Vísir - 04.12.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 04.12.1968, Blaðsíða 8
8 V í SIR . Miðvikudagur 4. desember 1968. VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aöalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 145.00 á mánuði innanlands ! lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Hliðarráðstafanirnar komnar Öllum er kunnugt, að gengislækkunin í síðasta mán- uði var fyrst og fremst miðuð við sjávarútveginn. Hún átti að tryggja eðlilegan og styrkjalausan rekstur fyr- irtækja í sjávarútvegi og um leið almenna atvinnu við sjávarsíðuna. Jafnframt var vitað, að gengislækkunin mundi ekki ná tilætluðum árangri, nema einnig yrði gripið til hliðarráðstafana til þess að hindra ýmis óþægindi af völdum hennar. Þessar ráðstafanir voru boðaðar, þeg- ar gengi krónunnar var lækkað. Þær komu svo fram í fyrradag á Alþingi í lagafrumvarpi frá ríkisstjórn- inni. Þetta er mikill og torlæsilegur bálkur, en aðal- atriðin eru fjögur. í fyrsta lagi á verðlagsráð sjávarútvegsins að ákveða hið fyrsta nýtt fiskverð, sem á að gilda frá 15. nóvember s.l. Nýja fiskverðið á að miða við hinar nýju aðstæður eftir gengislækkunina, þannig að rétt tekjuskipting fáist milli útgerðarmanna og sjómanna annars vegar og fiskvinnslustöðva hins vegar. í öðru lagi eiga fiskvinnslustöðvar að greiða til út- gerðar 17% af fiskverði sem hlutdeild í útgerðarkostn- aði. Ennfremur 10% af fiskverði og 20% af síldarverði í stofnfjársjóð fiskiskipa til greiðslu á vöxtum og af- borgunum útgerðarinnar. Gert er ráð fyrir, að þessar greiðslur fiskvinnslustöðva til stofnfjársjóðs nemi 300 —400 milljónum króna á ári, sem er nokkru lægri upphæð en vextir og afborganir af fiskiskipum nema samtals. Með þessum hætti er greiðslubyrði útgerð- arinnar létt verulega. í þriðja lagi er breytt reglum um útflutningsgjald afurða fiskvinnslustöðvanna, þannig að heildarupp- hæðin hækkar um tæpar 50 milljónir króna. 80% út- flutningsgjaldsins renna í tryggingasjóð fiskiskipa til greiðslu á vátryggingaiðgjöldum flotans. Á sjóðurinn á þennan hátt að verða þess megnugur að sjá um þess- ar gréiðslur, þar sem hann fær einnig í sinn hlut nærri 20% af gengishagnaði sjávarútvegsins. í fjórða lagi er allur gengishagnaðui sjávarútvegs- ins lagður í sérstakan sjóð. Þessi hagnaður kemur fram á afurðum, sem framleiddar voru fyrir gengis- lækkun en eru greiddar í erlendum gjaldeyri eftir gengislækkun. Hér er um að ræða mjög háa upphæð, líklega um 740 milljónir króna. Sjóður þessi verður allur notaður í þágu sjávarútvegsins. Þriðjungi hans verður varið til að greiða gengistap sjávarútvegsins og minni hlutar fara til greiðslu á vátryggingagjöld- um flotans, til greiðslu vaxta og afborgana af síld- veiðiskipum og til aðstoðar síldarverksmiðjum. . Með frumvarpi þessu er gert hreint borð í sjávar- útvegi og einkum réttur skarður hlutur útgerðarinnar. Ættu allir ábyrgir þingmenn að geta fallizt á þessa lausn mála sjávarútvegsins. I NASSER SAKAR ISRAEL UM NJÓSNASTARFSEMI — Egypzkir stúdentar hótuðu oð leggja Alexandriu i rústir Kairo: Nasser forseti skýrði frá þvi í gær, að komizt hefði upp um njósnara, sem störfuðu fyrir ísrael, og að ísrael hefði um langt skeið reynt að fá egypzka stúdenta og egypzka hermenn sem teknir voru til fanga, i sex daga styrjöldinni, en síðar var skilað, til l»ess að stunda njósnir. Einnig kvað hann israelska