Alþýðublaðið - 04.01.1966, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 04.01.1966, Qupperneq 1
Þriffjudagur 4. janúar 1966 — 46. árg. — 1. tbl. — VERÐ 5 KR. Gos úr tveim gíg- um á nýrri eyju Japanir fyrstir til Ameríku? oooooooooooooooooooooooooooooooo Varðskipið Þór lagðist á hliðimi í slippnum í gær, þegar verið V var að draga skipið á land. Skipið laskaðist ekki mikið en ^ sleðinn sem það var dregið í skemmdist mikið. Skipið náðist ekki út í gær. Sjá frétt á 2. síðu. — Mynd: JV. Reykjavík, GO. Einni klukustund eftir hádegi í gær, tók Skarphéðinn Vilmundar- son flugvallarstjóri í Vestmanna- eyjum eftir þvi að eldstólpi stóð yfir Surtsey. Hann hafði samband við Sigurjón Einarsson flugmann hjá flugmálastjórninni, sem var á leið til Reykjavíkur frá Fagurhóls mýri og flaug hann yfir hinar nýju oooooooooooooooc NEW YORK, 3. 1. (NTB-Reuter.) Pottbrot sem fundizt liafa 1 Ecu ador, sanna að Japanir komu til Ameríku um það bil 4.500 árum á undan Kólumbusi, að því er tveir bandarískir mannfræðing ar halda fram. Japanirnir voru sennilega fiski menn, sem hrakti af leið vegna Storma og strauma og komu að Strönd Ameriku um 3.000 árum f. Kr. að því er Clifford Evans og kona hans Betty Meggers halda fram í janúarhefti tímaritsins Sci entific American. cldstöðvar SV af Surtsey. Sá hann þá að upp var komin eyja, um 100 metrar að lengd og 50 metrar á breidd og gaus úr tveim gígum í austurbrún hennar. Gaus annar gígurinn ösku um 200 m. í loft upp en hinn eldi og eimyrju. Gusu gígarnir báðir með hálfrar til einn ar mín. fresti og stundum báðir í einu. Reykjar og gufumökk lagði til skýja og hraunslettur úr syðri gígnum þeyttust á haf út. Þótti Sigurjóni gosið tignarlegt. Sigurjón flaug til Fagurhólsmýr- ar í gærmorgun. Sá hann þá allvel til eldstöðvanna, en virtist lítið um að vera. Einnig var hann þar yfir um hádegið í gær og í fyrra- dag og þá var gosið mjög lítið og örlaði rétt á eyju í sjávarskorp- unni, en greinilega sást að um tvo gígi var að ræða. Blaðið hafði samband við Sigurð Þórarinsson jarðfræðing og spurði hann álits á hinu nýja viðhorfi í hinum nýstárlegu landvinningum íslendinga. — Ég álít að hér sé um efni- legt gos að ræða, sagði Sigurður. Strax og veður leyfir mun ég bregða mér þarna út og líta á þetta nýja afkvæmi Surtseyjar- gossins. Ég man ekki til að hafa haft spurnir af lengra eða merkilegra neðansjávargosi. Þarna hefur nú gosið að mestu samfellt síðan í nóvember 1963 og fjórum gosum, hvar af hafa myndast þrjár eyjar. Sprungan, sem gosið hefur á er Framh. á 14. síðu Friðarsókn USA haldið áfram Washington og London 3. 1. (NTB i Hvíta hússins í dag eftir dvöl sína Reuter — AFP.) I að búgarði sínum í Texas um ára 1 Johnson forseti sneri aftui’ til mótin og tók við skýrslum dipló Nýársfagnaður Alþýðuflokksfélagsins NÝÁRSFAGNAÐUR Alþýðuflokksfélags Reykjavíkúr verður haldinn í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 7. janúar kl 8,30 og verður vel til hans vandað eins og undanfarin ár. Húsið verður opnað kl. 7 fyrir þá, sem vilja borða. — Dagskráin verður þessi: Stefán Jóhann Stefánsson, fyrrverandi ambassador, flytur ávarp. Vestur-íslenzka söngkonan Stefani Anna Cristopherson syngur einsöng. Leikararnir Bessi Bjarnason og Gunnar Eyjólfs- son flytja nýjan skemmtiþátt. — Aðgöngumiðar eru seldir á flokksskrifstofunni, sími 15020, og er fólk beðið að panta sér miða sem allra fyrst. Stefani Anna Cristopherson Stefán Jóhann Stefánsson mata, sem ferffizt hafa im allan heim að kanna möguleika á frið samlegri lausn á VietnamdelIunnS Forsætisráðherra Breta sendi í dag forsætisráðherra Sovéiríkjanna, Alexei Kosygin, orðsendingu Og bað hann um að athuga hvort ekkt bæri að boða til nýrrar Genfarrá® stefnu um Vietnam. Hrnoiblaðið „Nhan Dan“ hæddist í dag að til raunum Johnsons forseta til a® binda endi á styrjöldina og ítrekaðt kröfur Norður—Vietiiam um brott flutning bandarí<=kra liers veita sem skilyrði fyrir friðarviði'æðum. Heldur ekki í dag lá fyrir i kveðið svar frá Hanoi eða Pek- ing við hlénu á loftárásunum. 5 Norður—Vietnam og friðarsókn Bandaríkjamanna. í Washington telja sumir þetta góðs vitj en aðr ir eru vondaufir um samningaviB ræður i bráð. Johson kallaði helztn ráðunauta sína í utanríkisþjónust unni á sinn fund, þa>' á meðal Humprey varaforseta, sem i morg un kom úr ferð sinní til fjarlæg ari Austurlanda. Blaðafulltrúi for setans, Bill Moyers kvaðst ekkeTt geta sagt um friðarsóknina á þessffl stigi, en aðspurður hvort Arthur Framhald á 14, «fðn. Lagöist á hliöina

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.