Vísir - 04.12.1968, Síða 1
I
58. átg. - Miðvikudagur 4. desember 1968. - 275. tbl,
Minni togbátarnir
Breytingar hjá Landhelgisgæzlunni:
ALBERT LAGT. EN ÞÓR
GERÐUR UT UM ÁRAMÓT
Landhelgisgæzlan mun á
næsta ári taka við rekstri Ár-
vakurs, en varðskipinu Albert
verður lagt. Af þessu Ieiðir, að
um ýmsar stöðubreytingar verð-
ur að ræða hjá áhafnarmeð-
limum bessara tveggja skipa.
Engum hefur verið sagt upp
starfi, að því er Pétur Sigurðs-
son forstjóri Landhelgisgæzl-
unnar tjáði blaðinu í viðtali i
morgun, en aftur á móti munu
a. m. k. tveir menn úr áhöfn
Alberts ekki kæra sig um að
fara á önnur skip, og hætta
þess vegna starfi.
Varðskipið Þór mun ekki
verða gert út fyrr en um ára-
mót, meðal annars vegna þess
að nú eru 7 af stýrimönnum
Landhelgisgæzlunnar á sérstöku
námskeiði, þannig að beir geta
ekki sinnt öðrum störfum.
hætta sér ekki út j Tiiboði Brunabótafélagsins í
endurtryggingar Rvlkur tekið
Minni trollbátarnir hætta sér
nú varla á sjó, þar sem Land-
helgisgæzlan hefur hert á eftir-
litinu á veiðisvæði þeirra, en
margir þessara báta geta ekki
sótt á dýpið og hafa haldið sig
við landheigislínuna á veiðum
sínum og sti ndum innan henn-
ar, eins og komið hefur í ljós,
begar varðskipin hafa verið send
eftir þeim.
Veiðin hefur verið næsta lítil hjá
þessum bátum seinustu dagana. —
Reykjavíkurbátarnir hafa stundum
ekki landað lema 100 til 400 kg
af smáýsu eftir róðurinn.
Skárra hefur verið hjá stærrj tog
bátunum. em sækja lengra. Sædís
landaði 9 tonnum í Reykjavík í
gær og Drífa 7 tonnum. Einnig
landaði hér Sæborg 6 tonnum, en
hún var að koma úr söluferð, tók
ís og olíu á Hornafirði á heimleið
innj og fékk þetta á leiöinni þaðan.
Heildartryggingarupphæð fasteigna i Reykjavik
34,2 milljarðar króna
Samþykkt var í borgarráði að
taka tilboði Brunabótafélags ís
lands í endurtryggingar Húsa-
trygginga Reykjavíkur, en eins
m slys í STRAUmm
ðryggisbeltÍB ekki notuð
J
Annað dauðaslysið á skömmum tima — Rætt
við óryggismálastjóra
■ 34 ára gamall Þjóð-
verji Alfred Schmithe,
beið bana í Straumsvík í
gærdag, þegar hann
hrapaði úr 11 m hæð nið-
ur á steingólf. Hann lézt
í slysavarðstofunni
skömmu eftir að hann
komst þangað undir
læknishendur.
• Er þetta annað dauðaslysið
á sjö dögum, sem verður í
Straumsvik við byggingu Ál-
verksmiðjunnar, en 27. nóv.
fórst þar Svisslendingur, Max
Stamm, sem hafði veriö að
vinna í mikilli bæð, en hrapaði
niður á steingólf.
Þjóðverjinn var að vinna uppi
á bita í 11 m hæð frá gólfinu
og var hann að koma fyrir
hitastokk, sem átti að liggja
frá gólfi steypuskálans og upp
í loft, í blásara þar. Enginn sá,
hvernig óhappið vildj til. Schm-
ithe var einn við verk sitt, en
athygli þeirra, sem næstir stóðu
var bundin við annað. Urðu
menn einskis varir, fyrr en þeir
sáu hann í fallinu.
Alfred Schmithe var ekki með
öryggisbelti við verk sitt, eftir
því sem rannsóknarlögreglan í
Hafnarfirði hefur komizt næst.
Fyrir stuttu slasaðist starfs
maður í Straumsvík, þegar hann
hrapaði úr 4 m hæð, vegna þess
að planki. sem hann hafði stig
ið út á, lét undan og brotnaði.
Maðurinn hefur verið frá vinnu
síðan.
Síðari hluta sumars slasaðist
maður, sem var að vinna í mik-
illi hæð, en missti jafnvægið og
hrapaði, Hann kom niður stand-
andi og hælbrotnaði á báðum
fótum.
