Vísir - 04.12.1968, Qupperneq 2
tmmjm
mhrnmí
mmi
Jólin rugla KSl-menn ekkert í ríminu!
Þriðji æfingaleikur landsliðsins á annan / jólum
■ EINVALDURINN, Hafsteinn Guðmundsson, sagði
blaðamönnum í gær frá vali sínu á 22 leikmönnum,
sem ætlunin er að reyna með landsliðinu á æfingum í
vetur. Áætlun um æfingar hefur verið gerð og í kvöld
verða leikmenn kallaðir saman til fyrsta fundarins, en
sannarlega verður þar um sögulegan atburð að ræða,
fyrstu raunhæfu tiiraunina til að skapa landslið íslands
í knattspyrnu.
Á fundinum sem stjóm KSÍ boð-
aði til sagði Hafsteinn að fyrsti leik
urinn yrði n.k. sunnudag í Kefla-
vík og hæfist kl. 14. Þar leikur
heimaliðið á malarvellinum við
landsliðið, sem verður þannig skip-
að:
1. Þorbergur Atlason, Fram
, 2. Jóhannes Atlason, Fram
3. Þorsteinn Friðþjófsson, Val
4. Marteinn Geirsson, Fram
5. Ellert Schram, KR
6. Ársæll Kjartansson KR
7. Reynir Jónsson, Val
9. Þórófur Beck, KR
9. Hermann Gunnarsson, Val
10. Eyleifur Hafsteinsson KR
11. Ásgeir Elíasson, Fram.
Varamenn:
Sigurður Dagsson, Val
, Björn Árnason KR
Rúnar Hjálmarsson, Fram
Halldór Björnsson, KR
Hreinn Elliðason, Fram
Annar Jeikurinn verður í Reykja-
'vík 15 des., einnig á sunnudegi,
Hafsteinn Guðmundsson, einvaldurinn, skýrir frá landsliðsvali sínu. Hafsteinn er lengst íil háegri, {^„s^ns0^ lT^Jólin'hafa'ekki'rugla^ð
þá kemur Albert Guðmundsson og Jón Magnússon, en þeir Sveinn Zoéga og Ragnar Lárusson sitja. Kg{________________menn í ríminu, það verður
leikið laugardaginn fyrir jól, 21.
desember við KR, líklega á Vals-
velli eða Framvelli. Á 2. í jólum
verður einnig leikið, — en íþróttir
þennan mjög svo helga dag hafa
til þessa þótt hreinasta goðgá. Þá
veröur leikið við Unglingalandsliðið
20 ára og yngri.
Eftir áramót em m.a. Valur og
Akranes keppnautar landsliðsins.
Einnig hefur verið rætt viö Vest-
mannaeyinga og Akureyringa um
leiki en ekkert afráðið vegna ferða
kostnaðarins.
Hafsteinn kvað leikmenn utan af
landi hafa orðið útundan til þessa
vegna erfiðleika á ferðaiögum, það
mundi t.d. kosta leikmann frá Akur
eyri heila helgi að vera með hverju
Er „þriggja mánaða fríið"
nú úr sögunni í knattspyrnu?
■ ÞRIGGJA mánaða
fríið í knattspyrnunni er
e. t. v. liðið undir lok.
Ekki er útilokað að þar
sé líka að finna þá mein-
semd, serp grafið hefur
um sig í íslenzkri knatt-
spyrnu.
Þetta frí knattspyrnumanna
hefur yfirleitt staöið frá október
fram í miðjan janúar ár hvert.
Raunar hefur losnað mjög um
æfingar víða þegar f ágústlok
fram í október, og æfingar oft
ekki farið í gang svo nokkru
næmi fyrr en í febrúar—marz.
Knattspyrna er ákaflega erf-
ið íþrótt og ákaflega vandlærð.
það er ekki ástæða til að rekja
það hvað góður knattspyrnu-
maður þarf aö hafa til að bera,
það 'er margtuggið atriði. Hins-
vegar hlýtur öllum að vera jóst
að enginn nær árangri í þessari
íþrótt með því að leika og æfa
5 — 6 mánuöi á ári, en „gutla“
e.t.v. 3 til 4 mánuði.
Þaö sem hér þarf aö gerast,
og gerist e.t.v. nú meö lofs-
verðu framtaki Alberts Guð-
mundssonar og félaga hans í
stjóm KSÍ, er það aö knatt-
spyrnutimabilið verður fram-
lengt.
Þá er komið aó þvi sorglega
viö knattspyrnutímabilið okkar.
Frá miðjum ágúst er vart hægt
að stunda þessa íþrótt nema um
helgar vegna ljósleysis. Flóðlýs
ingarvandamáliö er nú til athug
unar, — einmitt þessi þáttur á
eftir að leika stórt hlutverk, það
verður að nýta haustkvöldin
fögru til að leika knattspymu.
Flóðljósin munu gera leikinn
skemmtilegri fyrir áhorfendur
sem leikmenn, og e.t.v. færa
meiri peninga í kassann.
—jbp-
sinni, en fullur áhugj væri fyrir
leikmönnum Akureyringa og Vest-
manneyinga og raunar á öllum góð
um knattspymumönnum og vak-
andi auga haft á öllum góðum efn-
um, hvar sem þau kypnu að fyrir-
finnast.
Þá má geta þess að þrír góðir
leikmenn eru erlendis um þessar
mundir. Elmar Geirsson er við nám
í Þýzkalandi, Anton Bjamason
nemur við íþróttaskóla í Boston í
USA, og Guðni Jónsson úr Keflavík
er hjá Arsenal i London en kemur
um jólaleytið aftur heim. Með hon-
um er annar Keflvíkingur Ástráður
Gunnarsson.
Valdir til
landsliðs-
æfinganna
Eftirfarandi 22 leikmenn hafa
verið valdir tll landsllðsæfinga:
KR
Guðmundur Pétursson
Ársæll Kjartansson
Ellert Schram
Eyleifur Hafsteinsson
Þórólfur Beck
Halldór Bjömsson
Bjöm Ámason
i FRAM
;< Þorbergur Atlason
Jóhannes Atlason
Helgi Númason
Hreinn Elliðason
: Ásgeir Eíasson
Marteinn Geirsson
i Jón Pétursson
Rúnar Vilhjálmsson
5
VALUR
. Sigurður Dagsson
| Þorsteinn Friðþjófsson
\ Hermann Gunnarsson
■ Reynir Jónsson
j ÍBK
• Guðni Kjartansson
: Sigurður Albertsson
I ÍA
; Matthías Hallgrímsson.
Innanhússæfingar
í golfi eru hafnar
Opið til kl. 10
á hverju kvöldi
Allar vörur
okkar eru enn
á gamla verðinu
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur
sínar árlegu æfingar innanhúss f
kvöld kl, 6.50 í iþróttasalnum und
ir stúku Laugardalsvalarins. Æf-
ingar verða tvisvar í viku frá 6.50
til 9.50 á miðvikudögum og föstu-
dögum.
Æfingar verða opnar öllum,
hvort sem þeir eru meðlimir GR eða
ekki. Það eina sem með þar á æf-
ingunum eru 25 krónur og striga-
skór, kúlur og kylfur sér klúbbur-
inn um ef menn vija.
Kennarar verða þeir Einar
Guönason og Kári Elíasson.
AUGLÝSID í VÍSI