Vísir - 07.12.1968, Page 8

Vísir - 07.12.1968, Page 8
gtt> VÍSIR Útgefancli: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aöstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aöalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099 Afgreiösla: Aðalstræti 8. Sími 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 145.00 á mánuði innanlands f lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. „Hundska" ÍJöfundur Austra-pistlanna í Þjóðviljanum var í fyrradag að reyna að snúa út úr orðum Jónasar Har- alz í þættinum. „Setið fyrir svörum“ á þriðjudags- kvöldið. Segir Austri að Jónas og hagfræðiprófessor- inn sem líka kom fram í þættinum, hafi báðir talið það „þjóðarböl að óvenjulega mikið síldarmagn hefði bor- izt á land í nokkur ár og að útflutningsverð hefði ver- ið óeðlilega hátt á sama tíma“. Telur Austri, að niður- staða hagfræðinganna hafi verið sú, að efnahags- örðugleikarnir væru „síldinni að kenna, en hvorki ráð- herrum né sérfræðingum“. Þeir sem sáu og heyrðu þáttinn hljóta að vera sam- mála um, að hér er um lúalegan útúrsnúning að ræða. Líklega er þetta „hundskan“ í blaðamennsku, sem þessi maður lofsöng svo mjög fyrir nokkrum árum og virðist vilja tileinka sér af fremsta megni. Það er einkenni á skrifum þessa manns, að hann virðist aldrei geta farið rétt með nokkurt mál. Hann er kunnur að því að gera mönnum upp hugsanir og orð, sem þeir hafa aldrei talað. Við slíka menn er ógerningur að rökræða, og raunar eru þeir ekki svara verðir, þótt stundum verði ekki komizt hjá að vekja athygli á innræti þeirra. Engum hefur dottið í hug að halda því fram, að efnahagsörðugleikarnir væru „síldinni að kenna“. Hinu verður ekki neitað, að við höfum fyrr og síðar treyst um of á síldina, þegar vel hefur veiðzt og hætt til að gleyma því, að hún er viðsjál og getur brugðizt fyrr en varir. Það hefði þótt ótrúleg spá fyrir aldar- fjórðungi, að Siglufjörður ætti eftir að verða svo til síldarlaus bær ár eftir ár. Við höfum reist síldarverk- smiðjur hér og þar — allt of margar — í þeirri von, að síldin mundi koma. Ýmsir hafa haldið því fram, að þar hefði átt að sýna meiri gætni og íhaldssemi. Það er auðvelt að vera vitur eftir á, og ætli sú ríkisstjórn hefði ekki fengið orð í eyra frá sumum, sem lagzt hefði gegn eða neitað stuðningi við slíkar fram- kvæmdir í dreifbýlinu? Efnahagsörðugleikarnir eru hvorki síldinni, sér- fræðingunum né ráðherrunum að kenna. Að svo miklu leyti sem þeir eru okkur ekki með öllu óviðráðanlegir, þá eru þeir þjóðinni allri að kenna. Hún hefur látið sér síldarhappdrættið vel lynda, spilað i því með mikilli áfergju þegar vel hefur gengið, en ekki reynzt að sama skapi fús til að taka áföllunum þegar þau komu. Núverandi ríkisstjórn hefur öllum stjórnum fremur sýnt viðleitni til að renna nýjum stoðum undir atvinnuvegina, til þess að sveiflurnar í sjávarútveg- inum sem alltaf má búast við, yrðu ekki eins örlaga- ríkar og reynslan hefur sannað, þegar til hins verra hefur brugðið. En hvemig hefur stjórnarandstaðan bmgðizt við þeirri-viðleitni? Með algeru ábyrgðarleysi og „hundsku". '.