Alþýðublaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 01.02.1966, Blaðsíða 6
GLUGGINN SAMTÍNtNGUR Verkamaður nokkur á Ítalíu keypti nýlega vænan þorsk á fisk- markaði í þorpinu Gallipolo á S- Ítalíu, og þegar liann kom heim með þorskinn og slægði hann, fann hann pening í maganum á honum. Seinna kom svo í Ijós, að pening- urinn var mjög verðmætur, og er sennilega mjög gamall. Mynt- sérfræðingar hafa því tekið hann til rannsóknar, til að reyna að finna, frá hvaða tímum keisarapen- ingur þessi er. ☆ r>/\Ð er sagt frá Rússlandi, dð bækur eftir igyðingahöfunda muni nú verða'gefnar út á jiddísku (mál gyðinga í Evrópu) í ásökunum vestrænna þjóða á Rússa nm anti- semítisiman í landinu hefur verið bent á bókaskort þeirra 1 5 mill- jón Gyði-nga, sem búa í andinu. Tass segir að sk'áldsagan — í klipu — eftir Eli Shekh'mfln frá Kiev eigi að koma út í 15 000 eir. tökum — lítið upplag miðað við Rússaútgáfu, en mjög stórt miðað við það að höfundurmn er Gyðing ur. Franska stjórnin hefur ákveð ið að verja frönskuna fyrir áhrif um frá öörum tungumálum:. Nefnd á að skipa til þess að standa vörð um verndun tungunnar og út breið.lu. Pompidou verður for- maður nefndarinnar, sem í verða um 12 meðlimir. Verkefni nefndar innar er þrískipt. í fyrsta lagi á hún að berjast á móti hnign un tungunnar í landinu sjálfu. í öðru lagi treysta samböndin á milli þairra landa, sem tala frönsku, og í þriðja lagi varðveita frönskuna sem heimsmál á al- þjóðaráðstefnum. De Gaulle hef ur oft gagnrýnt notkun enskra orða í frönsku, og nefndin á að ■sjá um, að útlend orð og orðasam bönd nái ekki festu í málinu, hvorki í riti né ræðu. Jæja, börnin mín, var gaman í veizlunni hjá Soffíu frænku ykk ar. — Það var svo agalega gaman að við fáum aldrei að knma þang að aftur. v, 3? '/S' | Steinaldarkona Á Kanarieyjum var nýlega tek in kvikmynd sem heitir Milljón árum fyrir Krist“. Hún er nokkuð óvenjuleg, m.a. að því leyti að öllu tali er sleppt. í stað þess gefur fólkið frá sér allskonar furðuhljóð, rymur og skrækir og veifar höndunum að fransmanna sið. Aðalhlutverkið er í höndum Johns Richardsons en í myndinni heitir hann Tumak. En það er hætt við að aðalathyglin beinist að kvenpersónunni, sem heitir Wilma, réttu nafni Raquel Welch. Ekki vitum við hvort Wilma litla hefur einhverja leikliæfileika til að bera, en hún hefur ýmislegt annað, svo sem sjá má á með fylgjandi mynd. ÞESSI MYND ER UR kvik myndmní Viva Maria, sem tekin var í Mc-xíkó. Tvær heimsfrægar leikkonur eru í aðalhlutverkum, þær Sri.vitte Bardot og Jeanne i Moreau. Kvikmyndin fjallar um hóp listnmanna, sem flækist inn í upprei nina í Mið Ameríku um aldamóthi. Brigitte og Jeanne eru í þessum hóp og lenda í mörgum ævin ýrc.n. Þær fá að nota hæfi leika sÍ5>a í skotfimi, þegar þær berjast íyrir lífi sínu. Kvikmynd inni hef-'.r verið líkt við myndir Belmondos, Maðurinn frá Rio, og Kínversk ævintýri í Kína. Jói sífulli kom ranglandi eftir götimni nra miðja nótt og mætti iögregluþjóíni, sem sipurði hann hvert hann væri að fara. — Að hlusta á fyrirlestur. — Það er ekki hægt núna, það «r alsstaðar lokað. — Ekki heima hjá mér. . , | SIÐAN ITAi^SKA farþegaskip S ið Andrea Doria fórst eftir á B rekstur viö sænska farþegaskip lg ið Stockholm í júlí 1956. hafa |j fleirihundruð björgunaráætlan jj ir vcrið gerðar. Skipið liggur g á 75 metra dýpl, svotil á ann ■ arri hliðinni. Strax eftir slys - ið gerðu ítalir björgunaráætlun B þar sem gert var ráð fyrir að 1 dæla 73,000 tonnum af lofti nið ■ ur í flakið til þess að reyna að U lyfta því upp. Bandaríkjamenn g töldu betra að fylla það með B nælonbelgjum sem síðan yrðu blásnir upp. Athyglisverðasta tilraunin hingað til var gerð af ■ anqerískum köfurum árið 1963 = en þeir reyndu að dæla lofti í g flakið úr 22 löngum. Sú til H raun misheppnaðist. Og nú á jj að gera enn eina og hana nokk ■ uð frumlega. Það á að troða 1 svo miklu af borðtenniskúlum §§ inn í skípið að það lyftist upp. fg Hugmyndina eiga raunverulega J teiknarar Walt Disneys, en í B einu Andrés Önd blaðanna. björguðu Rip, Rap og Rup skipi á þennan hátt, eftir að hafa ráð fært £ig. við sína alvitru skáta handbók; Sérfræðingar á sviði björgunármála eru fullir efa semda, en Don Henry, skipstjór inn sem á að stjóma „borðtenn iskúlubjörguninni" er ekki í neinum vafa um að hún muni heppnast, og bíður nú bara eft ir því að hann fái nægilegt fjármagn. En það er eitt sem allir eru sammála um: það væri hægt að hafa upp anzi góðan skilding með því að lyfta dall- inum. Eftir að hafa legið i sjó öli þessi ár, er reiknað með að skipið gé að minnsta kosti 1800 milljóna virði (umreiknað í ísl. kr.) Andrea Doria var bara fjög urra ára gamalt þegar það sökk og fimtíu manns létu lífið. í rölum þess hanga enn verð mæt málverk m.a. eftir Rem brant, og listfræðingar segja að þau séu enn ekki ónýt. í peningaskápnum eru gimstein ar og aðrir skratgripir sem hægt væri að fá um 80 millj ónir íslenzkra króna fyrir, ým is skjöl og hlutabréf, :em hægt væri að fá um 40 milljónir fyr ir. og svo eru þar einnig millj ónir í margvislengum gjaldeyri í lestinni er t.d. tilraunabíll frá Crysler, sem þeir eru fúsir að inuiiiiiiiiiiiiihi: .'-.I borga einar 8 milljónir fyrir,Sl og þannig mætti lengi telja. ; § Tólf kafarar hafa hingað til lát. ið lífið við að fara niður íj skipið, og líklega verða þeir fleiri . En Andrea Doria ligg ' ur enn óhreyfð — ef þú skyldir : t hafa áhuga. ú g 1. febr.- 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.