Alþýðublaðið - 01.02.1966, Qupperneq 3
V
ptflfi
■
Hffl
MIKID TJÓN HJÁ
SR Á SIGLUFIRÐI
Siglufirði - SS, — GO.
Hér var líflegt um helgina, ef
svo má að orði komast. Veðrið er
það ver.sta sem menn muna eftir
hér í áratugi. Skemmdir urðu mikl
ar á þökum fjölda hú a bæði íbúð
arhúsa og opinberra bygginga, svo
sem Hafnarhúsinu, áhaldahúsi bæj
arins, Hólsbúinu og húsi rafveit
unnar í Fljótum. Þá rofnaði há-
spennulína frá Skeiðfossvirkjun og
oooooooooooooooc
USA vill nýja
Genfarráðstefnu
New York, 31. 1. (NTB
Reuter.) — Bandarík
in fóru þess á leit í kvöld við
Öryggisráðið, að það kæmi
af stað viðræðum án skilyrða Y
um möguleika á friðarviðx
ræðum í Vietnammálinu. X
Bandaríska áskorunin kem v
9 ur fram í ályktunartillögu, er 9
X Öryggisráðið á að ræða þegar X
X það kemur saman til fundar, X
ó sennilega á morgun. Allar rík ó
V isstjórnir sem hlut eiga að V
9 máli, verða að taka þátt í við Y
X ræðunum um hina fyrirhug X
X uðu friðarráðstefnu, segir í X
O tillögunni. O
V í New York er talið að V
9 með þessu eigi bandaríska Y
X istjórnin við það, að Kína og X
X Norður-Vietnam verði að X
ó taka þátt í viðræðunum, en, ó
V ekki suður-vietnamiska þjóð- 0
9 frelsisfylkingin, hin pólitíska 9
X deild Vietcong. X
ooooooooooooooo-
fær bærinn nú aðeins rafmagn frá
varastöð sinnj og díselrafstöð Síld
arverksmiðja ríkisins.
Tjón var mjög mikið á mann
virkjum SR, mikið fauk af járni
og stálþil, sem verið var að reka
niður í höfnina gliðnaði sundur.
Hun það mjög mikið tjón. Flagg
stengur brotnuðu viða um bæ
inn og girðingar lögðust út af.
Snjórinn hefur lamið á óskaplega
skafla um allan bæ. Engir skaðar
urðu á monnum.
Drangur kom' hingað á föstu
daginn og komst ekki aftur út
fyrr en í gærmorgun.
Fiöldinn allur af rúðum brotn
aði um allan bæinn.
Til gamans má geta þess að i
mesta veðrahamnum á laugardags
kvöldið. hélt Skagfirðingafélagið
Þorrablót og var fjölmennt. Sögðu
Skagfirðingar sem svo, að þessu
og þvíumlíku væru þeir alvanir
rrá æskuárum sínum.
Rafmagnslaust
í Reykjavík
Reykjavík, OTJ.
Kertaljós blöktu í húsum í allri
Reykjavík og á stóru svæði á Suð-
urlandsundirlendinu um áttaleytið
á laugardagskvöld. Skammhlaup
hafði orðið í spennum við Elliða-
árnar sem varð til þess áð höfuð-
borgin varð rafmagnslaus og einn-
ig sá hluti Suðurlandsundirlendis-
ins sem Sogsvirkjunin nær til. Var
það ekki fyrr en klukkustund síðar
sem Reykvíkingar aftur fengu ljós,
og enn seinna fyrir austan. Skamm
hlaupið varð vegna seltu og óhrein
inda á einangrunum.
Tvær gamlkr og sögufrægar flugvélar, sem ekki var lengur rúm fyrir í flugskýlum, urðu hart úti I
óveðrinu á laugardaginn. Þær fóru báðar á hvolf, ■"' ns og myndin sýnir og skýrt var frá hér í Dlaðinu
á sunnudaginn. Efri flugvélin er af Stinson-gerð o;; mun vera fyrsta flugvél Loftleiða, en sú neðri’er
Katalínaflugvélin Rán. sem er í eigu Landhelgisg eziunnar. — Myndir: JV.
Bátur sökk í höfn?
inni á Skagaströnd
Skagaströnd BB, — OÓ.
Hér hefur verið ofsarok með
snjókomu í þrjá daga, á föstudag,
laugardag og sunnudag. Mikið tjón
hefur orðið vegna veðursins, þök
fokið af mörgum húsum og einn
bátur sökk í höfninni. Allir bátar
í höfninni voru í mikilli hættu
Finnsk tillaga felld á
fundi Norðurlandaráðs
Kaupmannahöfn, 31 jan.