„.fesaaB V í S IR . Laugardagur 7. desember 1968. / Listir-Bækur-MenningarmáT Stefán Edelstein skrifar tónlistargagnrýni: Afmælishátíð aö voru þétt setnar raðimar í samkomusal Háskólans sl. fimmtudagskvöld. Hvert sæti var skipað og mörgum auka- stólum hafði verið komið fyr- ir. Tónleikar þessir voru afmæl- istónleikar, til að heiðra dr. Pál ísólfsson, en eins og kunnugt er varð hann 75 ára f október. Ég ætla ekki að skrifa um dr. Pál og það brautryðjendastarf, sem hann hefur unnið fyrir ís- íslenzkt tónlistarlíf. Það hafa pennafærari menn gert betur en ég get. Hér nægir sú einfalda setning, aö þróun íslenzks tón- listarlífs væri óhugsandi, ef ís- lenzka þjóöin hefði ekki fengið að njóta starfsorku hans. Verkin á tónleikaskránni voru öll eftir dr. Pál. Tónskáld ið sjálft segir lítillátlega, að hann hafi bara samið tónverk af því aö þörf var á. Ég vil leyfa mér aö segja, að þetta sé „understatement" sanns lista manns. Yngsta verkið var hátíðar- marsinn frá 1961, tækifærisverk i fyllsta skilningi, helgað 50 ára afmæli Háskóla íslands og vígslu Háskólabíós. Það vildi ég, að dr. Páli endist þrek og starfsorka til að semja nýjan mars við það hátíðlega tæki- færi, þegar við loks fáum að njóta tónlistar í húsi, sem gæti kallazt tónleikasalur. Þá væri vissulega ástæða fyrir öll is- lenzk tónskáld til að semja. há- tíðarmars. Er nokkur von til, að sú nýja tónlistarhöll, sem Ragnar Jónsson tilkynnti að yröi byggð einhvern tíma á næstu árum í Laugardal, bætti einnig úr þörf Sinfóníuhljóm- sveitar íslands fyrir ný húsa- kynni? Guð gefi að svo verði. Næst heyrðum við Inngang og Passacaglia, upphaflega samin fyrir orgel og síðar færð í hljómsveitarbúning. Registur hljómsveitarinnar eru önnur en org'dsins, þó er ekki hægt að segja annað en að þetta verk hljómi mjög vel í hljómsveitar búningi. Dr. Páll hefur hér engan smákarl sem kollega, sjálfan Brahms í lokakafla 4. sinfóníu sinnar. Eftir hlé kom að aðalverki kvöldsins, Alþingishátíðarkant- ötunni, sem er verðlaunuð tón- smíð af tilefni 1000 ára afmæl- is Alþingis íslendinga. Þessi tónsmíð dr. Páls er fvrst og fremst sannfærandi tónlist, sönn tónlist. Hún á sér rætur í hinni miklu hefð rómantískr- ar tónlistar og má með sanni kallast stórbrotiö verk í þeim anda. Hin andlegu tengsl við Brahms og Reger eru auðheyrð, án þess að tónlist dr. Páls sé á nokkurn hátt ,,epigonal.“ Síður en svo, — hún á rætur i eamalgróinni hefð, en stend- ur samt stöðug og sterk i brim- róti tímans. Margt smátt gerir eitt stórt, og þrennt stórt gerir enn stærra. Sinfóníuhliómsveitin, Söng sveitin Fílharmónia og karla- kórinn Fóstbræður lögðust all- ir á eitt til að reisa dr. Páli veröugan minnisvarða. Á svið- inu voru 195 söngvarar, hljóð- færaleikarar, einsöngvari (Guð- mundur Jónsson) og framsögu- maður (Þorsteinn Ö. Stephen- 'en), sem Ijáðu orðum Davíðs Stefánssonar líf og kraft. mýkt og reisn undir stjóm dr, Ró- berts A. Ottóssonar. Dr. Róbert hefur fært upp margt stórverk- ið með kór sfnum og Sinfóníu- hljómsveitinni, og er óneitan- lega alltaf einhver sérstök stemning í lofti, þegar hann heldur á tónsprotanum. Hann kann manna bezt að byggja upp hinn stóra boga tónlistarinnar, spenna og slaka á, á réttum stööum og forma hið stóra crescendo. Allir aöilar unnu sitt verk vel, og ánægjulegt er að vita, að þrír sjálfstæðir aöilar geta í samvinnu fært stórt verk upp, án þess að deila um það, hver á kórónuna. í lokin hljómaði linnulaust klapp flytjendum, stjómanda og ekki sízt dr. Páli. Því lauk ekki fyrr en menntamálaráð- herra bað tónleikagesti að hylla dr. Pál meö ferföldu húrrahrópi. TTm leið og komiö er inn úr dyrum Casa Nova sjáum við elzta málverk sýningarinnar — á vinstri hönd. Ég hugði það vera samstillingu en bráðlega kom í ljós, að verkið heitir: Bryggjan. Þetta er semsé lítil kyrrlát höfn, garðar, bryggjur og bátar