Alþýðublaðið - 08.01.1966, Page 2
★ MOSKVU: — Sovézkri sendinefnd undir forsæti Alex-
anders Sjelepins var ákaft fagnað í gær við komuna til Hanoi
í-ftir kuldalegar móttökur í Peking á leiðinni. Með í förinni
eru hermála- og eldílaugasérfræðingar. Mikið er hollalagt um
tilgang ferðarinnar og halda sumir að Selepin muni kanna mögu-
leika á friði í Vietnam en aðrir að heimsóknin standi í sam-
bandi við aukna sovézka hernaðaraðstoð. í Moskvu er heimsókn-
in ekki talin standa í sambandi við friðarsókn USA í Vietnam-
deilunni.
MOSKVU: — Sovézk sendinefnd undir forsæti Leonid Bresj-
nevs flokksritara fór í gær í lest frá Moskvu til Mongólíu, þar
f-am rætt verður um stjórnmál, varnarmál og efnahagsmál við
leiðtoga i Ulan Bator. Með í förinni verða Gromyko utanríkis-
l'áðherra og Malinovsky landvarnarmálaráðherra, sem tekið hafa
bátt i viðræðunum í Tasjkent. Fréttir liafa borizt um liðsafnað
Kínverja á landamærum Sinkiang, Sovétríkjanna og Mongóliu.
★ TASJKENT: — Ayub Khan, forseti Pakistans, og Shastri,
íorsætisráðiierrn Indlands, tókst i gær að sneiða hjá ágreiningi
(im dagskrá Tasjkentráðstefnunnar, en minnstu hefur munað
Ivo síðustu daga að ráðstefnan færi út um þúfur vegna ágrein-
mgsins. Leiðtogarnir ræddust tvivegis við í gær um sambúð
Jandanna. Þeir ræddu Kasmírmálið án þess að það væri á dagskrá.
★ TOKYO: — Sérlegur sendimaður Johnsons forseta, Av-
t'rell Harriman var í gær fullvissaður um það af japönskum
í áðamönnum, að Japanir mundu gera allt sem í þeirra valdi
.stæði til að fá Norður-Vietnammenn til þess að setjast að samn-
ingaborði. Harriman heldur áleiðis til Ástralíu á morgun. Harri-
«nun fullvissaði Japani um, að Bandaríkjamenn mundu ekki ráð-
ast á Ifanoi eða sækja inn i Kína og taldi óliklegt að styrjöld
brvtist út milli USA og Kína, en allt væri komið undir afstöðu
Kínverja
★ WASHINGTON: — Mike Mansfield, leiðtogi demokrata
í öldungadeildinni, sagði í gær, að enginn tímafrestur hefði ver-
*ð settur fyrir hléinu á loftárásunum á Norður-Vietnam. Mans-
íiold, sem nýlega heimsótti Saigon, kvaðst ekki telja að árás-
imsx yrðu hafnar á ný á næstunni.
★ SAIGON: — Lögreglan í Saigon braut í gær aftur sam-
{.æri Vietcong um að sprengja í loft upp byggingu bandarískra
ixermanna i Saigon. Vietcong hefur liert mjög á hryðjuverkum
í Saigon. Fréttir berast um mikinn liðssafnað Vietcong í Quang
Æígai-héraði.
★ SANTO DOMINGO: Herforingjar hafa gert uppreisn
ííegn stjórn Garcia-Godoy forseta í Domingo-lýðveldinu. í gær-
4<yöldi hcyrðist skothríð í liöfuðborginni og efnt var til mót-
nxælaaðgerða gegn herforingjunum, sem hafa neitað að hlýða
skipun forsetans um að fara úr landi og taka við diplómata-
slörfum. Hér er um að ræða alvarlegasta ástand í lýðveldinu
síðan í sumar þcgar byltingin lciddi til fjögurra mánaða borgara-
ítyrjaldar.
Banaslys á
Akureyri
Akureyri GS, GO.
í fyrrakvöld varð banaslys hér
á Akureyri, er planki fauk í höf
uðið á manni, sem var að vinna
ásamt fleirum við timburgeymslu
KEA í Glerárþorpi. Síðaxú hluta
■dags í gær gerði hér afspyrnu
rok á suðvestan og um það leyti,
sem slysið varð var veðrið hvað
verst.
Ekki er vitað um fleiri slys eða
óhöpp á Akureyri af völdum þessa
veðurs.
Maðurinn mun hafa látizt sam-
stundis, en hann hét Karl Njáls
son Hvoli Glerárhverfi. Hann var
rúmlega fertugur að ald"i og
kvæntur og lætur eftir sig tvö
börn.
Þetta er þriðja banasl.ydð hér
á Akureyri á skömmum tíma.
