Alþýðublaðið - 08.01.1966, Blaðsíða 9
ASÍA er alvarlegasta óróahorn heimsins og Evrópa hefur horfið í
skuggann af atburðunum austur þar.Stríðið í Asíu og deilan við Kínverja
eru að ná hámarki, hálfgerð borgarastyrjöld ríkir í Indónesíu og ófriðar-
ástand ríkir milli Indlands og Pakistans. Áhrifanna af hinum alvarlegu
vandamálum, sem við er að glíma í Asíu, mun einnig gæta í Evrópu. Um
þessi vandamál fjallar eftirfarandi grein.
Félagsheimili
Kópavogs auglýsir
Höfum 2 sali', annan fyrir 100 manns og hinn fyrir
120 manns. Tökum að olfkur hverskyns mannfagnaði,
svo sem: árshátíðir. brúðkaup, hádegis- og eftirmið-
dagsboð, kvöldverðarsamkvæmi.
Fjölbreylt úrval veitinga.
Njótið hins fajra útsýnis. — Sími 41391.
Félagsheimili Kópavogs.
Símanúmer okkar er
heimsliluta, deilunni á Indlands
skaga, eru gagnkvæmar ásakan-
ir Peking og Moskvu á traustum
grunni, því að Kínverjar eru harð
vítugir fjandmenn Indverja, en
Rússar eru beztu vinir Indverja
í svipinn.
I svipinn er alvarlegasta spenn
an í Asíu tengd Vietnamstríðinu,
sem einnig nær inn í grannríkið
Laos. í Vietnam hefur átt sér stað
gífurlegur liðssafnaður. Banda
ríkjamenn hafa fjölgað hermönn
um sínum í Vietnam um allan
helming og þeir líta meir og meir
á Vietnamstríðið sem stríð við
staðgengil, þar eð Kínverja, og
Bandaríkjamenn telja að heimin
um stafi meiri og meiri hætta af
Kínverjum. Þróun mála í Vietnam
hefur og leitt til þess, að tilraun
ir til að draga úr spennunni í sam
búðinni milli Washington og
Moskvu eru hættar í bili.
★ INDVERJAR STERKARI.
Þegar fram i sækir kann sam
búð Indlands og Pahistans, og
landakröfur Kinverja gegn Ind-
verjum að verða alvarlegra alþjóða
vandmál en Vietnam. Fjandskap
Vr hinna Btólm ríkja Indlands
skaga, þar sem tæplega 600 millj
ónir manna búa, hefur aldrei ver
Suhanto við jarðarför.
ið meiri. Á árinu sem leið áttu
þau í fyrsta sinn í styrjöld sín á
milli. Styrjöldin stóð í nokkrar vik
ur í ágúst og september og hófst
með því að Pakistanar sendu vopn
aða árásarmenn inn í hinn ind
verska hluta Kasmírs í misheppn
aðri tilraun til að fá ibúana til
þess að gera uppreisn. Minnstu
munaði að hersveitum Pakistana
tækist að loka veginum, sem teng
ir Indland við norðausturhluta
Kasmírs, þar sem Kínverjar hafa
hreiðrað um sig og Indverjar hafa
búizt rammlega til varnar. Þegar
svo var komið gripu Indverjar
til gagnráðstafana og færðu stríðið
inn í sjálft Vestur-Pakistan á
breiðri víglínu. Fyrir áhrif Örygg
isráðsins, Bandaríkjanna og Sov
étríkjanna, sem aldrei þessu vant
stóöu saman, komst á vopnahlé
að nokk'um vikum liðnum.
í hernaðarlegu tilliti er eng
um vafa undirorpið, að Indverjar
rtanda sterkar að vígi eftir við
ureignina og sennilegt er, að Pak
ist.anar hafi orðið að gefa upp
alla von um að knýja Indverja
með valdi til þess að láta undan í
Kasmírmálinu. Vopnahléð kom
sér sennilega illa fyrir Kinverja
sem tóku ekki einvörðungu af
stöðu með Pakistönum í stríðinu
heldur hótuðu Indverjum styrj
öld. Átyilan var meintur viðbún-
aður Indverja Kínamegin landa
mæra Tíbets og Sikkims, hins litla
verndarrikis Indverja í Himalaya
fjöllum. Skömmu fyrir vopnahléð
heyktust Kinverjar á úrslitakost
um þeim, sem þeir settu Indverj
um og enginn hefur fundið grund
völl fyrir.
Forsætisráðherrá Indlands, Lal
Bahadur Shastri, og forseti Pak
istans, Ayub Khan, eru komnir til
viðræðna í höfuðborg Uzbekistans,
Ta'jkent, fyrir tilstilli Rússa, en
það kæmi mjög á óvart ef þeim
tækist að finna grundvöll fyrir
sáttum.
★ TOGSTREITA
í Indónesíu vofir einnig yfir
hætta á styrjöld, í þessu tilviki
borgarastyrjöld. í þessu stóra ey
'ríki, sem hefur um hundrað millj
ónir íbúa, á við gífurlega mikla
erfiðleika að stríða í efnahagsmál
um en ræður yfir geysimiklum
náttúruauðlegðum og er hernaðar
lega mjög mikilvægt vegna legu
sinnar, á sér nú stað hö”ð tog -
streita um völdin. Atburðir síð
ustu þriggja mánaða hafa verið
mjög óljósir, en ljóst er að komm
Framhald á 10. síðu.
Flugvirkjanemar
LOFTLEIÐIR HF. hafa í hyggju að aðstoða
nokkra pilta til flugvirkjanáms í Banda-
ríkjunum á sumri komandi.
Nauðsynlegt er, að umsækjendur séu fullra
18 ára, hafi gagnfræðapróf, landspróf eða
hliðstæða menntun.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félags-
ins, Lækjargötu 2, Reykjavík og hjá um-
’boðsmönnum félagsins úti á landi.
Umsóknir ásamt afriti af prófskírteinum
skulu hafa borizt ráðningardeild félagsins
fyrir 25. janúar 1966.
OniEIDIR
Áskriftðsíminn er 14900
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. janúar 1966 9