Vísir - 07.12.1968, Page 3
VÍSIR . Laugardag«r 7. desember 1968.
ftWV.V,
Konurnar voru eftirtektarsamir áhorfendur og gleymdu önnun um í bili,
Litlu jól" húsmæðranna
T itlu jól“ húsmæðranna leyf-
?? J ir Myndsjáin sér að
kalla jólafund Húsmæðrafélags
Reykjavíkur, sem haldinn var
s.l. miðvikudagskvöld að Hótel
Sögu.
Þar ríkti jólastemmning, kon-
urnar urðu ungar í annað sinn,
þær sem farnar eru að reskjast,
og þær ungu enn yngri. Hús-
mæðurnar slöppuðu af og
gleymdu jólaönnunum, sem
framundan eru. Þær höfðu sitt
jólatré í miðjum sal og „Heims
um ból“ var sungið tvisvar
sinnum. Séra Árelíus Níelsson
flutti jóla- og húsmæðraspjall
eftir að form. félagsins frú Jón-
ína Guðmundsdóttir hafði flutt
ávarp, konur úr Húsmæðrafé-
laginu ásamt nokkrum ungum
stúlkum sýndu tízkuna, Ringel-
berg í Rósinni sýndi skreytingar
bæði jóla og gjafa. Til sýnis
voru skrautleg veizluborð með
smurðu brauði, síldarréttum og
tertum, kvartett söng jólalög og
svo var happdrætti um marga
fallega hluti.
Það má segja að dagskráin
hafi veriö valin bæði til upp-
lyftingar og fræðslu húsmóður-
inn; enda nutu þær hennar af
heilum hug. Og húsmæður eiga
það ekki til í sér að vera of
siðabundnar. Þær skenktu hver
annarri kaffið við boröin og
þegar líða tók á var geng-
ið á milli borða og rabbað við
kunningjana.
U <•■■■••> :
Ringelberg í Rósinni meö
lurk, sem hann hefur skreytt
jólaskreytingu.
MYNDSJA
Glæsilegt smurbrauðsborð og sfldarrétta, sem útbúið var af
Brauðborg
Kjólar frá Elsu, sem konurnar sýndu. Hér eru þær í kvöldkjólunum. Frá vinstri Dóra, Hrönn,
Valdís, Kristín, Emilía, Nfna og Margrét. Kynnir var Brynja Benediktsdóttir.
Sumar hinna eldri voru ú peysufötum og svo var ein ung á
upphlut.
Unga
fólkid
veit
ÁLAFOSS
GÓLFTEPPf
L er rétta undirstaðan
ALAFOSS
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2
Raftækjabúðin auglýsir
Segulbandstæki, strokjárn, grillofnar, brauð-
ristar, hárþurrkur, nuddtæki, ódýrir og góðir
lampar, vasaljós frá kr. 53.00. Allt á gamla
verðinu, opið til kl. 10 í kvöid.
Raftækjabúðin, Snorrabraut 22,
á horni Snorrabr. og Hverfisgötu.
Raftækjabúðin auglýsir
Jólaseríur úti og inni, jólatré, jólaskraut.
Raftækjabúðin, Snorrabraut 22,
á horni Snorrabr. og Hverfisgötu.