við festar, hið sígilda viðfangsefni málaranna um ald- ir. En því nefni ég missýnina og bögglast við að finna henni raunhæf orð, að hún sannar glöggt, að enn í dag stöndum við að nokkru leyti í sömu sporum og gestir Svavars Guðnasonar urðu að láta sér lynda fyrir þrem tugum ára. Við hugsum nærri upphátt: — Þetta er húsaþyrping, nei fjanda komið: ávextir á borðj — eða skip? En hvaöa máli skiptir allt þetta í raun og sannleika? Breyt ir mótífið nokkru mikilsverðu í listaverkinu? Er ekki nóg, að hljómsterkir litirnir (og mjúkir að parti) stuðli að mikilúðlegri heild, sem er skír og leyndardómsfull eftir allan þennan langa tíma? Þannig get- um við læðzt á hæla málarans og horft á þegar hann umtumar gömlum sannreyndum í ríki lit anna, séð hvernig hann færir sig smámsaman upp á skaftið, æsist og magnast við hverja glufu, sem opnast út yfir slétt- urnar og fjöllin handan múrs- ins. Ekki er laust viö, að okkur finnist höfundurinn innhverfari en sá, er við þekkjum í dag, lík legri til að dylja heitustu til- finningar sínar. Allt er furðu rótt í kringum hann. Með skipi og hafi kemur hr^yfiaflið til sög Að því loknu varð löng þögn, hátíðleg og dálítið vandræða- leg, þangað til dr. Róbert kall- aði lausnarorðið út í sal: „Við þökkum komuna.“ Við þökkum einnig. unnar og verður alltaf síðan fríöur knappur í garöi þeirra Cobra-manna, reyndar tekið að láni hjá súrrealistum... en samt sem áöur sterkt einkenni þessarar tegundar abstrakt- mynda. En nú er rétt að staldra við andartak og lýsa því yfir, að það var ekki ætlan mín að rekja söguþráð. Til þess er hvorki stund né staður — enda og mörg verk fjarverandi, málverk, sem hljóta að teljast meðal stólpanna í röðinni. Þó er varla goögá að nefna sögu í viöur- vist Svavars þvf að engan mál- ara þekki ég á íslandi gleggri og skilningsríkari andspænis tímafjarlægðum í listum. Mér þykir sennilegt, að hann sé til viðtals um skoðun ýmissa góðra manna: Að gömlu myndirnar og miðverkin geti í sumum tilvik- um að minnsta kosti staðizt samanburð við þau síöustu og nýstárlegustu. Ég nefní Gullfjöll sem dæmi, þessa ægifögru mynd, er hraut úr forðabúri Svavars 1946. Þegar við göng- um að rótum hennar og skoðum yfirborðið gaumgæfilega, finnst okkur sitthvað ruglings- legt í verkinu. En ... fjarlægöin og íhugunin, já, samverustund- irnar, þótt þær séu ekki nerra fáar og strjálar, benda til allt annars viðhorfs. Þær Ieiða í ljós ákaflega flókna og töfrandi að- ferð, dýptir hafs eða himins, þankaflug ævintýra, sterkt ris. Ég veit, að það er vonlaust að lýsa þessu með orðum. Gjörólík ur heimur birtist okkur í kvöld roðamálverkinu frá 1951: tregi lítils Ijóðs. Slíkar myndir eru kryddið í lífi fólks, sem er svo heimtufrekt að ætlast til marg slunginna lffshræringa að baka fágaðs yfirborös. En nú gerist vegurinn lengri og torsóttari á köflum. Þegar viö stefnum á Vetrarbraut, Bjargfugl og haf .. og Rósafuglinn, vitum við gjörla aö stjarna flatarfræðinnar lýsir skært. Svavar komst ekki hjá því fremur en margir starfs- bræðra hans að sýna henni nokkurn sóma. Fyrrnefndur rósafugl er meðal beztu verk- ánna, er tengjast að nokkru Ieyti þessum marghataða þótta- fulla stíl. Og þaö verður að segjast fullum fetum —eftir tólf, fimmtán ár — að árangur málarans er hinn prýðilegastí þegar þess er gætt, að rauöu, gulu, blásvörtu, grænu. fjólu- »-*■ 10. síða. Hjörleifur Sigurðsson skrifar myndlistargagnrýni: Gullfjöllin 12.-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.