Alþýðublaðið - 04.01.1966, Page 16
NYBYRJUÐU ARI
sidan
Ný eyja er enn risin úr
hafi til þess að færa svolítið
landhelgina okkar. Og af því
að það gerðist í byrjun ársins
1966 finnst mér sjálfsagt að
skíra eyna þegar í stað og
kalla hana SEXEY. . . .
1 herbergi og aðgangur að
eldhúsi til leigu fyrir eldri
konu, sem er eitthvað heima
Auglýsing í Vísi.
Ég heyrði í einhverju ára
mótagrobbinu, að okkur öll
um hefði verið gefin ein
hver Skarðsbók. Fyrir hönd
íslenzkra táninga, sem elska
James Bond og eiga að erfa
landið, leyfi ég mér að
spyrja: Er þessi Skarðsbók
nokkuð sptnnó. . .
NÚ ER GAMLA árið liðið og var
kvatt að venju með sprengingum
rakettuskotum og brennum og ó
hemju miklu áfengisþambi, sem
eykst með hverju ári ekki síður en
liagvöxturinn, framleiðnin, útlána
vextir bankanna og barneignir, svo
að ekki sé talað um síldveiðina, of
þenslu í byggingariðnaði og sitt
hvað það sem má til aukninnar
liagsældar má telja.
Gamlárskvöld fór vel og frið
samlega fram í höfuðborginni og
stjórnaði nú Erlingur Pálsson ó
látunum í síðasta sinn og verður
að segja að oft liefur honum tek
ist betur upp, því nokkur ár eru
nú síðan börn og ungingar höfuð
borganrinnar hópuðust saman í
miðborginni og skemmtu sér við
eð skemma eignir borgaranna og
gera aðsúg að lögreglunni. Nú eru
börnin stillt og prúð á gamlárs
kvöld og gera varla annað en safn
ast saman við brennurnar, hræða
minni börn og kerlingar með kín
verjasprengingum. Vera má að sí
felld ólæti unglinga í strætisvögn
unum allt árið veiti þeim slíka út
.rás að ekki þurfi að velta bílum og
æpa að lögreguþjónum þetta síð
asta kvöld ársins, og svo ber þess
að gæta að nú eru unglingarnir
orðnir svo þroskaðir að þeir eru
farnir að skemmta sér að liætti
fullorðna fólksins í heimahúsum
og sýnlst vera ráð að um leið og
kosningaréttur verður færður nið
ur í 18 ár að færa giftingaraldur
inn niður í 14 ár en á hvaða aldri
bömin mega fara að kaupa brenn
vínið sitt þori ég ekki að nefna,
enda erum við frjálslyndir og fram
farasinnaðir á baksíðunni.
Það er óskemmtileg iðja að sitja
við ritvél og vera fyndinn og
skemmtilegur rétt eftir nýárið. Það
er mikill siður í blöðum og út
varpi að gera grín að gamla árinu
og birti meðal annars Morgunblað
ið heilt aukablað sem í var annáll
ársins í spéspegli og var hann svo
skemmtilegur að við lá að hann
skyggði á aðalblaðið sem var með
fyndnasta móti á árinu, ekki síst
staksteinar og Reykjavíkurbréf.
Útvarpið flutti mikil skemmtileg
heit á gamlárskvöld að vanda og
komu þar fram allir humoristar
stofnunarinnar og að öðrum ólöst
uðum var Vilhjálmur Þ. tvímæla
laust skemmtilegastur. Nokkrir
humoristar voru fengnir að láni
til að skemmta þetta kvöld og
tókst þeim bezt upp með Árna
Helgasyni og Bjarna Ben. Af óskilj
anlegum ástæðum var hinn bráð
skemmtilegi og lipurlega flutti
þáttur Sýslurnar svara ekki flutt
ur fyrr en á annan, en eitthvað
skemmtilegt hefur þurft að geyma
til nýja ársins.
Þótt miklu púðri hafi verið eytt
á gamlárskvöld hefur Surtur gamli
staðið sig bezt. Þrátt fyrir hrak
spár undanfama mánuði um að
Surtur væri búinn að vera sýndi
hann í verki að hann er ekki dauð
ur úr öllum æðum. Þegar menn
röknuðu úr rotinu eftir að nýja ár
ið var gengið í garð gaus úr hafi
og ný eyja hafði myndast og sýn
ir sig að ekki er minni framfara
andinn í náttúrunni en landsfólk
inu og skulum við vona að þessi
nýja eyja mega stækka og verða
eilíf ekki síður en smjörfjallið er
lilóðst upp á gamla árinu og eng
inn máttur fær á unnið fremur en
verðbólguskrímslinu og öðrunr
framförum til lands og sjávar.
Þér hafiö góðan smekk fyrir jólaskrauti.
TÖCHS&-
og svo þakka ég þér fyrir jólaglaðninginn, forstjóri, við
gátum keypt lítið og snoturt jólatré fyrir peningana.