Vísir


Vísir - 04.12.1968, Qupperneq 5

Vísir - 04.12.1968, Qupperneq 5
V í S IR . Miðvikudagur 4. desember 1968. 5 YT’ið lendum oft i vandræðum, þegar við spyrjum okkur sjálfax þessarar spurningar. Við val á jólagjöfum verður fyrst og fremst að taka tillit til þess, að gjöfin veki ánægju, komi að gagni eða gamni og svo eiga þær í flestum tilfellum að koma ekki of fast við peningapyngj- una. Núna undanfarið höfum við talað um erlendu kvennablöðin þar sem hægt er að finna hug- myndir að ótal gjöfum, sem hægt er að búa til sjálfar eða kaupa. Hér á eftir veljum við úr nokkrar uppástungur og eru það einnig gjafir, sem má kaupa, því ekki hafa allar tíma til að búa til gjafimar sjálfar Skreytingin og uppsetningin gerir það að verkum, að gjafim- ar eru skemmtilegar um leið og þær eru ódýrar margar hverjar. Stórar og litlar pappírsserví- ettur í mörgum litum fyrir öll tækifæri og árstíðir, efst á bunkanum eru plastservíettu- hringir, sem eru bundnir sam- an. Góð gjöf handa húsmóður- inni, sem ekki er vön að velja liti sjálf. Epli, appelsínur og gylltar jóltréskúlur eða silfurlitar gera einfalt tertufat á fæti að skraut legri gjöf. Handklæði í nokkrum stærð- um en með sama munstri en kannski tveim til þrem litum Breitt silkiband utan um og slaufa. Innkaupanet í skemmtilegum lit pokar, ásamt kaffidósum. Börn- in geta búið til hæfílegar um- búðir úr marglitum pappír utan um filterpokana. Álpappfr er enn þá lúxus i eldhúsunum víða, en er alltaf meir og meir notaður Handa húsmóðurinni, sem vill reyna ýmislegt, nokkrar rúllur af ál- pappír, mataruppskriftir þar sem pappírinn er notaður og notkunarreglur. Vantar ekki alltaf skemmti- legan umbúöapappír, þegar til hans þarf að grípa? Hægt er að gefa góðar birgðir af umbúða- eða gjafapappír, auðvitað fall- ega pakkað inn. Stækkunarspegill, sem notað- ur er þegar farðinn er lagður á. Áskriftir að tímaritum t d. Húsfreyjunni, fyrir árið. Áskrift ir að leikhúsum handa þeim, sem annars myndu ekki fara. Eiga þau lítinn son eða dótt- ur? Þá er tilvalið að fara með myndavélina í heimsókn og taka á eina til tvær filmur, velja úr beztu myndirnar og láta stækka þær, líma svo á spjald og innramma í gler, sem fest er saman með málmklemm um. Fyrir hann má velja hand- kiæði f fallegum lit, sápu og svamp Stimplar eru vinsælir. Því ekki að fá einn útbúinn með nafni og heimilisfangi, bæta við stimpilpúða og nokkrum um- slögum og skemmtileg jólagjöf er tilbúin. Handa barninu stimpill með nafninu í stórum stöfum og heil mikið af pappír til að stimpla á. Handa þeim, sem þykir Mart- iniblanda góð og sem viðbót við 13. síða. KiuV dEir"XEEKassrr:3ars.- -maam Bótagreiöslur almartna- trygginganna í Reykjavik Bótagreiðslur hefjast í desember sem hér segir: EHilífeyrir fimmtudaginn 5. desember. Aðrar bætur, þó ekki fjölskyldubætur, mánu- daginn 9. desember. Fjölskyldubætur greiðast þannig: Miðvikudaginn 11. desember hefjast greiðslur með 3 börnum og fleiri í fjölskyldu. Laugardaginn 14. desember hefjast greiðslur með 1 og 2 bömum í fjölskyldu, (þann dag opið til kl. 5). Sérstök athygli skal vakin á því, að á mánudög- um er afgreiðslan opin til kl. 4 síðdegis og auk þess verða greiddar allar tegundir bóta til kl. 5 síðdegis laugardaginn 14. desember. Bótagreiðslum ársins lýkur á hádegi á aðfanga- dag jóla og hefjast ekki aftur fyrr en áVenju- legum greiðslutíma bóta í janúar. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Laugavegi 114. Bækurnar fáiö jb/ð hjá okkur Bækur, pappírsvörur, skólavörur. Bókabúðin Hlíðar, Miklubraut 68 homi Miklubrautar og Lönguhlíðar. Sími 22700. I Úrvaliö er hjá okkur Bækur — gjafa- og jólavörur, alls konar. Bókabúðin Álfheimum 6. Sími 37318. v ENGINE TUNE UP Vélargangs - hreinsir Hreinsar og gerir vélarganginn hljóðlátan, og kemur í veg fyrir að ventlar, undirlyftur og bullu- hringir festist- Kemur í veg fyrir vélarsora. Minnkar viðnám- Eykur afl- Er sett saman við olíuna. 'Hnö qu' tices and y.tvy v.»weí picveiús ^ 1 leduces'1* FÆST A ÖLLUM HELSTU BENSÍNSTÖÐVUM ANDRI -H.F., HAFNARSTRÆTI 19, SÍMI 23955 ssKastassss:-

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.