Alþýðublaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 8
i \ ! i i i Þörf á bamaheimili fyrir börn háskólastúdenfa Á BARNAHEIMILUM BARNA- vinafélagsins Sumangjafar pru nú um 1050 — 1100 börn dagJega, á aldrinum frá 3 mánaða til sjö ára. 400 börn eru á dagheimilum og 650—700 börn á leikskólun- um: Alþýðublaðið hitti að máli- Boga Sigurðsson, framkvæmda- stjóra Sumargjafar, og lét hann í té tgreinargóðar upplýsingar um rekstur barnaheimila félagsins. — Starfssemin greinist í tvær aðaldeildir, sem eru dagheimili og leikskólar. Á dagheimilunum eru tbörn, allt að 6—7 ára aldri' en fyrir börn yngri en tveggja ára eru tvær deildir innan dagheim-. ilanna. dagvöggustofur og skrið- börn frá þriggja mánaða upp í 1 árs gömul, en í skriðdeildunum eru börnin frá eins árs til 18 mánaða gömul. Hér eru nú sex dagheim ili með tæpum 400 börnum dag- vöggustofur eru í Laufásborg, Hlíðarenda og í Hamraborg þar eru einnig 'skriðdeildir. Önnur dagheimili eru Vesturborg. Steina hlíð og Hagaborg, sem er með skriðdeild. Á dagheimilunum hafa börnin fæði og alla aðhlvnningu, sem þau þurfa yfir daginn. — í leikskólunum eru börnin yfirleitt aðeins hálfan daginn, annaðhvort frá 9—12 eða frá 1—5. Oftast nær eru yngri börn fyrir hádegi, en þau eldri aftur eftir hádegið. í leikskólana hafa börn in með sér nesti, mjólk og brauð, að heiman frá sér. Leikskólarnir eru 8 að tölu, Brákarborg, Græna borg, Austurborg, Drafnarborg, Tjarnarborg, Hlíðaborg, Baróns- borg og Holtaborg, sem er alveg nýr leikskóli. Þar hófst starfsemi á síðastliðnu ári. í leikskólunum eru um 670 börn. — Um þörf barnaheimila er það að segja, að barnaheimilaþörf er fyrir á að gizka 20 börn á hverja eitt þúsund íbúa, svo að eins og er myndi þurfa barna- heimili fyrir 1600 börn. Vantar því barnaheimili í Reykjavík fyr ir um 500 börn. Ef hægt væri að fylgja; þeirri áætlun, sem gerð var um byggingu dagheimila og leiksköla af formanni Sumargjaf ar, Ásgeiri Guðmundssyni og fleiruiþ,. þá myndum við ná því markiþ að leikskóla- og dagheim- ilaryníi væri 'nóg fyrir þau börn, sem þ;ess þyrftu með, en því mið ur hefur sú áætlun eltki verið framkvæmd. Mér finnst mjög að kallandi'. áð komið verði upp barnaheimilum fyrir börn háskóla stúdenta. Námsmenn sækja mjög mikið að koma börnum sínum á dagheimili og leikskóla, enda hafa þeir vissan forgang. Algjöran for igang hafa þó einstæðar mæður og ekkjur og ef einstakiega bág kjör eru á heimilum. — Starfsstúlkur hér eru bæði fóstrur og ólærðar, en við. stefn um að því að hafa lærða fóstru á hverri deild, en þar eru tvær stúlkur. Um fóstruskólann er það að segja, að aldurstakmark er 18 ára og stúlkurnar þurfa helzt að hafa gagnfræðapróf eða landspróf. Þær sem ekki hafa þéssi próf, geta tekið sérstakt inntökupróf, og ef þær ná því, hafa þær mögu leika á að komast í skólann. Mjög góð aðsókn er að skólan- um, og komast ekki allar að, sem sækja um, því miður. Að endingu spyrjum við Boga, hversú mikið kosti á mánuði að hafa börn á leikskóla eða dag- heimili. —- Gjald fyrir dvöl á dagheim- i-Ii er 1150 krónur á mánuði fyr ir eldri börn en tveggja ára. Fyr ir börn yngri en tveggja ára er igjaldið 1250 krónur. Það gjald er þó ekki nema um 40% af raun- verulegum kostnaði. Gjald fyrir dvöl í leikskóla, er 500 kr. fyrir börnin, sem eru þar fyrir hádegi, en 700 krónur fyrir þau, sem eru eftir hádegi. Það gjald nemur 75—80% af raun- verulegum kostnaði við rekstur- ; - 1 mm Þau höfðu mikinn áhug Tjarnarborg og Laufásbórg For- stöðukona dagheimilisins Haga- borgar, Þórúnn Einarsdóttir gekk með okkur um hinar ýmsu deild- ir. Fyrst komum við í sKriðdeild ina, þar voru litlu börnin einmitt að ljúka við að drekka miðdegis- mjólkina sína. Þau störðu stórum augum á ljósmyndarann og virt- ust furðu lostin yfir þessum eld- blossum, sem komu úr myndavél- Við fengum að taka nokkrar myndir af börnunum í Hagaborg, liiil Örn, Valdimar og Jón voru að þvo sér um hendurnar. Þeir eru I dagheimilinu Hagaborg. Bogi Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Sumargjafar. Svipmynd úr „eldhúsinú í leikskólanum Tj; 3 1. febr. 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.