Löngumýrarmálið
Akureyri GS, GO,
Undanfarið hafa staðið yfir á
Akureyri yfirheyrzlur vegna máls
Skipasmíðastöðvar KEA á hend
ur Birni Jónssyni alþingismanni á
Löngumýri vegna smíðinnar á báti
hans, Húna II.
Að því er bezt verður vitað reis
málið vegna þess, að þegar smíði
bátsins var ekkj lokið á umsömd
um tíma, var unnið við hann í
eftirvinnu og nætui'vinnu, sem
Björn neitar að greiða og segir
að sér komi ekki við.
Fundu 9 þúsund
litra af spíritus
Það eru fleiri en íslenzkir
sjómenn sem eru stórtækir í á
fengiskaupum og sölu. í gær
hófust réttarhöld yfir tveim
sjómönnum í Grená á Jótlandi
og mun sækjandinn krefjast
fangelsisvistar og að þeir
borgf 600 þúsund danskar ki-ón
ur í toll og sekt. Sjómennirn
ir eru skipverjar á litlu finnsku
fíutningaskipi sem var á leið
frá Hollandi til Finnlands með
viðkomu í Danmörku, en þar
fundust níu þúsund lítrar af
hreinsuðum spíritus í skipinu
í byi-jun desembermánaðar sl.
Tveir skipverjar voru hand
teknir og hefur annar þeirra
sem er háseti viðurkennt að
eiga hlutdeild í áfenginu. Hann
segir að það hafi verið keypt
í Hollandi og hafi átt að selja
það í Finnlandi^ en hvar og
hverjum segist hann ekki vita.
Skipstjórinn sem er þýzkur er
einnig í gæzluvarðhaldi og neit
ar hann að hafa vitað um á
fengið um borð í skipinu. Tveir
skipverjar hurfu áður en toll
verðir fundu birgðirnar og
hafa ekki fundist síðan. Tollur
inn hefur lagt hald á skipið og
farminn sem tryggingu fyrir
að tollur og sekt verði borguð,
en upphæðin nemur um á,7
milljónum króna.
oooooooooooooooooooooooooooooooo
ÞÓR LOKS KOM-
INN Á FL
Þór kominn á flot og lagstur við bryggju. — Mynd: JV.
Stai-fsmönnum Slippsins tókst
að koma varðskipinu Þór á flot kl.
fimm í gærmorgun, en þá var stór
straumur og háflæði. Björgunartil
raunir voru ekki reyndar áður
þar sem beðið var eftir fctór-
straumi. Eins og sagt hefur ver
ið frá fór Þór á hliðina í dráttar
sleða, þegar verið var að taka
skipið upp, sleðinn skemmdist mik
ið og fór útaf sporunum og var
ekki hægt að renna skipinu í sjó
Ekkert gahb
á Akureyri
Akureyri GS, GO.
í fyrrinótt kviknaði í sæti á bíl
á götu hér á Akureyri. Slökkviliðið
ið var kvatt til og siökkti eldinn
þegar, án þess að teljandi tjón
yrði af.
•
Alls var slökkviliðið á Akureyri
kvatt út 61 sinni á árinu 1965, þar
af tvisvar í sveitirnar í kring. Eng
| in slys urðu í sambandi við elds
voða þessa, en eitt gamalt timbur
: hús gereyðilagðist. ,
j Slökkviliðið á Akureyri var aldr-
ei gabbað á árinu og er það önnur
j saga en slökkviliðsmenn í Reykja
vík hafa að segja.
inn aftur, því menn þorðu ekki
að hreyfa sleðann af ótta við að
skemma skipið meira en orðið var.
Var því beðið með að lxreyfa skip
ið fyrr en í stórstraumnum í gær
morgun, og gekk verkið að óskumt
Því var hagað þannig að tveim
stórum bílum með spilum var kom
ið fyrir handan við vörugeymslu
Eimskips á Gi'andagai'ði og voru
vírar úr spilunum festar í sleðann
en jarðýta ýtti á eftir og tókst
að koma sleðanum í sjó án þess
að skipið haggaðist í honum.
Ekk[ er vitað með vissu hve
miklar skemmdir liafa orðið á
Þór og þarf að taka skipið upp
aftur tii að ganga úr skugga um
það.
Emil talar á
Varðbergsfundi
VARÐBERG og samtök um ves{
ræna samvinnu efna til hádegis
verðar fundar í Þjóðleikhúrkjallar
anum í dag, laugardaginn 8. jan.
Er þetta fyrsti fundur félaganna
á þessu ári.
Á fundinum mun Emil Jónsson
utanríkisráðherra flytja stutt er
indi, sem hann nefnir: Á ráðlu rra
fundi Atlantshafcbandalagsins.
imsfréttir
....sidastliána nótt
l 2 8. janúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