Vísir - 07.12.1968, Síða 13
73
V í SIR . Laugardagur 7. desember 1968.
Góðar fréttir fyrir kvenþjóðina
% Nú dregur að jólum,
og að venju er mik-
ið fjör í basarmálum
kvenfólksins. Um helg-
ina, sem nú fer í hönd
vitum við á Vísi um
eina fimm basara, þann-
ig að búast má við handa
gangi í öskjunni, enda er
þarna hægt að gera góð
jólagjafainnkaup, eins
og flestir vita.
□ Konurnar í Hallgrímssókn
halda basar í félagsheimili
kirkjunnar. Konumar í sókninni
hafa unnið óeigingjamt starf fyr
ir kirkjuna og aflað henni mik-
ils fjár og margra góöra muna.
Á ]>essu ári afhentu þær t.d. 200
þús. kr. í byggingarsjóðinn sem
er stór upphæð frá ekki fjöl-
mennara félagi en kvenfélag
kirkjunnar er. Konumar segja
að á basamum þeirra verði allt
á „gamla verðinu“, svo ekki ætti
það að spilla fyrir kaupgleðinni í
dag, laugardag, en opnað er kl.
14.
□ Sjálfsbjörg, félag lamaðra
og fatlaðra heldur sinn bas-
ar á morgun kl. 14 í Lindarbæ.
Þama er alls konar jólavarn-
ur til sölu, barnafatnaður, prjóna
fatnaður, smákökur og fleira. Á-
góðinn rennur allur til bygging-
ar vinnu- og dválarheimilis
félagsms við Hátún 12.
□ Konurnar í Styrktarfélagi
vangefinna halda basar með
kaffisölu á morgun, sunnudag,
í Tjamarbúð. Allur ágóði renn-
ur til sjóðs, en honum er varið
til kaupa á innbúi, leik og
kennslutækjum og fleiru til vist
heimilis vangefinna. Á næsta ári
eru 10 ár liðin frá því að kon-
umar hófu að safna fé til starf-
seminnar. Úr sjóðnum hefur til
þessa verið veitt nær milljón i
áðurnefndum tilgangi. Líklegt er
að næsta fjárveiting renni til
vistheimilisins Sólborgar á Akur
eyri, sem tekur til starfa á næsta
ári. Meðal muna á basarnum eru
munir, sem bömin á heimilun-
um í Lyngási og Skálatúni hafa
gert, en sumir munanna vöktu
mikla athygli á sýningu Tengla
nýlega. Rennur fé, sem inn kem
ur fyrir þá í sérsjóði. Þá munu
gæzlusystur, en svo heita fóstr-
ur vangefinna, safna í félagssjóö
sinn, m.a. til að geta veitt styrki
til fræðsluferða um nágranna-
löndin.
□ í Kópavogi hugsa konur til
jólanna og þar verður árleg-
ur jólafundur Sjálfstæðiskvenna
félagsins Eddu haldinn á þriðju
daginn 10. des. í Sjálfstæðishús
inu við Borgarholtsbraut og
hefst hann kl. 20.30. Séra Gunn
ar Árnason mun í upphafi flytja
jólahugvekju og sungnir verða
jólasálmar. Anton Ringelberg,
kaupmaður í Rósinni, mun mæta
á fundinum og sýna jólaskreyt-
ingar. Eru félagskonur hvattar
til að mæta vel á fundinum.
□ Mæðrastyrksnefnd Kópa
vogs hefur hafið vetrarstarf
ið og leitast sem fyrr við að
koma til móts við bágstaddar
og verðandi mæður. Það eru
kvenfélögin f Kópavogi, sem
standa sameiginlega að nefnd-
inni. Skrifstofa nefndarinnar er
í félagsheimilinu í Kópa-
vogi og er opin á mánudögum
og fimmtudögum frá kl. 14 til
16.30. Væntir nefndin skilnings
og velvilja bæjarbúa. Ekki sízt,
þegar skátarnir munu knýja
dyra. en beir munu safna fatn-
aöi og fé sem fólk vill láta af
hendi rakna til hinna efnaminni
í kaupstaðnum. Nefndin er skip
uð þessum konum: Ragnheiður
Tryggvadóttir, Álfhólsvegi 22,
sími 40981, Ásthildur Pétursdótt
ir Fífuhvammsvegi 39, sími
40159, og Jóhanna Bjarnfreðs-
dóttir, Vogatungu 20, sími —
41222.
□ Aðventukvöld verður haldið
í Grensássókn að venju í upp-
hafi jólaföstu, en kvöld þetta er
farið að njóta mikilla vinsælda
hjá söfnuðinum. Samkoman
verður haldin annað kvöld kl.
20.30 í Breiðagerðisskóla. Ung-
ur maður, Ingimar Sigurðsson
syngur einsöng, Páll Kolka,
læknir, heldur aðalræðu kvölds
ins og almennur söngur veröur á
dagskránni að venju. Allir eru
velkomnir, bæöi safnaðarfólk og
aðrir.
Bílar — bílar
Þið sem ætlið að kaupa eða selja bíl vinsam-
lega hafið samband við okkur hið fyrsta. Við
erum í sambandi við kaupendur um allt land,
áralöng viðskipti tryggja góða þjónustu.
Bíla og buvélasalan v/Miklatorg
Sími 23136.
Kvenfélagið
HRINGURINN
Jólakaffi HRINGSINS verður að Hótel BORG
sunnudaginn 8. des. 1968, og hefst kl. 3. —
Jólasvuntur og annar smá-jólavarningur verð-
ur seldur á staðnum.
Komið og styrkið gott málefni.
Fjáröflunarnefndin.
Efnalaug
í fjölmennu hverfi er til sölu nú þegar, eða
frá áramótum, góður möguleiki fyrir fjöl-
skyldu sem hefur ráð á vinnukrafti.
Uppl. í síma 19327 eftir kl. 1 í dag og á morg-
un og eftir kl. 7 á kvöldin, næstu daga.
BÍLAKAUP - BÍLASKIPTI
Vel með famir bílar
í rúmgóðum sýningarsal.
Höfum bilana tryggða
gegn þjófnaði og bruna.
SÝNINGARSALURINN
SVEINN EGILSS0N H.F.
LAUGAVEG 105 SlMl 22466
Umboðssala
Við tökum velútlitandi
bíla í umboðssölu.
Ibúðir
til sölu
2ja herb. íbúð við Óðinsgötu.
3ja herb. íbúð 1 Kópavogi útb.
kr. 200 þús.
3ja herb. íbúð við Lokastfg f
steinhúsi, mjög góð fbúð.
3ja herb. íbúð í Laugames-
hverfi góðir greiðsluskilmálar.
Ný 3ja herb. fbúð á jaröhæð
við Skólageröi, mjög falleg fbúð.
Ný 4ra herb. íbúð í Kópavogi.
Nýtt glæsilegt einbýlishús 1
Árbæjarhverfi, skipti á minni
íbúð koma. til greina.
Fokhelt einbýlishús með 2 bfl-
skúrum í Arnarnesi, húsið selst
í þvf ástandi sem kaupandi ósk-
ar.
Fokheld 6 herb. sérhæð með
bíiskúr f Kópavogi, útb. kr. 200
þús.
Hef ávallt íbúðir sem skipti
koma til greina með.
Fasfeigno-
miðstöðin
Austurstræti 12
Sfmar 20424 - 14120
heini. 83974.