Ýmis óhöpp hafa hent starfs1
menn, sem unnið hafa við fram
kvæmdirnar suður í Straums-
vík, eins og hætt er við að vilji
til, þar sem margir vinna og
stórframkvæmdir eru á ferðinni,
en þessi tíðu slys manna, sem
fallið hafa úr mikilli hæð, hafa
slegið nokkrum óhug á fólk.
Blaðamaður Vísis átti stutt
samtal við Þórð Runólfsson, ör-
yggismálastjóra hjá Öryggiseft-
irliti ríkisins, í morgun og innti
hann eftir því, hvort það væri
fullvíst, að alls öryggis væri
gætt við störf manna suöur í
Straumsvík.
„Við fengum fregnir af þessu
síðasta slysi í gærkvöldi og það
fara menn frá okkur, strax og
birtir, til þess að kanna, hvort
það hafi orðið af vanrækslu á
öryggisbúnaði", sagði Þóröur í
morgun.
„Hálfsmánaðarlega hefur eft
irlitsmaður farið þangað á vinnu
staöina, litið eftir því, að örygg-
issjónarmiða værj gætt, gert
kröfur um úrbætur þar sem
þeirra hefur verið þörf og geng
ið eftir því, að þeim væri fram-
fyigt.
Við höfum fyrirskipað, aö
nota öryggisbelti við þessa
vinnu, sem unnin er í mikilli
hæð, þar sem öryggisbeltum
yrði við komið.“
„En hvað þá, þegar ekki hef
ur verið hægt að koma öryggis-
beltum við?“
„Þá séu gerðar aðrar ráðstaf-
anir, sem hægt er að gera mið-
að við aöstæður".
„En hvernig stendur á því,
að það verða svona tíð óhöpp
þarna með þessum svipaða
hætti, aö menn hrapa úr mikilli
hæð?“
„Við höfum ekki kynnt okk-
ur, hvemig þetta gerðist í gær,
en þegar Svisslendingurinn
fórst, var hann ekki meö örygg-
isbelti. — Þetta stafar annað
hvort af því, að mönnunum er
ekki til reiöu öryggisbúnaður,
eða verkstjórnin gengur ekki
nægilega ríkt eftir því, aö menn
irnir noti hann. Komi í ljós, að
slysið í gær stafi af einhverri
slíkri vanrækslu, geta verk-
stjórnendur átt yfir höföi sér
að verða látnir sæta ábyrgö
fyrir. Viö höfum brýnt fyrir
þeim, hvaða ábyrgð hvílir á þeim
og við munum brýna það enn
frekar", sagði Þórður.
og kunnugt er voru endurtrygg-
ingarnar boðnar út. Tilboð Bmna
bótafélagsins var talið hagkvæm
ast hvað snertir öryggi trygging
anna og iðgjald. Heimilaði borg
arráð því að samiö yrði við fé-
lagið um endurtryggingarnar.
Nýlega var samþykkt í borg
arráði að hækka brunabótamat
fasteigna í Reykjavík um 16%
frá 1. janúar nk. Heildartrygg-
ingarupphæð fasteigna í Reykja
vík mun hækka við það upp í
34,2 milljarða króna að því er
■ áætlað er.
Letnd$lið!i?
— nei, lógreglan
•
• LandslHSið byrjað útiæfingar
• í knattspyrnu! Eða ... ?
• Það fyrsta, sem blaðamanni
JVísis kom til hugar, begar hann
•í blíðviðrinu í fyrradag gekk
Jfram á nokkra pilta vestur á
jSeltjarnarnesi, þar sem þeir
#léku knattspyrnu af miklu kappi
Jvar bað, að nú væri landslið
• byrjað útiæfingar.
• Við nánari athugun kom ann-
Jað i Ijós. Piltar bessir voru úr
• framhaldsdeild lögregluskólans
Jog sú tilviljun, að beir voru
Jað sparka knetti á milli sín,
• átti ekkert skylt við knatt-
Jspyrnuæfingar, heldur var þetta
• bara liður líkamsþjálfuninni
• Þetta er annað árið, sem lög-
Jregluskólinn starfar í tveim
• deildum, framhaldsdeild og byrj
Jendadeild, en skólaárið hófst í
• okt. s.l. Kennslumisserið stend-
• ur yfir í þrjá og hálfan til fjóra
Jmánuði í framhaldsdeild og sex
• til sjö vikur í byrjendadeild.
/