álbræðslan á að greiða rafmagnið í dollurum og að þær greiðslur eru jafnvirði allra erlendu lán- anna til Búrfellsvirkjunar. Svona mætti lengi telja. Við höfum keypt nýjan, stór- an fiskiskipaflota, fyrir um 2000 milljónir króna á fyrra gengi. Miðað við hið nýja gengi eru þetta yfir 3000 milljónir. Erlend lán vegna þessara fiskiskipa- kaupa hækka ekki í erlendri mynt. Þau hækka í ís- lenzkum krónum. Er aðstaða okkar verri eftir en áður? Með gengislækkuninni er þessum skipum skapað- ur nýr rekstrargrundvöllur, nýir möguleikar til að greiða hvort heldur sem er erlendar eða íslenzkar skuldir. Hver uggi úr sjó hækkar í verðmæti sem svar- ar gengisbreytingunni, um 55%. Auðvitað má sama segja um svo fjölmarga aðra verðmætaframleiðslu í landinu. Það liggur ef til vill ekki eins í augum uppi og þegar um fiskiskip er að æða. Til dæmis hækka erlendar skuldir Sements- verksmiðjunnar um meira en hundrað milljónir króna. Er hún ekki þar með dauðans matur? Er þetta ekki óbærilegt áfall? Þeir, sem kaupa sement frá verk- smiðjunni í framtíðinni, greiða þetta gengistap í hærra verði. En þeir hefðu á sama hátt þurft að greiða inn- flutt sement hærra verði. Ef til vill sér nú Sements- verksmiðjan sér leik á borði að selja sement með hagn- aði til útlanda, eins og hún eitt sinn gerði. Stjórnarandstæðingar geta leikið sér að tölum vegna gengislækkunarinnar, sýnt hærri skuldir út á við í íslenzkum krónum. En sé sú hækkun á pappírn- um komin til vegna þess, að skapa þurfti meira öryggi f twídinu til framleiðsluaukningar og atvinnuöryggis, þurfa menn ekki að kvíða. V í S IK . Miöviivuuagur 20 £ ióvembek*i968< Nixon, kona hans og dætur og tilvonandi tengdasonur, David Eisenhower. Samsærið um að myrða , NIXON Lá falsákæra til grundvallar er Namer og synir hans voru handteknir? A röbunum þremur, sem sak- aðir eru um samsærisáform til þess að ráða Richard i'Jixon, nýkjörinn forseta Bmdaríki- anna af dögum, hefir nú öllum verið sleppt gegn iausnargjaldi, sem er tii trýggingar fyrir, að þeir mæti f rétti, begar lokið er rannsókn þeirri sem fram fer, en að her.:-!! lokinni tekur rétt- urinn ákvörðun um það hvort leggja skuli fram ákæru gegn þeim. Annars hefir þaö vakið mikla athygíi, að athuganir varðandi mann þann, sém sakaði þá um' samsærið. eætu bent til, að hann hafi viljaö hefna sín á feðgunum, og ákæra hans kunni því að vera fölsk. Þessi maðu. einnig frá Yemen Mohamr ' Jassan Al- gamal, 36 ára. Algamal hafði búið hjá Namer-fjölskyldunni í 3—4 mánuði, en hann kom til Brook- lyn frá Kaliforníu, en lenti í 6- sátt við landa sína og var rekinn af heimilinu Hefir hann ekki síðan farið dult með gremju sína < garð Namer-fjölskyld- unnar. Það var engin :urða, þótt fregnirnar um samsærið vektu athygli. Moröið á Robert Kennedy er öllum í fersku minni, en það er ungur Arabi, Jórdaníumaður, sem ákærður er fyrir það. Aðalm„:..-Inn í samsær- inu var talinn vera Ahmed Rageh Namer, 46 ára, en synir hans tveir voru einnig handteknir, Hussein 20 ára, og Abde 19 ára. Það var heill herflokkur, sem sendur var á vettvang til þess að handtaka þá. Þegar feðgarnir voru leiddir fyrir dómarann mælti enginn þeirra orö af vörum. Saksóknari og dómari deildu um hvort þeim skyldi sleppt gegn trygg- ingu, og fór saksóknari fram á, að þeim yrði ekki sleppt, sak- ir þess hve alvarlega ákæru væri um að ræða. Enginn þeirra hefði fest rætur í Bandaríkjun- um, ekki traustlega að minnsta kosti, og kynnu aö freista að flýja, kona föðurins og dætur væru enn í Yemen, þótt faðir- inn og annar sonurinn hefðu fengifl bandarískan ríkisborg- ararétt Dómarinn fór þá leið, að hafa tryggingamar svo háar, að eng- inn feðganna gæti lagt fram féð. Seinna náðist svo saman tryggingarfé fyrir atbeina Ar- aba, sem hafa komið Namer til hjálpar. Klukkustundum saman fyrir húsrannsóknina haföi flokkur lögreglumanna gefið gætur að húsinu, sem Namer bjó í. Þess- ir lögreglumenn vissu vel hvaða hlutverk þeim var ætlað. Þama var um að ræða aö minnsta kosti 25 manna flokk og hann mddist inn eftir að einn lögreglumanna hafði sagt, að hann væri Vúsvörðurinn, og þyrfti hann að athuga gaspípur vegna leka. íbúðin var læst að innanverðu með tvöföldum lás og opnaði Namer og gafst hann þegar upp og annar sona hans, en hinn, Hussein, smaug út um glugga, og náðist ekki fyrr en 5 klukku- stundum síðar. I íbúöinni fundust tveir rifflar með sjónaukum og tveir fjaðra- hnífar, þeirra tegundar sem nú , er bönnuð sala á. Sá, sem hringdi til lögregl- unnai, og sagði að leitað hefði verið hófanna hjá sér um þátt- töku í samsæri,. lét Iögregl- unni í té upplýsingar, sem leiddu til að hún ráðgaðist við leynilögregluna, og að leyfi var veitt til húsrannsóknar hjá Namer. Maðurinn, __.n ákærði Nam- er og syni hans, á að hafa tjáð lögreglunni hvaða vopn hún myndi finna í íbúð hans. Elliott Golden, hinn opinberi ákærandi, og vop nin, sem fundust í ibúð Namers. / t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.