(NTB)
Eins og viö var búizt hafnaði
Norðurlandaráð í dag finnskri til-
lögu um skipun nefndar til þess
að kanna hvort gera skuli Norður-
lönd að kjarnorkuvopnalausu
svæði. Sjö meðlimir ráðsins, sex
Finnar og einn Dani, greiddu til-
lögunni atkvæði. í stuttum um-
ræðum uni málið sagði norski
jafnaðarmannaleiðtoginn Trygve
Bratteli, að ástæðulaust væri fyr-
ir Norðurlönd að taka á sig ein-
hliða skuldbindingar.
Norðurlandaráð hefur nú að
mestu lokið störfum sínum að
þessu sinni, en á morgun á ráðið
að taka afstöðu til tillagna efna-
hagsmálanefndarinnar um efna-
hagssamvinnu Norðurlanda. í dag
samþykkti ráðið að leggja til við
stjórnir Noregs og Danmerkur, að
þær taki ákvörðun um lagningu
vegar frá Kiruna til Noregs hið
fyrsta. Ráðið lagði einnig til við
stjórnir Norðurlanda, að þær ættu
frumkvæði að norrænni samvinnu
um framleiðslu og dreifingu á
skólamyndum og könnuðu skilyrði
fyrir norrænni samvinnu á sviði
sjónvarps- og útvarpskennslu fyr-
ir fullorðna.
Ýmsar tillögur voru samþykktar
í dag, m.a. um samvinnu um rann-
sóknarstarfsemi í alþjóðastjórn-
I málum, samnorræn undirbún-
ingspróf, norræna eðlisfræðisam-
vinnu og samnorræna upplýsinga-
starfsemi erlendis.
Efnahagsmólanefnd samþykkti í
gær nokkrar tillögur um efnahags
samvinnu Norðurlanda. Nefndin
leggur til að stjórnirnar athugi
skilýrði fyrir' slíkri samvinnu,
bæði varðandi ytri tolla, landbún-
aðar- og fiskveiðistefnuna, atvinnu
: málalöggjöfina og verzlunarstefn-
una. Einnig verði að fá úr því
skorið hvort þessi efling samvinn-
unnar geti orðið með þeim hætti
að óvinningurinn af henni vegi
upp á móti vanköntunum hverju
Framhald á 14. síðu
þar sem mikil ísing hlóðst ó þá.
Báturinn sem sökk er Stígandi
HU 9. Er hann 22 lestir að stærð.
Sjómenn voru um borð í öllum
bátunum og unnu stanzlaust við
að höggva af þeim ísinn, sem
á þá hlóðst og tókst að halda þeim
öllum ofansjávar, nema Stíganda.
Skemmdir á húsum eru gífur-
legar og eru ekki að fullu kann-
aðar ennþá. Þök fuku af nokkrum
húsum með þaksperrum í heilu
lagi og báruj árnsplötur fuku af
enn fleiri húsum. Síldarverksmiðju
húsið varð fyrir miklum skemmd-
um og víða göt á húsinu þar sem
plötur hafa fokið í burtu. Þakið
fauk af verbúðarbyggingu hafn-
arinnar og nær allar hurðir fuku
af sama húsi. Einnig fór allt þakið
af Lifrarbræðslunni og af nokkr-
um íbúðarhúsum.
Mestar urðu skemmdirnar á hús-
um við höfnina, eða á nær öðru
hvoru húsi. Skemmdir af völdum
veðursins urðu minni í innra hverf
inu. Víða hefur verið rafmagns-
laust um lengri eða skemmri tíma
enda lágu rafmagnslínur sums
stáðar við jörð.
Þótt talsvert hafi snjóað í veð-
urofsanum er lítill snjór á jörðu
því hvassviðrið feykti honum
burtu af bersvæði, en stórir skafl-
ar eru þar sem skjól var.
í gær unnu menn að því að
kanna skemmdirnar og gera við
húsin til bráðabirgða.
Bókauppboð
haldið í dag
SIGURÐUR Benediktsson heldur
bókauppboð í Þjóðleikhúskjallaran
um í dag og hefst það kl. 17,00.
Alls eru 113 númer á skrá, en
að auki verða seld nokkur aiika
númer. Fjöldi fágætra og eigulegra
bóka og tímarita verða seld á upp
boðinu. Meðal þeira má nefna
Landfræðisögu íslands eftir Þor-
vald Thorodsen, útgefin í Reykja
vík 1892-1904. Þá verður boðin
upp fýr ta útgáfa ferðabókar
Eggerts og Bjarna Reise igdhn
em Island, Sorö 1772. Ferðabók
Olovíusar, Kaupmannahöfn 1780.
Biblía, gefin út í Reykjavík 1908.
Hefur þes?i útgáfa gengið undir
nafninu Heiðna-Biblía. Gríla Jóns
Mýrdals, Akureyri 1873, og Tíma
rit hins í lenzka bókmenntafélágs
1—25 árgangur. ' i
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 1. febr. 196& j3