erindreka hafa haft sig í frammi í stúdentaóeirðunum undangeng inn hálfan mánuð. Egypti sá, sem handtekinn var, sbr. frétt í gær, heitir EI Haddad. Enn rænf bnndn- rískri flugvél Enn hefur bandarískri flugvél verið rænt — hinni fjórðu á 10 dögum, og og flogið til Kúbu. Máður vopnaður skammbyssu miðaði henni á flugmanninn, er skammt var ófarið til Míami frá New York, og skipaði honum aö breyta um stefnu. Flugmaðurinn kvað ekki nóg bensín til þess, en ræninginn skipaði honum þá að lenda við Key West, og þar var tekið bensin, og miðaði ræninginn byssunni á flugmanninn, meðan það var gert. Flugvélin var af gerðinni Boeing 727. Farþegar voru 36. Fer Konstantin heim fyrir jól? London: Lundúnablaðið Daily Express hefur það eftir stjóm- málalegum heimildum, að Kon- stantin Grikkjakonungur hafi fallizt á, að hverfa heim fyrir jól, en í staðinn hefur gríska stjómin lofað að boða til al- mennra þingkosninga innan skamms. Blaðið hefur það eftir talsmanni gríska sendiráðsins i London, að tilkynningar um þetta megi vænta þá og þegar. Háskólunum í Egyptalandi hef ir verið lokað síðan uppþotin urðu og hefir einn þeirra, sem sæti eiga í stúdentaráðinu farið fram á, að þeir verði opnað aft- ur, þar sem rangt sé að skella skuldinni á alla stúdentana, en augljóst virðist af fréttum, að Gull og yjaldeyrisforði Bret- lands minnkaði svo að nam 82 milljónum punda og var það afleiðing ástandslns í peninga- málum, er yflr vofði gengislækk un frankans og orðrómurinn gekk fjöllunum 'hærra um aö markið yrði hækkað. j hiiíu opinbera yfirliti stjórn stúdentaráðið verði endurskipu- lagt og að ögunarreglum verði beitt gegn stúdentum. Mohammed Abu Nossier dómsmálaráðherra segir, að stúdentar hafi hótar að leggja bæinn (Alexandriu) í rústir svo að þar stæði ekki steinn yfir steini. arinnar segir, að í nóvemberlok hafi gull- og gjaldmiðilsforðinn numiö 1228 milljónum punda, en þess er að geta að teknar voru af forðanum 54 milljónir punda vegna lánaskuldbindinga, og hefðu þær greiðslur ekki ver- ið inntar af hendi, hefði rýmun- in aöeins numið 28 mijljónum punda. Frá uppþotinu í Alexandríu: 1 kröfugöngu um borgina var velt um bifreiðum og strætisvögnum og kveikt i og fleiri spjöll unnin. Sextán menn biðu bana í óeirðunum, en tala meiddra og særðra og handtekinna skipti hundruðum. Enn minnkar gull- og gjaldeyrisforði Breta Deilan um Falklandseyjar fer harðnandi — Vaxandi kviði i Bretlandi vegna afstóðu stjórnarinnar ■ í Bretlandi óttast margir, að stjórnin muni slaka til i deilunni út af Falklandseyjum og gætlr vaxandi kvíða vegna afstöðu hennar og þykja yfirlýs- ingar hennar loðnar. ■ Utanrikisráðherra hefur end- urtekið, að Argentína muni ekki undirrita neitt samkomulag við Bretland, sem feli í sér sjálfs ákvörðunarrétt eyjaskeggja á Falklandseyjum. Chalfont lávarður, sem nýlega fór til eyjanna fyrir hönd brezku stjórnarinnar, endurtók í gær i lávarðadeildinni, að eyjamar yröu ekki afhentar Argentínu gegn vilja eyjaskeggja, og sams konar greinargerð var birt í neðri málstofunni, en stjómmála fréttaritari brezka útvarpsins segir, að þessar yfirlýsingar hafi ekki dregið úr áhyggjum manna, vegna þeirra samningaumleitana sem fram hafa farið milli Arg- entínu og Bretlgnds um málið, en Chalfont lávarður kvaðst ekki geta gert nánari grein fyrir þeim eins og sakir stæðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.